Vikan - 20.06.1968, Side 17
UM LEIÐ OG HÚN KOM UPP ÚR VATNINU VAR RÁÐIST Á HANA AFTAN FRÁ. YFIR HÖFUÐ HENN-
AR VAR VARPAÐ KLÆÐI, SEM SÍÐAR REYNDIST VERA HENNAR EIGIÐ PILS.
\
TEIKNING BALTASAR
Hér hefst ný og mjög spennandi framhaldssaga, sem gerist í Banda-
ríkjunum. Aðalpersónan Peter Styles, varð fyrir áfalli fyrir tveim-
ur árum, sem hafði það í för með sér, að hann er ekki samur
síðan, gengur við gervifót í sifelldri leit að tveimur hlæjandi ill-
ræðismönnum. Svo les hann um glæp, framinn af tveimur, hlæjandi
mönnum, og hann fer á stúfana. Fyrr en varir er hann kominn inn
í miðja, hraða atburðarás þar sem flest kemur á óvænt.
Fylgist með frá byrjun — þetta er æsispennandi saga.
Vegurinn gegnum skóginn tók
enda, áður en húsið var sjáan-
legt. Úti við þjóðveginn var póst-
kassi og á honum stóð M. Land-
er. Hér var lítið rjóður og hand-
málað skilti benti á stíg, sem
hvarf inn í greniskóginn. Bíla-
stæði M. Landers stóð á skiltinu.
Lítill, svartur, opinn Thriumph
sportbíll stóð hjá merkinu.
Maðurinn í hvíta Jagúarnum
lagði bílnum, drap á vélinni og
stakk lyklinum í vasann. Hann
var í meðallagi hár, dökkur yfir-
litum og grannur með ákveðna
andlitsdrætti og fölblá augu,
Hann sté út úr bílnum. Hann
hikaði aðeins og síðan skellti
hann hurðinni aftur. Hann lagði
hægt af stað eftir gangstígnum
heim að húsinu. Hann haltraði
svo lítið að það var varla greini-
legt. Meðan hann var enn að
velta því fyrir sér hvort það væri
enn langt að húsinu birtist það
allt í einu. Þetta var einnar hæð-
ar nýtízkulegt hús. Annars veg-
ar var útsýn til skógarins, en
hins vegar sást í hæðir Connecti-
cut. Fyrir framan aðaldyrnar var
lítil steinlögð garðverönd og báð-
um megin við hana vel hirt
blómabeð.
Maðurinn hafði ekki gengið
nema svo sem einn eða tvo
metra inn eftir gangstígnum,
þegar framdyrnar voru rifnar
upp á gátt og stúlka með skær-
rautt hár, klædd í fölgrænar síð-
buxur og gula blússu kom hlaup-
andi á móti honum á fullri ferð.
Hún var komin hálfa leið til
móts við hann, áður en hún gerði
sér grein fyrir að hann var ekki
sá, sem hún hafði átt von á. Hún
sneri við og hljóp aftur inn í
húsið með sama hraða. Hún lok-
aði ekki á eftir sér. Næstum
þegar í stað kom hún aftur í
Ijós og otaði á undan sér tví-
hleyptri byssu.
— Hver eruð þér? Hvað vil
ið þér? hrópaði hún.
— Eruð þér Mary Landers?
spurði maðurinn.
— Já.
— Þér þekkið mig ekki, sv
aði maðurinn. — Nafn mit
Peter Styles.
— Eg veit hver þér eruð,
es, svaraði Mary Landers.
eruð blaðamaður.
— Ekki beinlínis, svaraði
er Styles, — Eg starfa við News-
wiev, en ég er ekki hér sem
blaðamaður.
— Þér gerið ónæði, svarað
stúlkan. — Viljið þér gera sv
vel að snúa við, ganga aftur ni
ur að bílnum og aka burt.
— Eg þarfnast hjálpar, s
aði Peter Styles.
— Hvernig getið þér
mér? Enginn getur hjálpað
— Þér misskiljið mig,
sagðist ekki óska að hjálpa
heldur að ég þarfnaðist hj
— Þér viljið fá eitthvað
skrifa um, svaraði hún b
lega. — Þér ætlið að gera
úr mér fyrir fólkið
tímarit yðar. Eg skipa
16 VIKAN 24 tbl-