Vikan


Vikan - 13.06.1968, Blaðsíða 27

Vikan - 13.06.1968, Blaðsíða 27
KIN UNHISAMLEGA SAGA STflNGERVINGANNA Cerato að kljúfa kalkflögu. Hann og fjölskylda hans hafa unnrð að því á síðustu árum, að finna steingervinga í kalklögum þeim, sem þarna er mikið af, og hafa þegar fundið 100.000. Hér hefur Cerato tekizt að kljúfa kalkflögu i tvennt: tvær blaðsiður úr „bókinni", sem geymir sögu þessara steingervinga og beið þess í 40—50 milljón ár, að vera lokið upp. Kalkflögurnar voru teknar fram að vetri til og lótnar þorna í sólskini. Hér fyrir neðan: tegundin MENE RHOMBEA, fiskur frá tertier-timabili (fyrir fjöru- tíu og fimm milljónum ára), fundinn í Bolca, í grennd við Verona. Þessi kalk- steinsflís hefur verið klofin í tvennt: til hægri er myndin af fiskinum upphleypt til vinstri grópuð. Steingervingar þeir sem hér eru sýndir, fundust í helli í Bolca. Þeir eru í náttúrugripasafninu í Verona. Til hægri: Eigandi hellisins, Massimilano Cera,°- Af spjöldum kalksteinsins má lesta um þróunarsögu lífsins hér á jörð, þar má finna mergð stein- gervinga af dýrum og jurtum sem lifðu hér fyrir milljónum og aftur milljónum ára, löngu áður en mannkynið varð til. PALINURUS DESMARESTIHUMAR, sem var tuttugu centimetrar á lengd og hafði tvo langa fálmara. Þessi ætt er dreifð um flest hin heitustu höf. Skyldleiki þessarar ættar og þeirra tegunda sem nú finnast t heitum höfum, sannar það, að áður en Alpa-> fjöll risu (fyrir fjörutíu milljónum ára), var óslitið haf frá Mið- ajrðarhafi um Indlandshaf til Kyrrahafs. DENTEX, fiskur sem lifði við strendur á grunnsævi. Safn steingervinga, sem nú er komið á náttúrufræðisafnið í Verona, er hið fjölbreyttasta og bezta sem til er, og eru í því tvö þúsund fiskasteingervingar af tvö hundruð tegundum. Líkamslögun fiskanna hefur varðveitzt einkar vel í kalkinu, og stundum sést liturinn líka: rafgult, brúnt eða grænleitt. TRACHYNOTUS TENUICEPS lifði oftast innan um stjörnukóralla, og af þessari tegund eru ennþá nokkur afbrigði til. Um uppruna steingervinganna i Bolca eru tvær tilgátur: að tegundirnar hafi farizt með snöggum hætti, vegna náttúruhamfara, eða dáið á eðli- legan hátt. 23. tbi. yiKAN 27

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.