Vikan


Vikan - 13.06.1968, Qupperneq 15

Vikan - 13.06.1968, Qupperneq 15
Eurovision söngvak@ppnirð 1968 Þau voru meðal þátt- takenda í Eurovision söngvakeppninni, frá vinstri: Claes Göran Hederström frá Sví- þjóð, Kristina Hau- tala frá Finnlandi, Odd Börre frá Nor- egi og norska söng- konan, Wenche Myhre, sem söng fyr- ir Þýzkaland. Massiel hin spánska —- hún sigraði í Euro- vision með iaginu „Ea, la, Ia“. Cliff Kichard lilaut annað sæti í keppninni fyrir lagið „CongratuIations“, og munaði að- eins einu atkvæði á Iagi hans og vinnings- laginn. sinni á ári hverju efna samtök sjón- varpsstöðva í Evrópu — Eurovision — til söngvakeppni, þar sem kynnt er eitt lag frá hverju aðildarlandi og bezta lagið síðan valið og verðlaunað með titlinum „Grand Prix“. Að þessu sinni fór keppnin fram í Royal Iiall í London, og komu þar fram 22 söng- varar frá 17 löndum. Meðal þeirra, sem fram komu, voru fulltrúar þriggja frændþjóða okkar, Noregs, SvíþjóÖar og Finnlands. Dan- ir sendu ekki fulltrúa til þessarar keppni af einhverjum ástæðum og þá ekki heldur ísland, sem þó er aðili að Eurovision. Þess- ari söngvakeppni var sjónvarpað samtímis og um leið og hún fór fram um alla Evrópu, og mun láta nærri, að um tvö hundruð millj- ónir manna hafi fylgzt með henni. Bretar bundu miklhr vonir við sinn full- trúa, Cliff Richard, og lagið, sem hann söng, nýtt lag eftir Phil Coulter og Bil Martin, en það heitir Congratulations. Höfundar þess sömdu einnig lagið „Puppet on a String“, sem varð númer eitt í þessari keppni í fyrra og flaug á augabragði um allar jarðir. Því var raunar slegið föstu í brezku músikblöðun- um, að Bretland mundi einnig bera sigur úr býtum að þessu sinni. En svo fór þó ekki. Öllum á óvart (að því er brezku blöðin herma) sigraði senjóríta ein frá Spáni, Mass- iel, sem heitir þó réttu nafni Maria de Los Angeles Santamaria, en hún er ættuð frá Madrid. Og lagið, sem hún söng, hét ein- faldlega „La, la, la“. Ekki hefur þessi sigur senjórítunnar þó gengið þrauta- eða hljóðalaust fyrir sig í Englandi. Brezkir vilja halda því fram, að hér sé um að ræða stælingu á laginu „Death of a Clown“ eftir vin vorn Deve Davies í Kinks. Eru nú málaíerli í fullum gangi vegna þessa — og hei'ur útgáfufyrirtæki það, sem gætir réttar Davies bræðranna í Kinks höfð- að mál á hendur Philips hljómplötufyrirtæk- inu. Ekki er enn útséð um, hvernig mál þetta verður til lykta leitt, 23. tbl. VIKAN 15

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.