Vikan - 20.06.1968, Page 24
HREINTORG
FðGURBORG!
J byrjun júnímánðar var gerð mikil hreinsun í Reykjavík og var ekki
vanþörf á. Slíkar hreinsanir þarf' annað hvort að gera oftar, eða hafa
strangara eftirlit með að rusli sé hent jafnharðan í stað þess að safna
því fyrst í hauga mánuðum eða kannske árum saman. Rétt áður en
vorhreingerningar á höfuðborginni hófust, fórum við í reisukorn um
staðinn og tókum myndir af nokkru því, sem fyrir augun bar. Við
skulum vona, að það sé nú allt liorfið og hreinlætið ráði nú ríkjum
samkvæmt kjörorði borgarinnar: Hrein torg — fögur borg.
LJÖSM.: KRISTJÁN MAGNÚSSON
Séð úr Dugguvogi niður í Kænuvoff. Þetta er dót sem
tilheyrir húsbygging-um en það var orðinn ærinn tími frá
því að það var notað. Slíkt dót ætti fremur að geyma þar
sem minna ber á þvi og tvímælalaust færi betur að verja
það vindum og veðri.
Rétt hjá mestu umferðargötu Reykjavíkur: Laugavegi. Nán-
ar tiltekið á horni Nóatúns og Brautarholts, skáhallt móti
Þórskaffi. Af ruslahrúgunni má marka, að þarna sé rckið
púströraverkstæði. Bíllinn mun aðeins hafa prýtt hauginn
um stundarsakir. t
Við Dugguvog stendur einhvers konar verkstæði og
eins og títt er, hafði þar safnazt saman alls konar skran..
Bílpallur tróndi þar á tunnum og var eitt helzta ornament
staðarins.
Fyrir miðju hægra mesin: Hreyfill á stórt og gott hús við'
Grensásveg. Trúlega er þar gert við dekk, eða hvernig get-
ur annars staðið á allri þessari dekkjahrúgu norðan undir
húsinu? Ytri myndin: Algeng sjón í Súðarvogi. »
Áður fyrr meir fóru farþegar Loftleiða að og frá Reykja-
víkur flugvelli framhjá Pólunum, Síðan voru Pólarnir rifn-
ir og vegurinn eyðilagðist. Þá var annar lagður undir Öskju-
hlíðinni framhjá Slökkvistöðinni — og skrani því, sem sjá
má þar hægra megin. Þessu safni hefur nú verið giftusam-
lega rutt burtu svo eítir standa aðeins braggarnir; um þá
er það gott hægt að segja, að ekki rýkur þar úr strompum
svo farþegar Loftleiða, Pan Ams, Flugsýnar og Þyts þurfa
ekki endilega að halda, að' þar sé búið. i
Vísir að bílakirkjugarði hafði myndazt á opnu svæði milli
Fellsmúla og Síðumúla gegnt Grænmetisverzlun ríkisins.
Það er eins og sumir menn gangi af bílum sínum fyrir fullt
og allt, þar sem þeir gefast upp.
♦ Við Ármúla austanverðan stóð þessi skúlptúr, sem minn-
ir mest á fallbyssu úr fyrri heimsstyrjöldinni. Og hefur
líklega staðið þar síðan. Kannski kanónu þessari hafi ver-
ið skilað, þegar vopnin voru innkölluð á dögunum.