Vikan


Vikan - 09.05.1968, Blaðsíða 48

Vikan - 09.05.1968, Blaðsíða 48
r RAFHA-HAKA 500 þvottavélin yðar mun ávallt skila yður full- komnum þvotti ef þér aðeins gætið þess að nota rétt þvottakerfi, þ. e. það sem við á fyrir þau efni er þér ætlið að þvo. Með hinum 12 fullkomnu þvottakerfum og að auki sjálfstæðu þeytivindu- og dælukerfi, leysir hún allar þvottakröfur yðar. Þvottakerfin eru: 1. Ullarþvottur 30°. 7. Viðbótarbyrjunarþvottur 90°. 2. Viðkvæmur þvottur 40°. 8. Heitþvottur 90°. 3. Nylon, Non-Iron 90°. 9. Litaður hör 60°. 4. Non-Iron 90°. 10. Stífþvottur 40°. 5. Suðuþvottur 100°. 11. Bleiuþvottur 100°. 6. Heitþvottur 60°. 12. Gerviefnaþvottur 40°. Og að auki sérstakt kerfi fyrir þeytivindu og tæmingu. RAFHA-HAKA 500 er sérstak- lega hljóðeinangruð. — Getur staðið hvar sem er án þess að valda hávaða. Öruggari en nokkur önnur gagnvart forvitnum börnum og unglingum. Hurðina er ekki hægt að opna fyrr en þeytivindan er STÖÐV- UÐ og dælan búin að tæma 'vélina. HWflB EB ORKIN HANS NOfl? ÞaS er alltaf sami leikurinn í henni Yndisfríð okkar. Hún hefur falið örkina hans Nóa einhvers staðar í blaðinu og heitir góð- um verðlaunum handa þeim, sem getur fundið örkina. Verð- launin eru stór konfektkassi, fullur af bezta konfekti> og fram- leiðandinn er auðvitað Sælgætisgerðin Nói. Síðast er dregið var hlaut verðlaunin: Jóhanna Gísíadóttir, Borgarholtsbraut 76, Kópavogi. Vinnihganna má vitja í skriístoíu Vikunnar. Nafn ____ __ Heimili .... Örkln er á bls. og brosti við lækninum. Hann var næstum strákslegur í fram- an af æsingi. Hins vegar varð engin hrifning séð á andliti Dobie. Hún sat þögul og hugsi, eins og hún væri að velta því fyrir sér hvaða áhrif endurkoma Lísu hefði á framtíð hennar. — Hugsa sér að þú skulir í rauninni vera Lísa! sagði lækn- irinn. Nú hugsa ég að Katarina verði hissa! Og hvílík frétt í þorpinu! Og blöðin ... bíðið bara þangað til blöðin fá pata af þessu.... Rick Fraser sneri sér að hon- um með ofsa. — Þetta má ekki spyrjast, sagði hann grimmdarlega. — Ekki fyrr en óyggjandi sönnun- argögn hafa verið lögð fram. — Nei, flýtta Barbara sér að segja. — Ef blöðin fara að hnýs- ast, þá. ... — Hvað þá? Hann leit hörku- lega á hana. — Þá yrðu fósturforeldrar mínir kannske illa útL Spennan fór að taka á hana. Hún var þreytt og full af tóm- leika, og hrædd um að geta ekki svarað í samhengi eí Rick Fras- er tæki að spyrja hana út úr. Hann gæti orðið mjög hættuleg- ur og myndi sjálfsagt ekki auð- sýna neina miskunn, ef hann fengi að vita sannleikann. En sem betur fór kom Daisy í þvi biii og sagði að Lady Mac- farlane væri vakandi og spyrði eftir Lísu. Hún hafði ekki kom- ið til sjúklingsins í nokkra klukkutíma og varð undrandi á því hvað þeirri gömlu virtist hafa farið fram. Vaxfölvinn var horfinn og það var komið líf í augun. Hún féll á kné við rúmið, tók hrukkótta, gamla höndina í sína og lagði að kinn sér. — Þú hefur ennþá fallega hárið þitt, sagði gamla konan og srauk henni yfir hárið. í öllum hamaganginum niðri í salnum hafði hún verið farin að velta því fyrir sér hvort þetta væri í rauninni vert allra þeirra óþæginda, sem það kostaði. En nú vissi hún að svo var. Alia ævi hennar höfðu aðrir verið að gera eitthvað fyrir hana, verið að reyna að gera hana hamingju- sama með gæzku og kærleika. Nú var röðin komin að hexmi að gefa, að gera eitthvað fyrir aðra manneskju. — Herbergið þitt er ennþá óhreyft, sagði veikburða röddin. — Það hefur beðið eftir þér í ölt þessi ár. Læknirinn bærði órólegur á sér fyrir aftan Barböru. — Við megum ekki ofþreyta hana núna, sagði hann. — Lady Macfarlane, sagði hann, — þér verðið nú að taka þessa töflu hér og svo verðið þér að sofa — ekki tala meira í dag. Á morgun verð- ið þér áreiðanlega sterkari. 48 VIKAN 18 tbl-

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.