Vikan


Vikan - 20.06.1968, Blaðsíða 15

Vikan - 20.06.1968, Blaðsíða 15
er Óðmönnum mjög að AB vera músikant skapi, þessi dæmigerða lcnRra en fram 1 , fingnrgóma. tónlist negranna, sem um fram allt gerir þá kröfu, að sungið og leikið sé af tilfinningu. Og þá er komið að því að geta söngkonunnar, Shadie Owens. Hún er bandarísk í aðra ætt- ina en af íslenzkum stofni í hina. Shadie er einstæðum hæfileikum gædd. Raddsviðið er ótrúlega mikið af svo ungri stúlku að vera og tilfinningin — þetta, sem við köllum „feel- ing“ — fylgir alltaf með. Aðrir Óðmenn eru Jóhann Jóhannsson, bassaleikari og laga- höfundur. — Jóhann samdi öll lögin á hljóm- plötu Óðmanna, þeirri, sem kom út fyrir um það bil einu ári. Bróðir hans, Eiríkur, lék um eitt skeið með hljóm- sveitinni, en þegar hann hvarf frá því, kom Magnús Kjartansson í staðinn, kornungur og mjög efnilegur hljóðfæraleikari, töffari og bezta skinn, Magnús er einn af þessum ná- ungum, sem getur gripið í öll hljóðfæri. — Hann er blásari góður en heldur sig þó meira í námunda við hammond-orgelið sitt, sem er svo margbrotið, að sagt er, að það hafi tekið hann marga daga að læra á allar stillingarnar. Svo er það Valur Emilsson, sem sér um allan gítarleik, og það gerir hann með miklum ágætum. Valur er rólegastur þeirra Óðmanna, það dettur hvorki af hon- um né drýpur, þótt allt sé á fleygiferð í kringum hann. Pétur Östlund sér síðan um trommuleikinn, og það er víst óþarfi að fjölyrða um hans hæfileika. Það hafa sagt Framhald á bls. 39 AS hafa þörf fyrir að tjá sig. Að láta sér dctta citthvað f hug. Að vera ööruvísi. Þetta eru Óðmenn. — Myndirnar eru býsna óvenjulegar, en ef til vill eru þær tákn þess, að Óðmenn vilja fara sínar eigin götur. Það kemur a. m. k. fram í músik þeirra. Hljóm- sveitin er skipuð mjög hæfum hljóðfæraleikur- um — og þeir geta spilað músik, sem krefst töluverðrar kunnáttu. Tamla Motown eða „soul“ stíllinn svonefndi Að syngja með til- finningu. ÚOrnenn

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.