Vikan - 22.02.1968, Qupperneq 25
„Nató er öflugasta hernaðarbandalag, sem nokkru sinni hefur verið til. Að kljúfa þann skjöld
gengur fyrir öllu í hugsun góðra Sovétmanna, því svo lengi sem Nató stendur óhaggað, eiga
Sovétríkin sér einskis frekari framgangs von í Vestur-Evrópu. Megintilgangur rannsóknastarfs
míns var að finna veikan hlekk í Nató-keðjunni. Sá hlekkur er Frakkland.“
EFTIR LEON URIS - 4. HLUTI
BLAÐARÉTTUR Á TSLANDI: VIKAN
,,Árið 1952," hóf W. Smith máls, ,,varstu sovézkur sendifulltrúi í Ber-
lín, en þá kallaður til Moskvu. í hvaða tilgangi?"
Kúsnetof vafðist tunga um tönn; hann leit til Andrés og vottaði fyrir
hita í augum hans. Hinir biðu fullir eftirvæntingar. „Mér þætti gott að
fá stóra töflu," sagði hann.
Það var sent eftir töflunni og henni komið fyrir hjá Bórisi, þannig að
allir viðstaddir höfðu góða sýn vfir hana. Hann tók sér krít í hönd og
dró á töfluna nokkra ferhvrninga, sem án vafa áttu að sýna tignarröð
yfirmanna einhverrar stofnunar.
„Veiztu hvað þetta er, Devereaux?"
„Ef til vill."
Við þá brún töflunnar er frá Bórisi sneri teiknaði hann með stórum
stöfum „SDECE", skammstöfun heitis frönsku leyniþjónustunnar. Hægt og
af nákvæmni tók hann síðan að fylla út ferhvrningana og byrjaði efst
með forstjóraskrifstofunni. Síðan sneri hann sér að ferhyrningunum vinstra
megin á töflunni.
„R-l er leyniþjónusta ykkar." Þar fyrir neðan krítaði hann í hvern fer-
hyrninginn af öðrum-.
R-2 Austur-Evrópa.
R-3 Vestur-Evrópa.
R-4 Afríka.
R-5 Miðausturlönd.
R-6 Austurlönd fjær.
R-7 Ameríka — vesturhvel jarðar.
Undir hvert þessara orða skrifaði Bóris nöfn hlutaðeigandi forstjóra og
aðstoðarforstjóra, svo og leyninöfn þeirra. Þá beindi hann athygli sinni
að töflunni miðri og fyllti þar út nýja röð ferhyrninga.
„Franska gagnnjósnaþjónustan er þekkt undir heitinu Þjónusta 2," sagði
Bóris. Hann skrifaði nú niður heiti þessarar stofnunar, er teygði anga
sína um heim allan, þar á meðal „3/5 kommúnistadeild", sem dýpsta
leynd átti að hvíla yfir. Hann skráði líka niður nöfn forstjóra deildar
þessarar og helztu aðstoðarforstjóranna.
Hægra megin á töflunni neðarlega fyllti hann út stóran ferhyrning, sem
var ekki í tengslum við aðra, með orðunum: „Þjónustu 5 — Stjórn".
Og lengst til hægri skrifaði hann: „Þjónusta 5 — Aðgerðir".
Undirdeildir Aðgerðadeildar voru ,,A/1 — Hereftirlit", og að síðustu
„FFF — Leynilegar aðgerðir".
Kúsnetof lagði frá sér krítina, þurrkaði af höndum sér og var studdur
til hjólastólsins. Siðan ávarpaði hann André.
„FFF, deild ykkar fyrir leynilegar aðgerðir, er stjórnað af einum bezta
vini þínum, Robert Proust. Leyninafn hans er Panorama."
Þögnin í herberginu var mögnuð sem fyrr og andlit Andrés var eins og
úr steini.
„FFF er sérstaklega merkileg fyrir okkur alla, eins og þið munið brátt
fá að heyra. FFF hefur eignazt gotúng, nýja undirdeild. Handgengnasti
fylgdarsveinn Roberts Prousts, vinar þíns, er Ferdinand nokkur Fauchet.
Þekkir þú Ferdinand Fauchet?"
André kinkaði lítillega kolli.
„Jæja, þá skulum við upplýsa okkar bandarísku vini IítiIsháttar. Ferdi-
nand Fauchet hefur skrifstofu á Orly-fIugvelIi undir því vfirskini að hún
sé notuð til tollaeftirlits. í raun og veru er skrifstofan mjög svo sómasam-
lega útbúin með merkilegum hlustunartækjum, útbúnaði til Ijósmyndunar
og haglega gerðum áhöldum til að sprengja upp lása og brjóta innsigli.
Sérkunnátta Fauchets er sú að opna póstböggla frá sendifulltrúum, sem
ekki ganga of vel frá sendingum sínum, og Ijósmvnda innihald þeirra.
Svo að það er bezt fyrir vkkur að hugsa vkkur um tvisvar áður en þið
sendið póstinn ykkar gegnum Parfs."
André þótti sem hann hefði verið lostinn steini en leyndi því.
„Lofið mér þá að segja ykkur dálítið meira um Robert Proust og svein
hans Fauchet. Fauchet er tengiliður SDECE við vissa franska glæpamenn
og undirheimafólk, sem annast flest þau mannrán, sem leyniaðgerða-
deildin lætur framkvæma, svo og barsmíðar og dráp. Fvrir tveimur ár-
um festi Fauchet kaup á litlu en góðu hóteli; Monarch heitir það og er
staðsett í Rue du Montparnasse. En eins og þið skiljið er hann ekki eig-
andinn, heldur franska leyniþjónustan."
Sid Jaffe sleikti á sér varirnar. Hann minntist þess nú að hafa komið
á barinn og í veitingasalinn í Monarch nokkrum sinnum, þar á meðal
einu sinni með Michael Nordstrom, sem nú gaut til hans hornauga.
„Undirheimarnir hafa séð eigendum hótelsins fvrir úrvali vændiskvenna,
sem notið hafa frábærrar þjálfunar. Þær eru viðstaddar diplómatískar
mótfökur á vegum SDECE, venjulega undir því yfirskini að þær séu sýn-
ingardömur eða jafnvel húsmæður. Kvensamur eða fullur sendifulltrúi
fer gjarnan úr móttökuveizlunni f fylgd með einhverri af bessum ungu
hefðarkonum og lætur hana leiða sig til Monarch-hótels. í hverju her-
bergi þar eru faldir hljóðnemar og myndavélar, sem hægt er að nota
hvenær sem er til að Ijósmynda allt innanstokks."
Kúsnetof klóraði sér á nefbroddinum og reyndi að rifja upp fyrir sér
tölu. „Ef ég man rétt, eru í Frakklandi tuttugu og tvö þúsund símhler-
unartæki og fjögur þúsund í París einni. Snúum okkur þá aftur að Ferdi-
nandi Fauchet. Stundum grfpur hann ekki til glæpamannanna, heldur fær
samtök ofstækisfullra hægrimanna til að framkvæma fyrir sig launmorðin."
Kúsnetof lýsti nú í smáatriðum nokkrum morðum og fleiri aðgerðum.
Var þar um að ræða atriði, sem aðeins menn með sérstök sambönd gátu
vitað um.
„Það sem þú hefur sagt okkur," sagði André, ,,er í raun réttri ekki
annað en það að þú hafir sérstaklega góðar heimildir til upplýsingaöfl-
unar um störf SDECE."
,,Þú óskar þá ekki eftir að leiðrétta neitt?"
s. tbi. VIKAN 25