Vikan - 09.05.1968, Blaðsíða 47
Þcmnig er barnið, þegar það er nýbaðað í hreinum fötum og með hrein rúmföt, ónægt og öruggt.
Talið er betra að það hafi snuð en sjúgi fingurna, en sogþörf barnsins er því meðfædd. — Snuðið
þarf að hafa rétta lögun, svo að það eyðileggi ekki góm barnsins, og það þarf auðvitað að gæta
fyllsta hreinlætis við meðferð þess. Enginn annar, heldur ekki móðirin, mói setja það upp [ sig, og
öðru hverju þarf að sjóða það og oft að skola af því. Það má heldur ekki verða of slitið, nýtt snuð
í hverjum mánuði ætti að vera reglan. Takið snuðið aldrei fyrirvaralaust af barninu, þótt það sé
farið að eidast, reynið heldur að smávenja það af því, t. d. með því að láta það fylgjast með
hvernig sfðasta snuðið verður ónýtt, þegar barnið er orðið það stálpað, að það skilur það.
Sarnið er tilbúið í baðið. Framhandleggur og
önnur höndin styður við hnakka barnsins og
hefur öruggt tak um annan handlegg þess.
Með hinni höndinni er haldið um lendar og
upp á bak.
Áður en hafizt er handa, þarf allt að vera til
reiðu: Fötin, innst sem yzt, sápa, krem, púð-
ur, bómull, bómullarpinnar, naglaskæri, hár-
bursti, TVÆR þvottaskálar og tveir þvotta-
pokar.
Bezt er að sitja á lágu og þægilegu sæti, þar
sem auðvelt er að ná til alls, sem áður er
talið, og á gólfinu við sætið á að vera plast-
fata til að setja óhreinu fötin í. Takið eftir
takinu um fætur barnsins, til þess að það
sprikil elcki óþægilega meðan bleian er tekin
af — karlmenn kalla það flöskutak, eins og
verið sé að halda á tveim flöskum, en nú á
dögum er ætlazt til að pabbarnir skipti á
barninu til jafns við mæðurnar.
Þetta er stöðugt tak á barninu, þegar
er snúið á bakið, en eigi að snúa því á grúfu,
eiga þumalfingurnir að vera framan við axl-
ir barnsins og hendurnar aftur á bakið.
Nú er það álitið, að náin tengsl móður og barns
gcti haft úrslitaáhrif á þroska þess og sálarlíf. Þess
meiri blíðu dg umhyggju, sem barnið verður að-
Vatnið á að vera 36 stiga heitt. Sé ekki til
hitamælir, er gott að reyna vatnið með oin-
bcganum, en ekki hendinni, því að hún er
vanari hita og ekki jafnviðkvæm. Setjið barn-
ið hægt og gætilega ofan í vatnið. Sleppið
aldrei gripinu um handlegg barnsins, meðan
það er baðað. Annar þvottapokinn er notað-
ur á andlit og efri hluta líkamans, en hinn á
neðri hlutann.
Þvoið fyrst andlit og hár, andlitið sápulaust,
en milda barnasápu á hár og kropp. Hafi
barnið flösu eða skán á hárinu, má nudda
1% salicylvaselíni í hársvörðinn áður en
barnið er baðað. Varizt að koma fast við
mjúka blettinn á höfðinu.
Snúið aldrei barninu meðan það er baðað,
fyrr en það getur sjálft haldið höfði. Stingið
hendinni inn undir barnið að neðanverðu og
upp á bakið, þegar það er þvegið þar.
Vefjið barnið inn í nógu stórt og mjúkt
frotté-handklæði eftir baðið. Þurrkið það með
því að þrýsta handklæðinu að húðinni, en
nuddið aldrei.
Með litlum þar til gerðum bómullarpinnum
er hægt að hreinsa ytri eyru barnsins, en
farið varlega að því, svo að hljóðhimnan
skaddist ekki. Sams konar pinnar eru notaðir
tií að hreisna nasirnar.
njótandi, þess meiri líkur á heilbrigðu barni. Það er
af sem áður var, þegar ekki mátti taka barnið upp
nema rétt til að skipta á því og gefa því að borða,
og þegar það var jafnvel talið hollt að láta það
gráta þindarlaust, þar til það sofnaði. A myndunum
hér með sjáið þið hvernig aftur er farið að klæða
barnið og undirbúa bað þess á hnjám móðurinnar,
því að þannig finni barnið til meira öryggis og til
nærveru móðurinnar. Venjulega þarf að þvo barnið
og skipta á því fimm sinnum á sólarhring, helzt fyrir
máltíðirnar, svo að barnið geti notið þeirra þurrt
og hreint og sveínsins á eftir. Einu sinni á dag er
það baðað alveg og skipt um föt á því innst sem yzt.
í hin skiptin er það þvegið vel að neðan, um leið
og skipt er á því. Sömuleiðis andlit og hendur.
Þegar þarf að skipta á því oftar, er þvottur óþarfur.
Gætið þess, að þvo ykkur vel um hendurnar, áður
en farið er að eiga við barnið, og séu þær kaldar,
ætti að halda þeim um stund í volgu vatni áður en
snert er á barninu. Hafið allt tilbúið, áður en barnið
er baðað og gefið ykkur tíma til að gera baðtímann
að rólegri ánægjustund, bæði ykkar vegna og ekki
síður barnsins.
Smyrjið kremi eða púðrið í ailar húðfellingar
daglega: undir hökuna, í hnakkagrófina,
undir hendur, kringum úlnlið, olnboga
og hné og þó sérstaklega kringum þvag-
færin, og reyndar alls staðar þar sem húðin
er rauð og þurr.
Barnið þolir oft illa plast fyrstu vikurnar, en
sé það notað, eru plastbleiur hentugri en
buxur, því að teygjan á buxunum að ofan og
á skálmunum gerir þær loftþéttari og getur
þar að auki ert barnið á þeim stöðum. Blei-
an er bundin á hliðunum, eða límd saman
með glæru límbandi. Hafi barnið fengið
rauða og sára húð að neðan, þolir það
ekkert plast utan yfir venjulega bleiju.
Þegar börn eru færð í ermar á að stinga
þumalfingri, visifingri og löngutöng inn í
ermina og taka með þeim um hönd barnsins
og draga hana út.
Síðast er hárið burstað með mjúkum barna-
bursta.
Þá á barnið að vera orðið hreint og ilmandi
tilbúið til að borða og sofa. Svefnpoki, sem
er eins og skyrta að ofan er hentugur sem
svefnföt fyrstu mánuðina, en það þarf að
gæta þess, að hann sé nógu víður, svo að
barnið geti hreyft sig vel.
46 VIKAN 18-tbl'
18. tbi. VIKAN 47