Vikan - 20.06.1968, Page 19
1 1
— Mig- langaði til að verða flugmaður, svo ég lærði
að fljúga. Ég vildi gifta mig, þegar ég var tuttugu og
tveggja ára, og ég gerði það. Ég vildi verða fræg, og
ég er það. Mig langaði til að eignast son, og ég cign-
aðist hann. Virna Lisi gerir yfirleitt það sem hana
langar til að gera. Saga hennar er ekki nein ösku-
buskusaga. Hún átti auðuga foreldra, fór til Holly-
wood í eigin bíl, blóðrauðum Maserati, með vagnhlass
af kjólum og allskonar klæðnaði frá Balenciaga.
Kvikmyndin „How to murder your wife“, þar sem
hún lék á móti Jack Lemmon, hlaut góða dóma, og
Virna varð fræg. Kvikmyndin „The Girl and the
Gencral", er væntanleg bráðum. Þar leikur Virna
Lisi á móti Rod Steiger, svo hún er ekkert að hugsa
um að liætta að leika. Eiginmaður hennar er auðugur
arkitekt og þar að auki mjög glæsilegur maður. Hann
heitir Franco Pesci. Það er ekki víst að hann sé alltaf
á sama máli og hún, en hún segir að liann skilji sig
mjög vel. Hún er ekki alveg klæðlaus, á minnsta kosti
100 kjóla og tuttugu loðfeldi, Þau hjónin eiga land-
setur í nágrenni Rómaborgar. Húsgögnin eru aðallega
ítölsk og frönsk og málverkin eru yfirleitt eftir ítalska
nútíma málara. Hún hefir sérstakan hárgreiðslumeist-
ara, sem kemur heim til hennar, nokkrum sinnum í
viku. Hún er mikið fyrir hesta og ríður sínum eigin
hestum, æpir sig hása á fótholtakappleikjum og dekr-
ar við son sinn Corrado, sem hún dáir, og þykir fátt
skemmtilegra en að taka á móti jafnöldrum hans. Hún
er mjög hamingjusöm og segir að allir séu hrifnir af
sér....
24. tbi. VIKAN 19