Vikan - 22.02.1968, Blaðsíða 47
Pðlumr briár
uggur, í fyrsta skipti í sögunni 100%. Það er
aðeins að fara nákvæmlega eftir leiðarvísinum,
ein pilla á dag í þrjár vikur og síðan hlé í eina
viku, en í þeirri viku koma blæðingar, nokkurs
konar tíðir. Þar sem ekkert egglos verður, eru
það ekki tíðir í venjulegri merkingu, enda oft
minni og þægilegri. Blæðingin er slímhimnulos
úr leginu, sem hefur verið að búa sig undir að
fóstra eggið þar — sem svo ekkert var. Það væri
hægt að koma alveg í veg fyrir blæðingu með
því að taka pillurnar stanzlaust, en ekki er það
talið óhætt, því að of mikið af hormónum gæti
þá safnazt fyrir í líkamanum og valdið tjóni.
Nokkra daga má þó fresta tíðum ef þannig
stendur á, að skaðlausu. Raunverulegar tíðir
koma hálfum mánuði eftir að hætt er að taka
pillurnar.
Hver pilla inniheldur nægt efni til að hindra
eggframleiðslu ( einn sólarhring, en eftir það
hættir hún að hafa áhrif. Þó er nóg að taka hana
tólf tímum seinna, ef gleymist að taka hana í
eitt skipti, t. d. að kvöldi, og þá morguninn eftir.
Líði lengri tími verður að byrja á ný, og líður þá
vika þar til fullt öryggi fæst. Eðlilegt er að marg-
ar spyrji hvernig fari, verði konan ófrísk, en haldi
áfram að taka pillurnar. Það er ekki vitað til að
fóstrið bíði neitt tjón af því.
Gildi þeirra sem læknislyf.
Það má ekki gleyma því, að auk þess að
hindra getnað, hafa pillurnar töluvert gildi sem
læknislyf við ýmsum hormónatruflunum. Verkir
og taugaspenna við tíðir minnka, þar sem ekk-
ert egglos verður. Mjög mikil og óregluleg blóð-
lát er hægt að minnka og laga með pillunum.
Konur á breytingatímabilinu um fimmtugt hafa
af þeim mikil not, og jafnvel konur, sem komnar
eru yfir það tímabil, nota þær með oft undra-
verðum árangri. Það er kannski of sagt, að búið
sé að finna leið handa konum til að verða ungar
fram í háa elli, en margir læknar halda því fram,
að miklu sé hægt að koma til leiðar með pillun-
um. Þær auðveldi breytingatímabilið og yngi
konurnar upp, komi I veg fyrir ýmsa aldurs-
sjúkdóma, svo sem beinarýrnun, hjartasjúkdóma
og ýmiss konar andlega veiklun og hrörnun.
Þótt það hljómi kannski undarlega, hafa þær
einnig með góðum árangri verið notaðar við
ófrjósemi kvenna. Það er í þeim tilfellum, þegar
um hormónatruflun er að ræða og eggjastokk-
arnir starfa ekki eðlilega. Með lyfinu fá þeir
fullkomna hvíld og nýja starfsorku á eftir. Það
verða þær konur líka að hafa í huga, sem taka
sér „hvíld" inn á milli frá pillunum, e. t. v. einn
og einn mánuð. Þann mánuð er hugsanlegt að
þær verði að vera sérstaklega varkárar, vilji þær
ekki eignast barn.
Pillurnar eru yfirleitt ekki teknar meðan konan
hefur barn á brjósti, því að þær trufla þá starf-
semi líka.
Sú nákvæmni, sem þarf við notkun þeirra, og
það hve tiltölulega dýrar þær eru, hefur komið
í veg fyrir að þær yrðu almennar þar sem þeirra
er mest þörf, en það er hjá frumstæðum og fá-
fróðum þjóðum. Þar er fólksfjölgun víða alvar-
legt vandamál. Reyndar sjá óvelkomin börn enn
dagsins Ijós, bæði hér og annars staðar, þrátt
fyrir þessa fullkomnu vörn, en hún er ekki alveg
gallalaus, eins og sjá má hér á eftir. Þess vegna
er lika verið að leita eftir enn auðveldari leiðum
og virðast þær vera á næsta leyti.
Hverjir eru ókostirnir?
Allir sjúkdómar, sem hugsanlega gætu stafað
af pillunum, hafa verið til athugunar í flestum
löndum. M. a. þess vegna er það mikilvægt, að
konan hafi samráð við lækni sinn um töku pill-
unnar. Reyndar fást þær ekki nema eftir lyfseðli,
en komið getur fyrir, að læknar gefi út lyfseðil
fyrir þeim gegnum sfma, án þess að þekkja
heilsufar konunnar, og getur það ekki talizt
æskilegt, nema þá um mjög stuttan tíma.
Ymsar tilgátur um afleiðingar lyfsins hafa ver-
ið bornar fram, en sumar þeirra hafa reynzt til-
hæfulausar með öllu, eftir því sem bezt er vitað.
Það virðist t. d. ekki vera neinar líkur til þess,
að lyfið valdi krabbameini í legi eða brjóstum,
nýjustu rannsóknir benda frekar til þess að það
varni því. Þó er það talið mjög mikilvægt, að
konan fari í móðurlífsrannsókn áður en hún tek-
ur lyfið. Smáblæðingar koma oft af því í byrjun,
en það sama gildir líka um krabbamein, þannig
að blæðingar, sem konan héldi að stöfuðu af
lyfinu gætu verið frá krabbameini, sem hefði
verið þar fyrir. Gæti því verið að hún sinnti ekki
þeim krabbameinseinkennum og kæmi þá of
seint til lækninga.
Gula eða sjúkdómar í lifur hafa verið nefndir
sem ein afleiðing lyfsins. Það má til sanns vegar
færa, þar sem konum með sjúka lifur getur
versnað við töku þess, en það veldur ekki veik-
inni, sé hún ekki þar fyrir. í þeim tilfellum gefur
læknir konunni ekki þessar pillur.
Migrenusjúklingar fá stundum tíðari höfuð-
verkjarköst, einkum á dögunum sem pillurnar
eru ekki teknar inn á milli, og það kemur fyrir
að konan þolir pillurnar illa í magann.
Aukin klæðaföll og erting í fæðingarvegi koma
stundum fyrir við notkun pillanna.
Sumar konur kvarta um þunglyndi og önug-
lyndi við töku pillanna, en þess ber líka að geta,
að pillurnar geta einmitt bætt sálarástand, eink-
um hjá þeim, sem mikil taugaspenna fylgir tíð-
um og egglosi.
Flökurleiki og eymsli í brjóstum má telja nokk-
uð eðlilegt í byrjun, þar sem ástand konunnar
er eiginlega það sama og við þungun. Margar
konur hætta þó við þær einmitt vegna þessara
óþæginda. Sem dæmi um það, hve líkamsástand
konunnar er svipað því að hún væri vanfær, má
nefna að hár hennar tekur oft verr við perman-
entliðun meðan hún tekur pillurnar, alveg eins
og það gerir meðan hún gengur með barn.
Ein alvarlegasta tilgátan er þó sú, að lyfið geti
valdið blóðtappa. Það hefur ekki verið sannað,
en sé nokkuð til í því, er álitið að það hafi ein-
göngu áhrif á minni og ytri æðar, þar sem slíkt
er ekki eins hættulegt og ef um stórar aðalæðar
væri að ræða. Þó má benda á það, að þungun
getur í sumum tilfellum aukið likur á blóðrásar-
truflunum, t. d. hjá konum með æðahnúta, svo
að hugsanlegt er að lyfið geti haft einhver áhrif
í þessa átt.
Margar konur hætta við pillurnar vegna þess
að þær fitna og þyngjast óviðráðanlega. Það er
sannarlega þungt á vogarskálunum hjá mörgum
konum. Stundum bindur lyfið vökvann í líkam-
anum, stundum eykst matarlystin, en eitthvað er
það í fjölmörgum tilfellum, sem veldur því að
konurnar fitna.
Talað var í fyrstu um hættu á að konurnar yrðu
ófrjóar af að taka pillurnar, en hið gagnstæða
kom fljótt í Ijós, a. m. k. við stutta notkun þeirra,
eins og talað var um hér að framan.
Margir læknar hika við að gefa kornungum
stúlkum þetta hormónalyf, þar sem ætla má að
kirtlastarfsemi þeirra sé ekki komin í fast form
og því ekki ráðlegt að valda þar neinum trufl-
unum. Þó hafa margar ungar stúlkur fengið lyfið
vegna tíðaverkja. Gengur sú saga í Danmörku,
að undarlega margar skólastúlkur kvarti nú um
slíkar kvalir, en pillurnar fást hjá skólalækni út
á það!
I fyrstu var óttazt, að það kynni að koma fyrir
vansköpun á barni, sem konan eignaðist eftir
að hafa tekið lyfið. Ekkert slíkt tilfelli hefur
komið fram svo vitað sé.
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin World Healt Org-
anisation telur lyfið hættulaust heilbrigðum kon-
um og börnum þeirra, og í sumum tilfellum gagn-
legt og heilsusamlegt.
Það er þó eðlilegt að nokkur uggur sé bæði í
almenningi og læknum við þessa röskun á einu
viðkvæmasta og mikilvægasta starfi líkamans,
starfi blóðkirtlanna. Tíu ár eru ekki langur tími
til að dæma um áhrifin, þótt nokkuð glöggt sé
vitað um áhrifin á konuna á þeim tíma sem lið-
inn er frá uppgötvun þeirra — en minna hvað
framtíðin ber í skauti sér. Margur læknir hefur
sagt sem svo, að ! rauninni vissi mannkynið ekki
hvað það væri að gera, og má víst færa þau um-
mæli upp á fleiri tilraunir en þessar. Otti al-'
mennings lýsir sér vel í svari einnar konu, sem
ásamt nokkrum öðrum var spurð í dönsku blaði
um álit sitt á pillunni: „Auðvitað getum við ekki
fullyrt að hún sé hættulaus, við höfum ekki séð
barnabörnin okkar ennþá."
Sprauta einu sinni í mánuSi
Tilraunir með sprautu einu sinni í mánuði með
þessum sömu efnum og eru í fyrstu pillunni hafö
farið fram undanfarið í Bandaríkjunum og þykja
hafa gefizt vel.
Áhrifin eru þau sömu að öllu leyti og af
pillunni, nema hvað ( Ijós kom, að af V3 hluta
tilraunakvenna var tiðalausa tímabilið ívið styttra
og tíðatímabilið kannski 1—2 dögum lengra þótt
blæðingar yrðu ekki meiri í heild en af pillun-
um. Lyfið er nefnt Deladroxate og er framleitt
af fyrirtækinu Squibb.
Morguninn - eftir -
pillan
Sú pilla hefur áhrif, þegar ætla mætti að það
væri orðið of seint. Eggið getur þá verið frjóvg-
að í legpípunni, og ef ekkert væri aðhafzt, færi
það ( rólegheitum niður pípuna, eða á þeim
tíma, sem því væri nauðsynlegt að dvelja þat
til að búa sig undir að festa sig í leginu. Það e<
áðurnefndur Chang, sem telst uppfinningarmaðut
þeirrar aðferðar, sem hér verður lýst, en eins oð
við allar eða flestar aðrar nýjungar í læknisfræðí
hafa tilraunir farið fram á dýrum í mörg ár áð-
40 VÍKAN tbl-
ur en þær eru reyndar á mönnum. Aðferðin er
fólgin í því, að auka hraðann á ferð eggsins
eftir pípunni, en svo virðist sem það þurfi að
dvelja þar vissan tíma til að hafa lífsmöguleika.
Ýmis efni virtust hafa tilætluð áhrif, en í Ijós
kom að Áthinyl-Östradiol bar fullkomlega ör-
uggan árangur á dýrum, og, eins og siðar kom 1
Ijós, einnig á konum. Þetta lyf er efnafræðilegt
afbrigði af kvenkynhormóninu Östrogen.
Það var árið 1966 að Bandaríkjamaðurinn dr.
Mc-Lean Morris, sérfræðingur í kvenlækningum
við Yale háskólann, tók að sér að reyna lyfið á
konum. Fyrstu tilraunirnar gerði hann a stulkum,
sem nauðgað hafði verið í Chicago, og varð eng-
in þeirra ófrísk. Þeim var þá haldið afram a
fleiri konum, og á alþjóðamóti kvenlækna í Santi-
ago í Chile í aprílmánuði 1967 gerði dr. Morris
grein fyrir niðurstöðum rannsókna sinna: Af
meira en hundrað konum á aldrinum þrettán til
fjörutíu og eins árs, sem lyfið hafði verið reynt
á, varð ekki ein einasta þunguð. Dr. Morris
gerir þessa grein fyrir aðferðinni: „í fimm daga
eftir samfarir er konunni gefið 0,5 2 milli-
grömm Áthinyl-Östradiol og ber það 100% ör-
uggan árangur. Sömu áhrif höfðu 24—50 milli-
grömm Stilböstrol." Þessi lyf fást í flestum lyfja-
búðum víðast um heim og hægt fyrir hvaða lækni
sem er að skrifa lyfseðil upp á þau. Stundum
ganga þau undir mismunandi nöfnum, eftir því 1
hvaða landi þau eru seld og hver framleiðir þau.
( Þýzkalandi stendur t. d. „Cyren á Stilböstrol-
lyfinu, en „Progynon" á Áthinyl-Östradiol.
Þessi lyf valda sem sagt hormónatruflun á
þessu frumstigi þungunar, sem verður til þess,
að frjóvgað egg ýtist hratt ur legpfpunni, og get-
ur þá ekki bjargað sér í leginu.
Dr. Morris telur lyfið hættulaust, þott tiltölu-
lega lítið magn sé notað af því. Konum verður
heldur ekki jafnillt af því og ætla mætti, en þó
fylgir því oft mikill flökurleiki. Úr honum ma
draga töluvert með því að neyta lyfsins með
máltíðum, sömuleiðis með því að gefa önnur
meðul samtímis til að koma í veg fyrir flökur-
leika. Dr. Morris álítur, að enn megi endurbæta
lyfið, þannig að þessara óþæginda verði síður
vart.
Ég spurðist fyrir um lyfið hjá íslenzkum kven-
lækni, og taldi hann að þessi fjarlæging frjóvg-
Niels Einar-Jensen, upphafsmaður nýju sænsku
pillunnar.
aða eggsins færi ekki átakalaust fram. Slím og
blóð fylgdi þessu losi, þannig að aukablæðing
verður um leið. Lyfið hefur ekki verið notað hér,
og taldi íslenzki læknirinn, að það hefði ekki
náð þeirri útbreiðslu, sem svo áhrifaríkt lyf hefði
átt að fá, ef læknar sæju ekki einhverja ókosti
við það.
Aðallega fyrir ógiftar stúlkur.
Það má segja að þetta lyf hafi enga kosti
fram yfir fyrstu pilluna fyrir giftar konur og þær
sem hafa oft og reglulega kynmök. Þær þyrftu
þó að vísu að taka færri pillur, fimm í stað tutt-
ugu og eins eða tveggja, eða þá daga, sem ætla
mætti að eggið væri ( legpípunni, en séu tíðir
ekki reglulegar, getur verið erfitt að vita það
upp á hár. Að öðrum kosti yrðu þær að taka
hana eftir hverjar samfarir til að vera öruggar.
Stúlkur með engin föst ástasambönd losna hins
vegar við að taka fyrstu pilluna meiri hluta man-
aðarins, e. t. v. í langan tíma, aðeins til að vera
viðbúnar ef eitthvað kæmi fyrir. Verði þeim á að
„hrasa" er aðeins um það að ræða, að hlaupa
næsta morgun út í apotek og taka pillu næstu
fimm til sex dagana og þurfa þá ekki að hafa
meiri áhyggjur — þ. e. a. s. þar sem þær fást.
í Bandaríkjunum og ýmsum Evrópulöndum eru
þessar pillur á markaðnum, auðvitað eftir lækn-
isráði.
Mánuði - seinna -
pillan
Það kann að fara svo, að þær endurbætur á
pillunni, sem talað var um hér að framan, verði
óþarfar. Reynist Svíþjóðar-pillan svokallaða eins
vel og vonir standa til og ef ýmislegt annað
verður ekki til að hindra notkun hennar, má
segja að þessi mál séu leyst í eitt skipti fyrir öll.
En þarna eru mörg sjónarmið og margt, sem taka
verður tillit til, og verður nánar rætt um það hér
á eftir. Fyrst verður hér skýrt frá því hvernig hún
varð til og hvaða áhrif hún hefur.
Leitað að öðru efni.
Svíinn, sem telst hafa uppgötvað þetta lyf,
heitir dr. Niels Einar-Jensen, en með honum hafa
tveir aðrir vísindamenn unnið að rannsóknunum,
m. a. tilraunum á dýrum. Þeir heita dr. Hans
Larsson og dr. Ture Leidemann.
Það var í rauninni verið að leita að meðali
gegn krabbameini í legi, þegar þetta lyf upp-
götvaðist. Eftir að hafa reynt fleiri hundruð af-
brigði af Diphenylathyl-efnaflokki án þess að
verða ágengt með það, sem verið var að leita
að, varð efnið, sem nefnt hefur verið F 6103 til,
og strax var byrjað á mjög umfangsmiklum
rannsóknum á áhrifum þess. Sjálfur segir Einar-
Jensen: „Við reyndum efnið í fimm ár á dýrum:
músum, rottum, kanínum og öpum. Við gáfum
þeim of mikið magn og við athuguðum áhrifin
á næstu kynslóðir, en engir gallar komu ( Ijós.
F 6103 virðist eins og af himnum sent."
Það er Ferrosan lyfjagerðin í Malmö, sem
framleiðir lyfið, og er samsetning þess algjört
leyndarmál. Sagt er að sú nefnd sérfræðinga,
sem fékk málið til meðferðar til að leggja til-
lögur fyrir sænska þingið um leyfi til tilraunanna
hafi ekki einu sinni fengið vitneskju um gerð
þess. Það er vitað hvaða efni eru aðallega í þv!
og hvaða áhrif þau hafa, en nákvæma uppskrift
-------------------n
ÞANNIG ER SETIÐ
UM EGGIÐ
Á ÞREMUR STÖÐUM
Legpipa
1. FYRSTA PILLAN.
Sú pilla á erindi við eggjastokkana. Hún
stanzar starfsemina með fölskum hor-
mónaboðum.
tgg
2. MORGUNINN-EFTIR-PILLAN".
Hún nær egginu frjóvguðu á leið sinni
um legpipuna og ýtir því út og burt í
skyndi.
3. „MÁNUÐI-SEINNA-PILLAN".
Áfangastaður hennar er legið sjálft. Fóst-
ur, sem þar hefur búið um sig, deyr af
hennar völdum og skolast síðan út með
tíðunum.
L_______________________________________J
ætlar lyfjagerðin sér að eiga sjálf. Þar sem lyfið
er talið algjörlega örugg vörn gegn barnsburði,
mjög auðvelt i meðförum og engin aukaáhrif
komi fram á konunni, og þar að auki verði það
ótrúlega ódýrt, er ekki að furða þott forstöðu-
menn lyfjagerðarinnar geri sér vonir um óhemju-
lega mikla útbreiðslu lyfsins, m. a. á þeim stóru
svæðum í fjarlægum og frumstæðum löndum,
sem önnur lyf hafa ekki náð fótfestu !. Verðið,
sem áætlað hefur verið, gerir öllum konum hvar
sem er í heiminum kleift að nota það. Það má
segja að kostnaðurinn sé svo til enginn, talað
hefur verið um upphæð, sem svarar 30,00 kr.
íslenzkum á ári.
Efnið horfið eftir tvo daga
úr líkamanum.
Þau milligrömm, sem konan tekur inn einu
sinni í mánuði eða sjaldnar, þegar það hentar,
segja vísindamennirnir að séu horfin að fullu og
öllu eftir tvo daga úr líkama konunnar. Eins og
áður er sagt, er pillan álitin að öllu leyti hættu-
laus, svo hættulaus, að blómi sænskra kvenna
hefur verið valinn til tilraunanna, konur og stúlk-
ur, sem stunda nám við háskólann í Stokkhólmi.
8. tbi. VIKAN 47