Vikan


Vikan - 07.03.1968, Side 49

Vikan - 07.03.1968, Side 49
skyldi hætta að reykja, hvað sem það kostaði. Fram að þeim tíma höfðu þetta einungis verið smá- skærur hjá okkur; nú hafði hún hins vegar sagt mér algert stríð á hendur. Hún byrjaði á því að skilja öskubakkana eftir í eldhúsinu undir því yfirskini að hún hefði þvegið þá og gleymt að setja þá aftur inn í stofuna. Með þessu móti gat hún neytt mig til að fara fram í eldhús og sækja mér sjálfur öskubakka. Einnig fór það í vöxt, að hún „gleymdi" hvar hún hafði sett eldspýturn- ar síðast. Og hún kvaðst ekki hafa hugmynd um, hvemig stæði á því, að síðustu tveir eða þrír pakkamir í hverju sígarettukart- oni hurfu ævinlega. „Er það mér að kenna, þótt þú reykir svo mikið, að þú vitir ekki einu sinni hvað þú átt marga pakka eftir,“ sagði hún og setti upp fyrirlitningarsvip. Þegar hér var komið sögu tók ég upp á því að fela sígarettu- pakka víðs vegar um íbúðina. Um leið og Myrtle kom upp um einn felustað, fann ég mér annan. — Þetta var orðinn æsandi leikur og býsna spennandi. Bezti felu- staðurinn minn var ofan í kassa með megrunarkexi, sem hún hafði eitt sinn keypt. Þann stað fann hún aldreil Ég veit ekki hversu lengi við hefðum haldið svona áfram, ef ég hefði ekki orðið fyrir því óláni að fótbrjóta mig. Ég datt ofan af stól, þegar ég var að ná í einn sígarettupakka á prýði- legum felustað: upp í efstu hillu í þvottaherberginu bak við nokk- ur handklæði. Þegar ég datt, kom Myrtle æð- andi upp stigann, og þrátt fyrir svíðandi sársauka og hálfgert jrfirlið komst ég ekki hjá því að skynja sigurglottið á bústnu and- liti hennar, þegar hún sagði: „Ég vissi alltaf, að sígarettum- ar mundu verða þinn bani!“ Þegar ég vaknaði aftur til fullr- ar meðvitundar, lá ég í rúminu og Mason læknir var að ganga frá umbúðamiklu gifsi utan um fótinn. Nú var hún orðin staðráðin í, að ég skyldi hætta að reykja hvað sem það kostaði. Fram að þeim tíma höfðu þetta aðeins verið smáskærur hjá okkur. Nú hafði hún hins vegar sagt mér algert stríð á hendur.... „Fáeinar vikur í rúminu, mán- uð á hækjum og svo verður þú orðinn góður,“ sagði haxm við mig glaður í bragði. „Þetta er ekki opið beinbrot, og þú mátt þakka fyrir, að þú skyldir ekki hálsbrjóta þig. Ég lít aftur inn til þín eftir nokkra daga.“ Að svo mæltu fór hann, og þar með var ég orðinn með öllu sam- bandslaus við innheiminn. Ég var enn dálítið ruglaður og óstyrkur og gerði mér ekki ljóst, hvað hafði í raun og vem gerzt, fyrr en Myrtle færði mér morgun- matinn í rúmið daginn eftir. „Þetta var afbargðsgóður mat- ur hjá þér,“ sagði ég við hana um leið og ég teygði mig eftir nýjustu bókinni, sem eftirlætis höfundurinn minn hafði sent frá sér. Hún hafði sótt hana handa mér í bókasafnið. Á þessari stundu var mér mjög hlýtt til hennar, kæri faðir. Það er hverju orði sannara. „Þú ert á margan hátt mjög góð eiginkona, elskan mín,“ sagði ég við hana og hafði þá í huga morgunmatinn, ilmandi kaffið, bókina og nýþvegin nátt- fötin. „Ég er þér þakklátur fyrir svo góða umhyggju, Ijúfan mín. Ég veit, að þú þarft að hafa mik- ið fyrir mér meðan ég ligg.“ Myrtle stóð þegjandi við dym- ar og brosti gleitt. Ég opnaði bók- ina og fálmaði eftir sígarettunum á náttborðinu. Þegar ég varð var við, að þær voru þar ekki, leit ég upp og horfði andtartak framan í Myrtle. Hún brosti enn, og það var sannkallað sigurbros. „Þetta er ekkert hlægilegt," sagði ég og reyndi að sýnast ró- legur. „Komdu með sígarettum- ar mínar!“ „Nei,“ öskraði hún sigri hrós- andi. „Ég hélt þú hefðir lært þína lexíu, þegar þú datzt af stólnum og fótbrauzt þig. Hvað var það sem olli slysinu? Vom það kannski ekki sígaretturnar?“ „Nei, það stafaði af því, að þú neyddir mig til að fela þær. Ég hefði átt að lemja þig, þegar þú byrjaðir á þessum fjanda." „Þú að lemja mig! Ja, heyr á endemi!" Hún hallaði sér yfir rúmstokk- inn, hóf vísifingur hægri handar á loft og sagði með svo sterkum áherzlum að kinnarnar skulfu: „Ég skal láta þig vita það, að þú færð engar sígarettur. Ég mun elda góðan mat handa þér og færa þér hann í rúmið; ég mun dekra við þig eins og ég get og reyna að gera þér leguna sem þægilegasta. En þú færð ekki eina einustu sígarettu." Hún sléttaði hrukkur á kjóln- um í mittinu, sem raunar ekkert var, og hélt síðan áfram: „Ég ætla ekki að horfa upp á þig fá lungnakrabba. Núna er einmitt rétti tíminn fyrir þig til að hætta að reykja.“ Hún safnaði saman diskunum, gekk þungstíg út úr herberginu, og þar með var það ákveðið. — Hvorki bænir né formælingar gátu breytt ákvörðun hennar. Hún var óhagganleg — eins og klettur. Eftir fyrsta daginn var ég of stoltur til að gera nokkrar ráðstafanir til að verða mér úti um tóbak. Enda vissi ég, að von- lítið var, að mér tækist það. Ég óskaði þess heitt og inni- lega, að ég hefði slasað mig á einhvem annan hátt, til dæmis handleggsbrotnað. Þá hefði ég þó að minnsta kosti verið rólfær. Myrtle stóð við orð sín. Hún stjanaði og dekraði við mig eins og hún mögulega gat Hún lét flytja sjónvarpið upp í herbergið til mín, hún sótti fyrir mig nýj- ar bækur á bókasafnið og keypti handa mér alls konar tímarit. Og ekki var maturinn dónalegur hjá henni. En löngunin í tóbak varð stöðugt sterkari. Það var sama hvað ég tók mér fyrir hendur eða hvert ég leit Alls staðar þurfti eitthvað að blasa við mér, sem minnti mig á reykingar. Ég hafði aldrei fyrr gert mér Ijóst, að starfsemi sjónvarpsins byggðist í raun og veru á aug- lýsingum tóbaksframleiðenda. Ég lá hreyfingarlaus og hjálparvana í rúminu og horfði á hvem stór- leikarann á fætur öðrum lýsa dásemdum tóbaksreykinga. Svit- inn spratt fram á enninu á mér og stundum titraði ég og skalf. Ekki tók betra við, ef ég reyndi að blaða í tímaritunum. Um leið og ég opnaði þau, blöstu við mér litríkar tóbaksauglýsingar. Og ef ég opnaði bók, þurfti ég endi- lega að detta ofan á skáldlega lýsingu á því, hvemig söguhetj- an sogaði að sér reyk af hreinni nautn. Næstu tveir dagar ætluðu aldr- ei að líða, enda þótt Myrtle hefði ekki undan að fylla sælgætis- skálina, sem hún hafði látið á náttborðið hjá mér í staðinn fyr- ir öskubakkann. Ég bruddi sæl- gætið í gríð og ergi, en ekkert dugði. Gremja mín og geðillska yfir tóbaksleysinu fóru vaxandi með hverri mínútu sem leið. „Þú lifir þetta af. Og sá dagur kemur, að þú munt verða mér þakklátur fyrir að hafa gert þetta,“ sagði Myrtle hughreyst- andi. „Þakklátur!" hvæsti ég. „Um leið og ég kemst á lappir aftur, fer ég og stíg ekki framar fæti inn í þetta hús!“ Fyrstu dagana reyndi ég að hugsa ekki um hana, en nú stóðst ég ekki lengur mátið. Hún var orðin orsök og ímynd kvala minna og vonleysis. Á fjórða degi braut ég odd af oflæti mínu og reyndi að hræra hjarta hennar til meðaumkunar. „Bara eina,“ grátbað ég. „Það skaðar ekkert, þótt ég reyki eina sígarettu." „Jú, það skaðar víst. Þá sækir allt í sama farið hjá þér aftur,“ svaraði hún miskunnarlausri röddu, um leið og hún beygði sig niður á gólfið til þess að taka upp blöð, sem ég hafði lagt þar frá mér. „Þú gerir þér það kannski ekki ljóst, en þú ert þegar kominn yf- ir erfiðasta hjallann." Hún var svo sigurviss og ör- ugg, að ég gat ekki þolað hana lengur. Án þess að hugsa mig um, sveiflaði ég brotna fætinum og hjó gifsinu, sem vóg sextán pund, beint í höfuðið á henni. Ég öskr- aði af sársauka og vonleysi og hjó fætinum aftur og aftur í höf- uðið á henni. Loks kenndi ég svo til, að ég féll í yfirlið. Dyrabjallan vakti mig, og ég heyrði rödd Masons læknis niðri í forstofunni: „Er nokkur heima?“ Lögfræðingur minn hafði það eitt fram að færa mér til máls- bóta, að ég hefði verið gripinn stundarbrjálæði. Og enda þótt maður eigi heimtingu á að vera dæmdur af jafningjum sínum, þá er ég sannfærður um, að enginn stórreykingamaður hefur verið í hópi kviðdómendanna. En hvað um það: Mér verður þó altént leyft að reykja nokkrar sígarett- ur að lokum — í dauðaklefanum. En það sem mér fellur þyngst, kæri faðir, er, hversu rétt Myrtle hafði fyrir sér. Enda þótt hún sé ekki lengur á meðal okkar, heyri ég stöðugt rödd hennar hljóma í eyrum mínum: „Var ég ekki búin að segja þér, að sígarettumar yrðu þinn bani!“ Augnablik, hr. fangavörður: — Ég er ekki búinn að reykja síga- rettuna mína ennþá.... ★ 10. tbi. VIKAN 49

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.