Vikan


Vikan - 13.06.1968, Page 31

Vikan - 13.06.1968, Page 31
Apaloppan Framhald af bls. 13 mjög hátíðlegur á svipinn. í sömu andrá hljóðaði hann upp yfir sig, og sonurinn spratt upp frá hljóðfærinu. — Hún hreyfðist! hrópaði herra White. — Um leið og ég sagði þessi orð hreyfðist hún í hendi mér, alveg eins og orm- ur ...... Sonur og móðir störðu á apa- loppuna, sem lá á gólfinu. Það leið nokkur stund, áður en nokk- urt þeirra sagði orð. Svo sagði sonurinn: — Hvar eru peningarnir? Ég sé enga peninga. Hann tók apa- loppuna upp og lagði hana á borðið. — Ég þori líka að veðja um að það koma engir pen- ingar... Þau sátu um hríð fyrir fram- an arininn, og feðgarnir reyktu úr pípum sínum. Þau voru öll þögul, þangað til þau gengu til hvílu. Morguninn eftir, þegar sólin skein yfir morgunverðarborðið hló sonurinn að þessu öllu. Her- bergið var ósköp hversdagslegt í morgunbirtunni. Apaloppan lá, eins og hver önnur tuska á skenkiborðinu. Það var alveg furðulegt að hafa látið sér detta í hug að hún byggi yfir ein- hverjum töframætti. — Gamlir hermenn eru sjálf- um sér líkir, sagði frú White. — Að hugsa sér að hann skyldi láta sér detta í hug að telja okkur trú um aðra eins vit- leysu. Óskir! Ha-ha! En það væri óneitanlega þægilegt að fá tvö hundruð pund, pabbi! — Bíddu bara, þau detta bráð- um af himnum ofan, sagði son- urinn stríðnislega. — Morris sagði að þegar ósk- irnar rættust, yrði það á eðlileg- an hátt, sagði faðirinn. — Ef það skeður, þá vona ég að þið verðið ekki búin að eyða öllum peningunum, áður en ég kem heim í kvöld, sagði sonurinn og reis upp frá borð- inu. Móðirin hló og fylgdi syni sín- um til dyra. Hún horfði eftir honum þangað til hann hvarf niður eftir götunni. Svo sneri hún aftur inn og settist við borðið. Eftir hádegisverðinn sat herra White og sötraði úr ölglasi, og þá barst apaloppan aftur í tal. — Ég get svarið að hún hreyfð- ist, sagði herra White ákveðinn. — Það er ímyndun hjá þér, svaraði frúin. — Nei, ég segi alveg satt. Ég get svarið það... Hvað er þetta? Konan hans hafði staðið upp. Hún svaraði engu. Hún horfði út um gluggann, þar sem dökk- klædd vera kom í ljós. Þetta var maður í svörtum yfirfrakka. ALLT Á SAMA STAÐ HÖGGDEYFAR f AMERÍSKA BÍLA: í EVRÖPSKA BÍLA: BUICK CHEVROLET I CHEVROLET II CHRYSLER DODGE FORD FAIRLANE FALCON MERCURY PLYMOUTH PONTIAC RAMBLER JEEP-WILLYS COMMER FÍAT FORD enskir FORD þýzkir HILLMAN OPEL MERCEDES BENZ RENAULT SAAB SIMCA SINNGER VAUXHALL VOLVO VOLKSWAGEN VATNSLÁSAR í MARGAR GERÐIR LOFTNETSSTENGUR í MEKLU ÚRVALI EGILL VILHJÁLMSSON LAUGAVEGI 118 - SÍMI 2-22-40 FYRIR 17. JÚNÍ * MYNDATAKA FYRIR ALLA F J ÖLSKYLDUN A * FANTID TÍMA STUDIO GUDMUNDAR GARÐASTRÆTI 8 — SÍMI 20900 ------. STÚDENTAMYNDATDKUR 23. tw. yxxCAN 31

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.