Vikan


Vikan - 13.06.1968, Qupperneq 20

Vikan - 13.06.1968, Qupperneq 20
efní, sem verður til úr þeirri ólgu, en tvíburarnir klofningu einingarinnar, skiptingu hennar milli tveggja póla, karllegs og kvenlegs. Þeirra veröld er ver- öld andstæðnanna. Persónuleik- inn er klofinn milli þess með- vitaða og hins ómeðvitaða. í goðafræðinni táknar ljósið hið fyrrnefnda, myrkrið hið síðar- talda. Hliðstæðar andstæður eru himinn og jörð, hægri og vinstri, karl og kona, ég og þú, hlutlægni og óhlutlægni, fortíð og framtíð. Þessar andstæður og fleiri eru áhrifamiklar í sálarlífi tvíbura- menna. BÖRN MERKÚRS Stjarna sú er mestu ræður hjá tvíburunum er Merkúr, eða Her- mes, eins og hann hét hjá Grikkj- um. Hann er nær sólu en nokk- ur önnur pláneta og líka hrað- skreiðari. Þetta kemur vel heima við það að hann er tengdur forn- guði þeim með sama nafni, sem gegndi sendiboðastarfi fyrir goðahirðina á Ólympi. Þar fyrir utan hafði þessi greindi og kviki guð margt fyrir stafni. Hann hafði áhuga á ýmiskonar fagur- fræðilegum menntum, kaupskap, ferðalögum og fleiru og fleiru. Sem eðlilegt má kalla, gætir eig- inleika hans mjög meðal tví- buramenna. Þau eiga mjög auð- velt með að stofna til hverskon- ar tengsla við annað fólk, ger- DAGUR ÞORLEIFSSON TÓK SAMAN LOFTKENND ÞRENNING Merki dýrahringsins skiptast í þrenningar, sem kenndar eru við höfuðskepnurnar: eld, vatn, loft og jörð. Hrúturinn er eldlegur, nautið jarðrænt. Þriðja merkið í dýrahringnum, tvíburarnir, er hinsvegar ásamt voginni og vatnsberanum í þrenningu þeirri, er við loftið er kennd. Þetta merki drottnar yfir tímabilinu frá tuttugasta og fyrsta maí til tuttugasta og fyrsta júní. Þetta er þriðji og síðasti kafli vorsins; og grös og blóm eru sprottin úr jörðu og teygja krónur og öx móti sól og birtu og draga úr andrúmsloftinu þrótt og næringu til frekari þroska. f sambandi við lofttáknið er það einnig, að önd- unarfærin eru tvíburamennum sérlega viðkvæm og miklvæg. Tvíburarnir eru, eins og ljóst má vera, tvær verur, oft sýndir sem tveir unglingar sem haldast í hendur. Það ber vott um tví- eðli. Hrúturinn táknar frumólgu lífslindarinnar, nautið hið fasta ast miðlarar og milliliðir ann- arra, kunna illa kyrrsetum og eru fljót að semja sig að nýjum staðháttum. Þau hneigjast og mjög til náms og rannsókna. Þau búa oft yfir skarpri greind, eru gefin fyrir hugleiðingar, bóklest- ur og einnig og ekki síður efna- leg gæði, verzlun og atvinnu- rekstur. Einnig hér kemur tví- eðli tvíburanna fram: áhugi á tímanlegum verðmætum jafn- framt eilífum. Tvíburamenni, sem fædd eru við sterk áhrif frá Merkúr, eins og algengast er með þau, eru yfirleitt viðbragðssnögg, skarpgreind og fljót að skilgreina hlutina hleypidómalaust. Þau eru oft heldur ófyrirleitin, jafnvel tillits- og samvizkulítil að margra dómi, óforskömmuð og lifandi í andanum, gædd ríku í- myndunarafli og oft frábærlega glettinn og gamansöm. Bylting- armaðurinn Marat, tónskáldið Offenbach og skáldkonan Fran- cois Sagan hafa verið sögð dæmi- gerðir Merkúr-tvíburar. Hinn vinsæli óperukarakter Fígaró hefur einnig verið talinn ágætt dæmi um slíka manngerð. Um áhrif annarra himintungla í merkinu er þetta helzt að segja: Sólin skerpir að jafnaði þá eiginleika, sem dæmigerðastir eru taldir fyrir tvíburamenni. Tunglið — hraðskreiðasti himin- hnötturinn og hér í því stjörnu- merkinu, sem meir en nokkurt annað er tengt hraða og hreyfan- leik — framleiðir við þessar að- stæður heldur taugaóstyrkar og duttlungafullar manneskjur, sem láta umhugsunarlítið undan löngunum stundarinnar. Sem betur fer er oft hægt að virkja svo órólegt og víðförult hugar- flug í skapandi afl, og hefur heimurinn eignazt ófá skáld á þann hátt. Venus gerir tvíburamenni yf- ir leitt skarpskyggnari og fág- aðri. Marz blæs þeim sem öðrum ágengni í brjóst en skerpir jafn- framt greind þeirra; gerir þau gagnrýnin og kaldhæðin, fyllir þau þegar verst lætur andlegri grimmd. Júpiter gerir þau virðu- legri og valdsmannslegri, en jafnframt ánægð og glaðvær. Satúrn er tvíburafólki ekki æv- Nokkrlr islendlngar ffæddlr f Ivlbure- merki Kristbjörg Kjeld, leikk. Kristinn E. Andrésson, rithöfundur Kristleifur Jónsson, bankastjóri Leifur Ásgeirsson, próf. 20 vikan 23 tbl-

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.