Vikan - 22.02.1968, Page 33
JACOB'S
Meira en 100 ára reynsla og kunnátta í
að jramleiða Jacob’s Cream Crackers,
er ástæðan jyrír bragði og gœðum
þessarar ajbrags vöru. Kaupið pakka
aj Jacobs Cream Crackers og þér
sannjæríst um bragð og gœðv.
ÚUSrAUmS* * . •
W * RJMk A •» fL** ttf. Umptá lnfM
English
Cream
Crackers
MTIMNT OX • tltf
MMABMiMHfM —ii— ■
■}acob’s Cream Crackers fæst i nœsíu búð. Tttesi selda kexid a markaóinum
greip hann sig í því að hugsa
um hvað Nile læknir hafði sagt
um einmanaleik. Einmanaleikinn
gat myndað einkennileg og sterk
bönd milli tveggja ólikra vera.
Barbara var viðkvæm. Hugsan-
ir hans um hana voru of flókn-
ar og of fráleitar starfinu og
hann beitti sig hörðu og ávítaði
sjálfan sig og ýtti frá sér öllum
hugarórum.
Morguninn eftir jarðarför
Lucille Phelps vaknaði Gus
Hernandez, eftirsóttasti löggilt-
ur endurskoðandi og skattalög-
maður Portúgalsborgar, í litlu
piparsveinsíbúðinni sinni, þung-
ur yfir augunum, með súrt bragð
í munninum og geðvondur. Hann
hafði sofið illa og haft þungar
draumfarir. Hann var fölur, lít-
ill og feitur, daufeygður með
þunnt, dökkt hár og ráma,
asthmakennda rödd, hraðmælt-
ur. Það fór í taugarnar á honum
að hann skyldi finna til van-
líðunar og eiga erfitt með svefn,
þótt fyrir höndum væri að taka
á sig mikla áhættu, — í fyrsta
sinn á ævinni. Hann hafði von-
azt til að geta gert þetta af meira
kæruleysi. Það var ekki réttlátt
að hafa búið sig undir það alla
ævina að góma auðæfin og vera
svo svona æstur og utan við sig,
þegar sá stóri var loksins í nánd
við krókinn.
Hann hafði unnið fyrir sér
sem bókhaldari meðan hann las
lögin. Eftir að hafa skreiðst í
gegnum prófið hélt hann áfram
að færa bækur og stefndi að því
að verða löggiltur endurskoð-
andi. Skömmu síðar hafði hann
opnað sína fyrstu, litlu skrif-
stofu og tók sér fyrir hendur að
sanna að námsárin hefðu ekki
farið til einskis. Hann varð brátt
viðurkenndur einhver færasti
leiðsögumaður gegnum fen og
frumskóga skattalaganna, bæði
alríkislaganna, og laga hinna ein-
stöku ríkja. Hann náði tökum á
frábæru samstarfi við einka-
starfsmenn skattstofanna. Á hinn
bóginn var það öruggur vegur
til að vinna sér hylli skattgreið-
enda að hjálpa skjólstæðingnum
til að forða löglegum, fimm
hundruð dollurum frá skattlagn-
ingu, þá var sá sami vís til að
hefja hann til skýjanna og hrósa
honum við aðra. — Fáðu Gus
Hernandez til að sjá um skatt-
skýrsluna þína.
Hann hafði ekki logið, svikiö
né falið. Hann hafði farið heið-
arlega að öllu og þegar við-
skiptin urðu víðtækari hafði
hann ráðið starfsfólk, þjálfað
það vel og fylgst vel með störf-
um þess. Hann var ókvæntur og
hafði ekki fyrir neinum að sjá.
Hann lifði spart. Hann borgaði
sína eigin skatta skilvíslega og
lagði afganginn í örugg fyrir-
tæki: Keðjuverzlanir, sem verzl-
uðu með herrafatnað, og nýjan
Chevrolet á fjögurra ára fresti.
Hann sparaði svo að hann hefði
peninga tiltæka, nákvæmlega á
réttum tíma og þá rétt magn.
Nokkur síðustu árin hafði hann
haft augastað á einu og öðru
sem virtist hafa upp á nokkuð að
bjóða, en það var alltaf eitthvað
sem gerði það að verkum að
hann hörfaði, en nú hafði hann
spilin á hendinni. Feiti skjól-
stæðingurinn í slæmri klípu.
Skip Kimberton. Skip Kimber-
ton hafði naumlega sloppið und-
an ákæru fyrir skattsvik, og ef
til vill þar með fangavist. Skip
hafði verið of stórtækur of lengi.
En Gus Hernandez hafði komið
vitinu fyrir skattstofumennina.
Þetta var hans stóri fiskur. Þetta
var svo viðamikið að Skip yrði
að selja einhvern mjög verðmæt-
an hlut af sínum fyrirtækjum.
Guz hafði farið í gegnum bæk-
urnar hans hundrað sinnum og
það eina sem honum virtist
nokkuð vit í að Skip heldi var
Westonlóðin og hana átti hann
að selja fyrir útborgun, til þess
að hafa handbæra peninga til
þess að borga þá upphæð, sem
honum og skattinum semdist
um. Þetta var stórt, óskipt svæði,
og þar á meðal vatnsströndin,
þar sem konan hafði drukknað.
Gus Hernandez hafði gert ráð-
stafanir til þess að kaupa þetta
sjálfur. Til þess myndi hann
þurfa að nota allt sitt sparifé og
allt sem hann kynni að geta
fengið lánað. Hann ætlaði að gera
þetta afar hljóðlega, í gegnum
leppa, til þess að geta óáreittur
ráðlagt Skip Kimberton að taka
tilboðinu. Og hann hafði örugg-
an kaupanda og ætlaði að selja
það aftur, nákvæmlega sex mán-
uðum eftir að kaupin hefðu ver-
ið gerð. Skip myndi sjálfsagt
komast að því hvað gerzt hefði.
Og hann yrði bálillur, en þá
yrði það of seint. Gus Hernandez
væri frjáls og frír með nóga
peninga í höndunum til þess að
lifa áhyggjulausu lífi það sem
eftir væri.
Hann átti erfitt með að ímynda
sér það sem kæmi á eftir bein-
hörðum peningum. Einhvernveg-
inn myndu peningarnir breyta
óheilbrigðum hörundslitnum í
gullinbrúnan og fletja út ístruna.
Einhvernveginn myndu þeir sjá
honum fyrir draumastúlkunni,
bílum og bátum og fjarlægum,
hlýjum stöðum og hlátri. Allt
jrrði ieikur eftir að peningarnir
kæmu.
Hann ók niður í borgina og
lagði bílnum bak við Kimber-
tonhúsið, skrapp inn á veitinga-
stofuna neðar í götunni og fékk
sér morgunverð, fór síðan upp á
skrifstofuna sína á annarri hæð
í skrifstofubyggingunni. Hring-
ingin, sem hann átti von á kom
8. tbi. VIKAN 33