Vikan


Vikan - 13.06.1968, Síða 9

Vikan - 13.06.1968, Síða 9
MELINA MERCOURI og eigimaður hennar, Jules Dessin, voru líka í þessari veizlu. Hún hefur gert mikla lukku í Bandaríkjunum, með leilc sínurn í „Aldrei á sunnudögum“, sem hún leikur nú á sviði. Enginn veit hvenær henni öðlast að sjá sitt elskaða föðurland aftur. BANKARÁN UPP Á FJÖGUR HUNDRUÐ MILLJÓNIR KRÓNA Viðflrhlffidniosar á LOFT og VEGGI Höfum fyrirliggjandi ýmsar tegundir s.s.: FURU OREGON PINE EIK ÁLM ASK CAVIANA GULL-ÁLM TEAK Harðviðarsolan sj. Þórsgötu 13. Símar 11931 & 13670. Kvikmyndin um glæpahjúin Bonnie og Clyde hefur hlotið gífurlega lýðhylli, svo að sumum þykir nóg um, að minnsta kosti bankamönnum í Bandaríkjunum. Þar hefur bankaránum nefni- lega stórfjölgað síðan farið var að sýna myndina. Árið sem leið voru þar fram- in þriðjungi fleiri bankarán en 1966. Alls voru framin á árinu eitt þúsund sjö hundruð og fjörutíu rán, eða að meðaltali sjö rán á dag, segir í skýrslu frá alríkislögreglunni FBI, Ráns- fengur ræningjanna nemur allt að fjögur hundruð milljónum króna. Tryggingafélögin, sem verða að bæta skaðann, hafa reynt að finna út ástæðuna til þessa aukna ránskapar. Og margir hafa orðið til að stinga upp á „Bonnie og Clyde“, kvikmyndinni um glæpahjúin, sem skjóta sér braut í lífinu. Fleiri ástæður geta að vísu komið til greina. Til dæmis sú að bankabyggingarnar nýju eru tiltölulega illa búnar til að mæta árásum ræningja. Og þar að auki hafa bandarískir bankar, líkt og evrópskir, undanfarið hraðfjölg- að hjá sér útibúum. . En víst er um það að fjölgað hefur þeim afbrotum, þar sem fyrirmyndin virðist sótt til Bon- niear og Clydes. f Georgíu fóru ung skötuhjú í þriggja daga ránsferð og skutu á þeim tíma fjórar manneskjur, sem aldrei höfðu gert þeim minnsta mein. Annað par rændi bensínstöð í Idaho, og er þau höfðu verið handtekin viðurkenndu þau að myndin um Bonnie og Clyde hefði gefið þeim hugmyndina. Og maður, sem reyndi að líta út eins og Clyde, kom nýlega inn í banka í White Plains í New York-ríki. Hann gekk til eins gjaldker- ans, sem einnig hafði séð mynd- ina. Ræninginn tók upp skamm- byssu og heimtaði peninga. — Gjaldkerinn svaraði furðu lost- inn: „Þér hljótið að vera að grín- ast.“ Hann var skotinn niður. Varúðarráðstafanir gagnvart ræningjunum virðast vera ónóg- ar. Bankarnir hafa myndavélar í hverju horni, leynilegt aðvör- unarkerfi og sumir meira að segja seðla sem sprauta táragasi. Ræninginn kemur inn, fær af- henta peninga, treður þeim á sig og nokkrum mínútum síðar fara þeir að sprauta táragasi. Þá er gert ráð fyrir að ræninginn verði óvígur um hríð. f------------- LITAVER Pilkington’s postulín veggflísar Stærðir: 7V2 cm x 15 cm og 11 cm x 11 cm. Barrystaines linoleum parket gólflísar Stær'ðir: 10 cm x 90 cm og 23 cm x 23 cm. GOTT VERÐ V 23. tw. VIKAN 9

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.