Vikan - 13.06.1968, Page 22
Tiítamnir
að þessháttar manneskjur verði
gripnar eirðarleysi og sársauka-
fullri efakennd; þær vita þá ekki
hvað þær í rauninni vilja og til
hvers þær eru í heiminn komn-
ar. Óþolinmæði þeirra getur leitt
af sér taugaóstyrk og sveigjan-
leikinn þegar verst lætur gengið
út í slíkar öfgar, að persónu-
leikinn leysist upp.
Sagt er að hið fræga tvíeðli
tvíburanna komi vel fram hjá
franska heimspekingnum og rit-
höfundinum Jean-Paul Sartre.
Tvíburinn er aldrei einn; annar
maður býr stöðugt í honum og
talar í gegnum hann; honum
leiðist þetta en getur þó ekki
verið án hins, ekki staðið einn.
Tvíburamennum ætti öðrum
fremur að skiljast hin fræga
setning Hamlets: to be or not to
be. Þau eiga oft erfitt með að
ákveða hvort þau eigi að láta við
sitja að vera sjálfum sér næg
eða helga öðrum lífsstarf sitt.
MERKI ÆSKUNNAR
Sérfróðir menn þykjast greina
meðal tvíburafólks tvennskonar
manngerðir, sem kenndar eru
við margnefnda tvíbura, Kastor
og Pollúx, Kastor-týpan kemru-
einkum fram við áhrif frá tungl-
inu og Neptún. Hana einkenna
einkum mjög næmar og heitar
tilfinningar, hvatvísi og geysi-
auðugt ímyndunarafl. Pollúx-
týpan verður hinsvegar til fyrir
áhrif frá sól, Úranusi og Júpíter.
Þessi manngerð er öllu rólegri en
hin, hefur betri stjórn á sér og
lætur skynsemina drottna yfir
tilfinningunum . Hún er oft held-
ur kaldrifjuð og kann vel að aka
seglum eftir vindi. f stuttu máli
satg: klók og lagin raunsæis-
manneskja.
Æskusvipur einkennir tví-
buramenni öðrum fremur, og
kemur það einnig fram í útiliti
þeirra. Þau eru yfirleitt heldur
há . grönn, liðleg í hreyfingum,
snotur og fxngerð, háls langur,
svo og fætur og handleggir, and-
litið langt og ávalt, gjarnan
hjartalagað. Nefið er langt og
fíngert, hakan löng og hvöss,
ennið breitt. Hið unglega útlit
sitt varðveitir manngerð þessi
oft langt fram eftir aldri.
Tvíburamaðurinn gengur hratt
og léttilega, ekki ólíkt því og
hann svífi eða dansi. Meira að
segja hefur því verið haldið fram
að hann snerti jörðina naumast
með tánum, er hann stígur nið-
ur. Þetta einkenni kvað runnið
frá Hermesi-Merkúr, drottnanda
merkisins, en sem kunnugt er
hafði hann vængi festa við fæt-
ur sér til að létta sér ganginn.
Tvíburamaðurinn er jafnan
allur á iði, líkt og hann eigi erf-
itt með að vera kyrr nokkra
stund. Það mætti halda að hann
væri með kvikasilfur í æðunum.
Það veður á honum, þegar hann
mætir kunningja á förnum vegi,
Josephine Baker,
Thomas Mann.
og kransæðastíflur annan hvern
mann lifandi að drepa.
í klæðabúnaði leggja tvíbura-
menni meira upp úr fjölbreytni
en glæsileika. Einnig hér kemur
tvíeðli þeirra fram. Föt konunn-
ar bera oft öðrum þræði keim af
sportmennsku, og umfram allt
verða þau að vera þannig að þau
hindri ekki hreyfingar hennar.
Hvað karlmennina snertir, klæð-
ist Kastor-týpan oft á sérstæðan,
John F. Kennedy.
Anna Frank.
og sleppir aldrei tækifæri til
rökræðna. Hann leggur áherzlu
á mál sitt handahreyfingum og
svipbrigðum. Hann á mjög auð-
velt með að breyta rödd sinni
og er því upplögð hermikráka
og leikari. Framandi tungumál
og mállýzkur á hann mjög létt
með að læra.
ANDLEGT FJÖR —
VEIKBYGGÐUR LÍKAMI
Líkamlega séð er tvíburamað-
urinn að jafnaði ekki mjög sterk-
ur til heilsunnar, en andlegt fjör
hans bætir það upp að verulegu
leyti og endurnýjar orkuna.
Ekki gefur hann mikinn gaum að
líðan sinni, mat og drykk lítúr
hann oft á eins og heldur leiðin-
lega nauðsyn. Hann nartar oft í
mat þegar honum dettur í hug,
en hirðir minna um reglulegar
máltíðir. Ekki ósjaldan þjáist
hann af lystarleysi. Skilningar-
vit hans eru með viðkvæmasta
móti, svo og öndxxnarfæri. Astmi,
bronkitis, breklar og taugasjúk-
dómar hverskonar hrjá hann tíð-
um.
Plútó er oft háskagripur, þar
sem hann lætur á sér kræla. Á
tímabilinu 1884—1914 var hann
á leið gegnum tvíburamerkið, og
vilja sumir meina að það sam-
krull hafi valdið stóraulcinni út-
breiðslu berkla, sem gerði vart
við sig á þessu tímabili. Á næstu
áratugum var Plútó staddur í
krabbamerkinu, með þeim af-
leiðingum að krabbamein færðist
stórlega í vöxt í heiminum. Nú
er Plútó kominn í ljónið, og viti
menn! Þá ætla hjartasjúkdómar
áhrifamikinn hátt, en Pollúx-
týpan hinsvegar látlaust en þó
mjög smekklega.
SAMKOMULAGS-
MÖGULEIKAR
Verður nú rakið hversu tví-
burafólki semur við manneskjur
úr öðrum merkjum. í fyrri
greinum hefur verið greint frá
samkomulagsmöguleikum tví-
buranna við hrút og naut.
Tveir tvíburar eiga vel sam-
an. Andlegt fjör og fjölbreytileg
áhugamál beggja ættu að gera
líf þeirra tilbreytingarríkt og
skemmtilegt.
Samband tvíbura og krabba
gefst einnig ágætlega.
Tvíbxxri og ljón fá fljótt sam-
Framhald á bls. 41
22 VTKAN 23 tbl-