Vikan - 13.06.1968, Page 21
inlega til mikillar gæfu. Honum
fylgja eiginleikar eins og hlé-
drægni, hamning og þörf fyrir
djúpa íhygli, en þetta kemur ekki
sérstaklega vel heima við ein-
kenni hins týpíska tvíbura. Sat-
úrn-tvíburar eiga því oft í harðri
og sársaukafullri innri baráttu,
eru stöðugt að strita við að yfir-
vinna eitthvað í sinum „innra
manni“. Úranus eflir gáfur tví-
buramenna, en Neptún eykur
glaðværð þeirra, sem þykir þó
yfirleitt ærin fyrir.
Af sögnum þeim úr goðafræði
Miðjarðarhafsþjóða sem tengja
má tvíburunum er sú um Kastor
og Pollúx langfrægust. Hún er á
þessa leið:
KASTOR OG POLLÚX
Tyndareifur er konungur
nefndur er réði fyrir Spörtu, og
drottnings hans Leda. Hún fæddi
tvo sonu, Kastor og Pollúx, og
dætur tvær, Helenu og Klýtemn-
estru. En áður hafði það borið
við að Seifur hafði vitjað drottn-
ingar í svanslíki, og voru því
tveir krakkanna, Helena og Poll-
úx álitin afkvæmi hans, en Kast-
or og Klýtemnestra börn kon-
ungs. Svo mikill kærleikur var
með þeim bræðrum, að þegar
Kastor, sem átti jarðneskan föð-
ur og var því dauðlegur, var
veginn, bað Pollúx Seif þess að
þeim skyldi báðum hlotnast
Loftur Guðmundsson,
rithöfundur
Lúðvík Jósefss., alþm.
Ömar Konráðsson,
tannlæknir
Othar Ellingsen, forstj.
Othar Hansson, fiskifr.
Pétur Sigurðss., forstj.
Séra Pétur Sigurgeirss.
Richard Beck, rithöf.
Sig. Magn, kaupm.
Stefán Einarsson, próf.
Stefán Hilmarsson,
bankastjóri
sama hlutskipti. Lifa þeir síðan
annan dag á Olympi með guðun-
um,. en hinn í undirheimum með
svipum dauðra manna. Þótti sæ-
förum fyrri daga gott að heita
á þá bræður í sjávarháska, og
hrævareldurinn, sem stundum
sést brenna á siglutoppum, er
kennimerki þeirra. Og stærstu
stjörnurnar í tvíburamerkinu eru
við þá kenndar. Einnig urðu þeir
verndarvættir æsku og íþrótta.
Þessi goðsögn imdirstrikar í
mörgu tvíeðli tvíburanna. Annar
er ódauðlegur guðssonur, hinn
ekki; eftir dauðann dvelja þeir
annan daginn með guðum, hinn
með draugum. Sagan segir einn-
ig, að Seifur hafi komið Pollúxi
til hjálpar í bardaganum, er
bróðir hans hafði verið veginn,
og eytt banamanni hans með
eldingu. Hér táknar Pollúx hinn
upphafna anda, sem berst gegn
hvötum af hinu illa og verð-
skuldar því guðlega aðstoð, þó
ekki fyrr en Kastor, tákn hins
jarðneska og ágjarna í manns-
eðlinu, hefur verið felldur.
RAUNSÆI OG HLUTLÆGNI
Sálfræðilega séð eru mörg tví-
buramenni gædd víðtækri vit-
und. Þau eru fljót að skilgreina
hlutinaog meta verðleika þeirra,
ævinlega reiðubúin að læra,
reyna eitthvað nýtt, öðlast nýj-
an fróðleik og þekkingu um allt,
sem nokkru varðar og er ofar-
Steinþór Þórðarson á
Hala
Svavar Gests,
hljómlistarmaður
Unndór Jónsson, fulltr.
Vernharður Bjarnason,
Húsavík
Vilhjálmur Einarsson,
skólastj. og íþróttam.
Vilmundur Jónsson,
landlæknir
Þór Vilhjálmsson,
borgardómari
Þorbjörn Sigurgeirs-
son, eðlisfræðingur
lega á baugi. Hegðun þeirra ein-
kennist af raunsæi og hlutlægni
í samræmi við þá þekkingu, sem
þau hafa aflað sér. Þau eru allt-
af reiðubúin að miðla öðrum
af vitneskju sinni og gera það
af mikilli leikni. Þau eru skýr
og skarpskyggn á málflutningi
og rökræðum; í starfi sínu láta
þau stjórnast af hreinni skyn-
semi en víkja tilfinningum til
hliðar.
Gallinn við þessar manneskjur
er hinsvegar sá, að áhugi þeirra
er oft yfirborðskenndur; láta
fremur stjórnast af forvitni en
beinni fróðleiksþörf. Vitneskja
þeirra verður því stundum yfir-
borðskennd og innihaldslítil; þær
verða jafnvel hégómagjarnar og
fullar sjálfsálits, halda sig vita
allt betur en aðrir, strá í kring-
um sig kringilyrðum og skvaldri
til að sýnast gáfaðar og fróðar,
þótt sálin kunni að vera eyði-
mörk.
Tvíburamenni eru kviklátari
og eirðarlausari en nokkurt ann-
að fólk. Þau eru stöðugt á far-
aldsfæti, ef þau geta því við
komið, og koma þar enn fram
tengshn við þá Hermes, Kastor
og Pollúx. Ef tvíburamennið toll-
ir heima, er eitt það vísa að það
situr ekki auðum höndum. Það
þráir tilbreytingu, sem í verstu
tilfellum getur orðið að sjúk-
legri flökkuhneigð.
Þóröur Björnsson,
sakadómari
Þórður Einarsson,
fulltrúi
Þórir Kr. Þóðrarson,
prófessor
Birgir Kjaran, forstjóri
Bjartmar Guðmundss.
frá Sandi
Bragi Ásgeirss., listm.
Eyjólfur Konráð Jónss.
ritstjóri
Guðmundur Ingvi Sig-
urðsson, hrl.
LÉTTLYNDI OG
EIRÐARLEYSI
Tvíburinn er því, líkt og hrút-
urinn, stöðugt að flýta sér, stöð-
ugt önnum kafinn við að tileinka
sér eitt á fætur öðru. Hann vill
gera sér grein fyrir meginatriði
hvers hlutar, þó án þess að þurfa
að kafa djúpt í hann. Hann vill
reyna allt, en ekki binda sig við
neitt.
Gagnstætt því sem til dæmis
er með jómfrúna er mótstöðu-
kraftur tvíburans sveigjanlegur.
Hin margvíslegu áhrif, sem hann
dregur að sér eins og segulstál,
komast aðeins lítið eitt undir yf-
irborðið; þau ná ekki valdi yfir
honum og hann varðveitir sína
persónulegu tilfinningu fyrir líf-
inu. Hann bognar, en brestur
ekki.
í samræmi við þetta eru
þenslumöguleikar hans. Hann
getur skipt sér milli ótrúlega
margra viðfangsefna. Hugur hans
er önnum kafin skiptistöð milli
innri persónugerðar og utanað-
komandi áhrifa. Hann á óhemju
gott með að semja sig að nýjum
aðstæðum og staðháttum, er
skrafhreyfur, skemmtilegur og
hugmyndaríkur, allsstaðar eins
og heima hjá sér. En hversu
miklum utanaðkomandi áhrifum
sem hann verður fyi'ir, þá er
hann að jafnaði sjálfum sér trúr
innst inni. Þrátt fyrir meðfætt
léttlyndi er nokkur hætta á því
Guðrún frá Lundi,
rithöfundur
Gunnar Ásgeirss. forstj.
Gunnar Dal, skáld
Gunnlaugur Schevmg,
listmálari
Helgi Bergs, framkv.stj.
Helgi P. Briem
ambassador
Jón Árnason, alþm.
Jón Engilberts, listm.
Jón Helgason, ritstjóri
Jón Kjartansson, forstj.
Jón Sn. Þorleifsson,
trésmiður
23. tbi. ynCAN 21