Vikan


Vikan - 09.05.1968, Blaðsíða 23

Vikan - 09.05.1968, Blaðsíða 23
1 HÉR F.R SAGT FRÁ NÝRRI KENNINGll, SEM BANDARÍSKIR SÁLFRÆÐINGAR HAFA SETT FRAM. SAMKVÆMT HENNI ER ÞAÐ FYRST OG FREMST RÖÐ SYSTKINANNA, SEM MÓT- AR PERSÖNULEIKA ÞEIRRA OG RÆÐUR ÞVÍ, HVORT ÞAU VERÐA FARSÆL í LÍFINU EÐA EKKI. eldranna rætast eða verða að engu. En ef það fær að baða sig í öllu því ástríki og aðdáun, sem foreldr- ar ausa gjarnan yfir einkabarn sitt, þá verður það sjálfumglatt og eig- ingjarnt. Það getur líka orðið inni- lokað og einmana og sérviturt. Einkabarn á oft ! erfiðleikum með að lifa eðlilegu og hamingjusömu h jónalíf i. Eins og allar kenningar fær þessi ekki staðizt í smáatriðum. Nú þegar geta lesendur eflaust nefnt dæmi, sem koma ekki heim og saman við hana. En höfundar henn- ar halda því fram, að hún sé rétt í meginatriðum. Sérstaklega þykir sannað, að elzta barnið hafi ævinlega bezt skilyrði og njóti mestrar velgengni í lífinu. Við skulum hugsa okkur ung hjón, sem hafa eignazt sitt fyrsta barn. Sakir vankunnáttu og reynslu- leysis eru þau svolítið taugaóstyrk og taka uppeldi barnsins mjög al- varlega. Ef eitthvað ber út af, verða þau óróleg, og fylgja ná- kvæmlega reglum og fyrirmælum í bókum um barnauppeldi. En þeg- ar annað barn þeirra fæðist eru þau ekki lengur óstyrk og óákveð- in. Þess vegna fær annað barnið miklu eðlilegri meðhöndlun. And- rúmsloftið á heimilinu er ekki leng- ur þrungið spennu, heldur glaðlegt og áhyggjulaust. Með þetta í huga er ekki að undra, þótt skapgerð elzta og næst- elzta barns sé gerólík. Einnig benda höfundar kenning- arinnar á, að aldursmunur syst- kina hafi mikið að segja. Ef nítján mánuðir eða minna er milli elzta og næstelzta barns, þá er vel lík- legt að hinu síðarnefnda takist að apa allt eftir elzta barninu og taka það sér til fyrirmyndar í einu og öllu. En ef aldursmunurinn er meira en nítján mánuðir, þá tekst yngra systkininu síður að hafa ! fullu tré við það elzta. Gott dæmi um samvizkusemi og ábyrgðartilfinningu elzta barnsins er Elísabet Englandsdrottning. Þeg- ar ! æsku var hún gerólík systur sinni, Margréti. Elísabet er dæmi- gert elzta barn. Hún varð snemma fullorðin og alvarleg. Margrét sýndi hins vegar strax einkenni næstelzta barns: léttlyndi og ábyrgðarleysi. Georg konungur VI. hafði mikið dálæti á Margréti, en hann sagði alltaf að byrðar krún- unnar væru í öruggum höndum hjá hinni samvizkusömu eldri dóttur sinni, Elísabetu. Einkabarnið á erfitt með að sam- lagast öðru fólki, eins og áður er sagt. Brezka skáldið James Kirkup var einkabarn og hann hefur lýst þessu mjög vel í bókum sínum: „Eg var einmana barn og kaus helzt að fá að vera í friði. En und- ir niðri dreymdi mig um að leika mér með öðrum börnum og hafa samskipti við þau. Mig langaði ákaft til að verða hluti af heild. Þessi tvískinnungur varð upphafið að sálarfiækju, sem ég þjáðist af i mörg ár." Þegar systkini eru fleiri en þrjú, er eins og sagan endurtaki sig. Mjög oft verða fjórða, fimmta og sjötta barnið eins og fyrsta, annað og þriðja. Þó er þetta alls ekki ein- hlítt. Og yngsta barnið í stórum systkinahópi hefur jafnan nokkra sérstöðu og á oft við mikla erfið- leika að etja. Gjarnan eru peningaráð lítil, þar sem börnin eru mörg. Og for- eldrarnir hafa ef til vill svo mikið að gera að þeir geta ekki sinnt öll- um börnum sínum sem skyldi. Þetta kann að bitna á yngstu systkinun- um. En tilhneigingin til „endurtekn- ingar" er athyglisverð í fjölskyld- um, þar sem fjárhagsvandræði eru ekki fyrir hendi. Kennedy-fjölskyld- an fræga er gott dæmi um þetta. John, sem varð forseti, var næst- elztur af niu systkinum. En hann viðurkenndi fúslega að eldri bróð- ir hans, Jósep, hefði orðið forseti, ef hann hefði ekki farizt i stríð- inu. Jósep var álitinn gáfaðastur og efnilegastur allra systkinanna. Sannleikurinn er sá, að John Kennedy verður minnzt sem hug- sjónamanns miklu fremur en fram- kvæmdamanns. Hann átti oft f erf- iðleikum með að koma málum sín- um ( gegnum þingið. Það er ekki fjarri lagi að segja, að John Kenne- dy hafi hegðað sér eins og næst- elzta barn, sem hefur orðið að tak- ast á herðar skyldur elzta barnsins. Þriðja og fjórða barn Kennedy- fjölskyldunnar eru stúlkur, Rose- marie og Kathleen. Rosemarie náði aldrei fullum andlegum þroska en Kathleen fórst í flugslysi. En fimmta barnið, Enucie, er athyglisvert. Hún hefur unnið mikið að félagsmál- um og hefur sérstaklega barizt fyrir aukinni hjálp til handa van- gefnum börunm. Sjötta barnið er einnig stúlka, Framhald á bls. 34 18. tbi. VIKAN 23

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.