Vikan - 13.06.1968, Page 6
"N
HatidJiíatkatÍit
I X IM I
«JTI
BILSKÚRS
HLRÐIR
ýhhi- & 'Útikuriir
H D. VILHJALMSSDN
RANAREDTIJ 1 ?. SIMI 19669
BOL ER AÐ, EF BARN
DREYMIR ....
Kæri Póstur!
Þar sem ég hef séð, að
þú greiðir vel úr vandræð-
um fólks, langar mig til að
biðja þig að ráða fyrir mig
tvo drauma. Ég er trúlofuð
og er í húsmæðraskóla.
Fyrri draumurinn er
svona: Mér fannst ég liggja
í rúminu mínu og mér varð
litið undir sængina. Þá sé
ég, að ég hafði verið að
missa fóstur. Það lá í rúm-
inu, svona tveggja mánaða
gamalt, og rúmið var allt
atað í blóði Ég kom við
naflastrenginn. Mér fannst
ég ekki geta kallað á hjálp.
Svo kom vinkona mín og
náði í skólastýruna, Það
var svo einkennilegt, að
mér fannst ég vera bæði
heima hjá mér og hérna í
skólanum. í þessu fannst
mér skólastýran, kærastinn
og læknirinn koma að.
Læknirinn þrífur strax
undir lakið og lyftir mér
upp og ætlar að bera mig
út, en kyssir mig um leið.
Ég varð bálreið og vaknaði
í sama bili. ’Ég hef aldrei
séð þennan lækni og varð
svona reið yfir því, að kær-
astinn skyldi standa og
horfa á manninn kyssa mig.
Ég tek það fram, að ég á
ekki von á barni.
Seinni drauminn dreymdi
mig fjórum dögum seinna:
Mér fannst ég vera kominn
heim og var mér þá til-
kynnt, að kærastinn hefði
farizt. Þetta varð mér mik-
ið áfall og enn meira, af
því að við höfðum ekki átt
neitt barn. Var ég nú al-
veg sinnulaus. Mér fannst
mamma vera að skamma
mig fyrir að hafa ekki ver-
ið orðin ófrísk, svo að ég
hefði getað átt eitthvað til
minningar. Vaknaði ég upp
frá þessu.
Vertu sæll,
Kolgríma.
„Böl er að, ef barn
dreymir, nema sveinbarn
sé og sjálfur eigi,“ segir
gamalt, íslenzkt máltæki.
Við ráðum drauminn þann-
ig: þú og kærasti þinn
munuð slíta samvistum
ykkar. I»ú tekur það mjög
nærri þér í fyrstu, en ekki
líður á löngu þar til „lækn-
irinn“ kemur og græðir sár-
in. Þú kynnist sem sagt
öðrum manni og giftist
lionum. Það fer vel á með
ykkur og sambúð ykkar
verður farsæl. En lengi
muntu sakna þíns gamla
kærasta ofurlítið og telja
þig sjálfa eiga sök á, að
samband ykkar fór út um
þúfur. Að lokum viljum við
taka enn einu sinni fram,
að við erum engir sérfræð-
ingar í draumum og ráðn-
ingar okkar ber að taka
meir í gamni en alvöru.
EINS OG KARFAR
Kæri Póstur!
Við erum hérna fjórar
stelpur, sem roðna svo mik-
ið, ef eitthvað er sagt við
okkur. Það þarf ekki meir
en kennarinn skammi okk-
ur, þá verðum við eins og
karfar. Svo er sagt við okk-
ur á eftir: „Mikið svaka-
lega voruð þið rauðar“. Við
erum alveg að verða vit-
lausar á þessu. Getur þú
ekki hjálpað oklcur?
Með kærri kveðju,
Fjórar rauðar.
Blygðunarsemi er ríkur
þáttur í sálarlífi ungra
stúlkna. Það er engin
skömm að því að roðna,
allra sízt, þegar maður er
skammaður. Þvert á móti
ber það vott um heilbrigð-
ar tilfinningar og kveniegt
eðli — og þið gctið verið
stoltar af því.
LEIKLISTARAHUGI
Kæri Póstur!
Við höfum áhuga á leik-
list. En við höfum ekki
hugmynd um, hvernig við
eigum að búa til svið og úr
hvaða efni. Svaraðu okkur
fljótlega. Við vonum að þú
getir leyst úr vandanum.
Og við vonum líka að þú
birtir þetta bréf. Við bíð-
um eftirvæntingarfullir.
Virðingarfyllst,
Litlir leikarar.
Ævar Kvaran liefur sam-
ið ágæta bók um leiklist.
Hún er sérstaklega ætluð
áhugafólki, sem er komið
skammt áleiðis á hinni
þyrnum stráðu braut leik-
listarinnar. Þið skuluð
verða ykkur úti um hana
til aö byrja með.
y
6 VIKAN »■tbl-