Vikan - 20.06.1968, Qupperneq 37
.
kvikmyndaítjamaíi
í MGM kvikir.ynd
Martín Knnrfjhnfl's
Darit Make Waves"
wm*<
ákvað Pála að bjóða honum upp
á mjög góðan kvöldverð. Hún
ætlaði að kaupa nautalundir,
gorgonzola ost og rauðvín, þá
tegimd sem Vincent þótti bezt.
Hún bað afgreiðslumanninn um
að senda þetta heim og sagði að
nafnið væri Fuller.
— Hvaða Fuller? spurði af-
greiðslumaðurinn.
— Það er ég, sú sama sem
gleymdi barninu í kjörbúðinni.
— Jæja, er það sú Fuller,
sagði afgreiðslumaðurinn glað-
lega. En svipur hans breyttist
fljótlega. — Frú Fuller, er eitt-
hvað að yður?
— Ég er bara eitthvað skrít-
in, svaraði Pála og hallaði sér
fram á borðið. — Hvað sagði ég
við yður áðan?
Afgreiðslumaðurinn var sýni-
lega taugaóstyrkur. — Ja, þér
sögðuð að þér væruð konan,
sem....
— Segið mér eitt, hverskonar
fólk haldið þér að það sé sem
hefir apa á heimilinu? tók hún
fram í fyrir honum.
— Hér í Clairmont? Af-
greiðslumanninum létti sýnilega
og hann fór að hlæja. — Það
hlyti að vera einhver snargeggj-
aður.
— Það held ég líka. Hún var
allt í einu orðin svo létt í skapi
og áhyggjulaus. Því að kona sem
gleymir barninu sínu í kjörbúð,
getur auðvitað fundið upp á
ýmsu. Hún gæti átt það til að
hafa apa á heimilinu, eða ....
Það er erfitt að segja til um
það hvað slíkri konu getur dott-
ið í hug. Hún gæti jafnvel orð-
ið ástfangin af einhverjum bjálfa
sem spilaði á gítar og bongo-
trommur, og hefði ekkert upp á
að bjóða annað en elskulega
framkomu. Það var eiginlega
útilokað annað en að þau yrðu
ástfangin hvort af öðru.
— Var það nokkuð annað, frú
Fuller? spurði afgreiðslumaður-
inn varfærnislega. Það var aldrei
að vita hvað gæti komið fyrir
svona kvenfólk. Hún gæti fund-
ið upp á því að breyta öllum inn-
kaupunum, og það var frekar
óþægilegt.
— Jú, mig vantar slóran klasa
af banönum. Ja, það er reyndar
bezt að ég fái tvo, svona til ör-
yggis. Og svo þarf ég ekki kjöt-
ið, ostinn og rauðvínið. Það er
nóg að fá bananana.
Hún hló: — Við erum svo æst
í banana heima hjá mér!
☆
Þjónaðu rússneska
flotanum - eða . . .
Framhald af bls. 21
Patricia Rose, unnusta Crabbs, var
mjög hrifin af Suður-Frakklandi. —
Eftir langa dvöl hjó bróður sínum
og mógkonu í Biot, var hún búin að
ná sér nokkurn veginn.
Dag nokkurn hringdi einhver
ókunnugur maður til hússins í Biot,
og bað um að tala við hana.
— Ég er með kveðju til yðar,
sagði hann. — Crabb yfirforingi er
á lífi. Hann sendir yður kveðju og
segist hitta yður eftir tíu ár.
— Hver eruð þér? Á þetta að
vera grín?
Maðurinn lagði heyrnartækið á
gaffalinn.
Með tímanum vandist Crabb hinu
nýja hlutverki sínu sem Lev Lvovitj
Korablov. Föstudaginn 17. ágúst sat
hann aftur í yfirheyrsluherberginu,
andspænis Mjaskov ofursta. Hann
var að skrifa hið nýja nafn sitt und-
ir upptökubeiðni ( Rauða flotann.
Sunnudaginn 5. maí 1957 kom
skýrsla til Mjaskov ofursta. Háttsett-
ur embættismaður í brezka utanrík-
isráðuneytinu hafði sent frá sér eft-
irfarandi yfirlýsingu:
,,Við erum fullvissir um það að
Crabb yfirforingi fórst ekki í höfn-
inni í Portsmouth, hjá rússneska
beitiskipinu. Við höfum nokkuð ör-
uggar fréttir af því að hann hafi
verið tekinn um borð í skipið, og
sé nú fangi í Rússlandi".
Mjaskov hringdi strax til B. M.
Smirnov í Leningrad. Hann sagði að
það væri mjög áríðandi að líkið,
sem átti að vera af Crabb, yrði nú
látið sem allra fyrst reka á land,
svo að hægt væri að bæla niður
þann orðróm að Crabb væri á lífi
í Rússlandi.
Mjaskov var heppinn. Laugardag-
inn 1. júní áttu þrír kafbátar að fara
frá Kronstadt til Egyptalands. Líkið
var sett í stólhylki, sem var fyllt af
sjó og fest við einn kafbátinn.
26 mínútum yfir tólf, nóttina 6.
júní, sendi kafbáturinn dulmáls-
skeyti:
„Farmurinn losaður. Sjókort og
straumar benda til þess að landtaka
eigi sér stað eftir 48 klukkutíma".
Einn þessara sólríku jún(daga ár-
ið 1957 var aftur hringt til Particiu
Rose í Biot. Það var ókunn rödd,
COPPERTONE er langvinsælasti og lang mest seldi sólaráburðurinn í Bandaríkjunu, enda
sanna vísindalegar rannsóknir, framkvæmdar af hlutlausum aðila, að COPPERTONE ger-
ir húðina brúnni og fallegri á skemmri tíma
en nokkur önnur sólarolía.
Fáanlegar COPPERTONE-vörur. Copper-
tone Lotion, Oil, Oil Spray, Shade, Baby
Tan, Noskole, Lipkote og ROYAL BLEND,
sem er í algjörum sérflokki sem sólaráburð-
ur og fegrunarkrem og ætlað fyrir þá allra
vandiátustu.
Q,T. (quick tanning) undraefnið frá Copper-
tone, sem gerir yður brúna jafnt í sól sem
án sólar, er ennfremur fáanlegt HEILDVERZLUNIN ÝMIR - SÍMI 14191
VERIÐ BRÚN - BRENNIÐ EKKI
NotiS COPPERTONE
v______________________________________y
*4.tbt. VIKAN 37