Vikan


Vikan - 01.02.1968, Side 32

Vikan - 01.02.1968, Side 32
Ronson ) HÁRÞURRRA HEIMILANNA EINKAUMBOÐ: Wm& WmWÍmw I. GUÐMUNDSSON & CO. H.F., REYKJAVfK 32 VIKAN s *“• STJÖRNÖSPÁ*$fc Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl): Þú átt von á óvenjulegum gesti í heimsókn í vik- unni. Heimsókn hans getur orðið til þess að áform þín breytist allnokkuð. Um helgina kemurðu i hús, þar sem þú sérð lausn á vandamálum þínum. Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí): Þér verður komið þægilega á óvart um helgina, og verður það til þess að skapið batnar til muna. Sann- ast að segja hefurðu ekki verið sem hýrastur und- anfarið, en það hefur stafað af misskilningi í og með. Tvíburamerkið (22. mai — 21. júní): í þessari viku gerist nokkuð, sem þú hefur lengi átt von á. Vinur þinn fær hugmynd og hvetur þig til að hjálpa sér við framkvæmd hennar. Þið skuluð hugsa ykkur vel um, það virðist geta lánazt. Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí): Þú átt sjálfur mesta sök á þvi hve lítið verður úr þessari viku íyrir þér. Þú ert óþolinmóður og þessi óþolinmæði leiðir af sér gremju, og þar af leiðandi gcngur allt á afturfótunum. Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst): Á vinnustað gerist nokkuð, sem á eftir að gera strik í reikninginn. Á laugardag gerist eitthvað, sem á eftir að hafa mikil áhrif á framtið þína. Trúðu á sjálfan þig, slakaðu ekkert á. Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september): Illur orðrómur getur orðið til að koma þér í ljóta klipu í vikunni. Ekki er Ijóst hvaðan þessi orðrómur er sprottinn, en þú skalt vera orðvar. Miðvikudagur býður þér einstakt viðskiptatækifæri. Vogarmerkið (24. september — 23. október): Vikan verður frábrugðin sfðustu viku, það er eins og einhver ró sé að færast yfir þig og þér verður meira úr því sem þú hefur handa á milli. Þér berst bréf sem á eftir að valda þér miklum heilabrotum. Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Þú stendur frammi fyrir miklu vandamáli, þér llgg- ur ekkert á að ákveða þig. Flýttu þér hægt. Þú bætir þekkingu þína á sviði starfs þíns. Þú verður á fjöl- mennum mannfagnaði um helgina. Bogamannsmerkið (23. nóvember — 21. des.): Það gerist ekki ýkja mikið þessa viku, en þú og þínir eru mjög ánægðir með ykkar hlut. Þú hefur með höndum verkefni, sem þú og fjölskylda þin eru mjög niðursokkin 1. Heillataia er fjórir. Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar): Þú verður miðdepill í einhverju sem þið kunningj- arnir hafið komið ykkur saman um. Þú verður fyrir nokkurri fjárhagslegri freistingu í vikunni, svo þú skalt vera á verði. Oft gerast sölumenn tunguliprir. Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar): Þú gerir þér áþarfa áhyggjur út af einhverju, sem gerðist i siðustu viku. Allir eru búnir að gleyma því, en þú getur auðvitað dregið þinn lærdóm af. Var- astu allt óhóf. Þig mun vanhaga um peninga bráðum. Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Þvermóðska þín verður til þess að þú missir af góðu gamni. Þú lest eitthvað eða sérð, sem hefur mikil og jákvæð áhrif á þig. Þú átt von á einhverju sérstöku í vikunnl, en þú verður að bíða enn um sinn. I ■ ii ■ i ■ ■ .......

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.