Vikan


Vikan - 07.03.1968, Side 19

Vikan - 07.03.1968, Side 19
NO. 1 TIL ÚRSLITA AUBUR ADALSIEINS- DDTTIR. HVERAHVAMMI HVERAGERÐI Auður er 17 ára, fædd 9. október 1950, dóttir Svanlaugar Guðmundsdóttur og Aðalsteins Steindórssonar, þriðja í röðinni af fimm systkiunm. Hún er 171 sm á hæð, með blágrá augu og ljósskolleitt hár. Hún er í öðrum bekk Kennaraskólans og uppáhaldsfögin eru enska og saga; hún hyggst leggja sér- staka áherzlu á að mennta sig til enskukennslu. Á sumrum hefur hún borið ýmislegt við, verzlunarstörf, garðyrkjustörf og unnið við Heilsu- haplið 1 Hveragerði. í tómstundum hef- ur hún gaman að söng, dansi og lestri góðra bóka, ekki sízt ljóðabóka. Á veturna fer hún lítið á böll, en á sumrin er um fátt að ræða í og í nánd við Hveragerði annað en sveita- böll (Minni-Borg, Aratungu, Flúðir, Hvol). Hún segir, að þessar samkom- ur einkennist að vísu nokkuð af drasl- aralýð, en þó geti verið gaman að sækja þær í kunningjahópi. Strákarn- ir drekki oft mikið — of mikið — og til þess liggi ýmsar ástæður, sumir hafa beinlínis gaman af því, aðrir geri það af því að það sé tízka og enn aðr- ir til þess að reyna að vera manna- legir, af því að þeir eru ekki orðnir það í raun og veru. Annars álítur hún ekki, að unglingarnir séu vandamál frekar nú en áður, því hinir góðu ung- lingar séu svo miklu fjölmennari, þótt meira beri á hinum. Hún telur, að Æskulýðsheimilið að Fríkirkjuvegi 11 láti mikið gott af sér leiða og heppi- legt væri að hafa fleiri slík. t>að myndi verða til þess að hinn áberandi minni- hluti yrði enn fámennari. Hún segist til skamms tíma alltaf hafa beðið um leyfi, ef hún ætlaði að skreppa að heiman til að skemmta sér, og tala um það ennþá, þótt mamma hennar láti hana sjálfráða. Auður telur, að margir unglingar hafi þennan háttinn á, þótt þeir séu alltaf nokkrir, sem álíta það ,,töff“ að segja sem svo: Ég fór nú bara, þótt kallinn og kellingin væru að pípa! í vetur eyðir hún tómstundum sínum til að taka þátt í félagslífi skólans, fer á bókmenntakynningar og tekur þátt í spilakvöldum og svo er hún í blönd- uðum kór skólans, sem Jón Ásgeirs- son stjórnar. Um helgar fer hún oft- ast heim í Hveragerði. Að Auðar dómi á ungt fólk að vera komið vel yfir tvítugt, þegar það gift- ist, og ekki að trúlofast miklu fyrr, því hún trúir ekki á langar trúlofanir. Ef hún væri ekki íslenzk, vildi hún helzt vera Englendingur, því mál þeirra sé skemmtilegt og þjóðfélagið þróað. Af íslenzkum konum sögunnar kysi hún helzt að vera Auður, kona Gísla Súrssonar, því hún var mikill skörungur og þó fórnfús og vildi allt fyrir sinn mann gera. 10. tbi. VIKAN 19

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.