Vikan


Vikan - 22.02.1968, Side 23

Vikan - 22.02.1968, Side 23
... LEIFTURHÖGG ÍSRAELS 5. júní þoldu Israelsmenn ekki lengur síendurteknar ögranir og skemmdarverk Araba um mörg ár. Arab- arnir spörkuðu a.f sér stígvélunum til að eiga hægara með að flýja, og eftir sex daga voru herir Egyptalands, Sýrlands og Jórdaníu splundraðir. Egypzki flugherinn var strax úr leik. Nasser, sem storkað hafði Israel um of, bauðst ti) að segja af sér, en lýðurinn bað hann grátandi að gera það ekki. v____________________________________________z H-SAMVINNAN í SVÍÞJÓÐ H-dagurinn í Svíþjóð var meðal viðburðanna. Svíum gekk vel að færa sig milli vegarhelfta enda var við- búnaðurinn mikill; vel vandað til undirbúnings og styrkur lögreglunnar sjöfaldaður til eftirlits, meðan breytingin væri að komast á. Svíar segja þetta árangur fjölmennustu samvinnu, sem sögur fari af: 15.000 leið- beinendur, 2.200 hermenn, 1.200 mótorhjólalögreglu- þjónar og 35 þyrlur. BANDARÍKJA- HATUR DRAP 370 21. maí fórust 370 manns í Briissel, þegar kvikn- aði í stóru vöruhúsi. — Margir álíta, að í því hafi verið kveikt í hefndar- og mótmæla- skyni, eða beinlínis af Bandaríkjahatri. Gegn- um eldgnýinn heyrðist hrópa'ð: „Ég fórna lífi mínu fyrir Víetnam.“ Þegar þetta gerðist, hafði vöruhúsið nýlokið svonefndri „Ameríku- viku“, sem það tileink- aði kynningu á banda- rískum varningi. 8. tbi. VIKAN 23

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.