Vikan - 20.06.1968, Page 41
'léttasta skeiði, horfir ó allt þetta
eins og þaulæfður sjónvarpsfrétta-
maður. Henni verður fyrst fyrir,
þegar eldurinn gýs upp, að þrffa
kvikmyndatökuvélina sína upp úr
tösku og taka eins mikið af mynd-
um og henni er unnt. Nú grúfir
hún sig eins og allir hinir.
Vélin snertir. Um leið verður
fyrsta sprengingin og vélin stend-
ur öll í Ijósum loga. Reykurinn stíg-
ur sem svartur bólstur til himins og
áhorfendur og björgunarmenn á
staðnum þykjast fullvissir um, að
enginn komist lífs úr þessu. Inni í
vélinni æpir kona móðursýkislega
og treðst í óttina að neyðardyrun-
um. Popsöngvarinn Mark Wynther
var á leið til brúðkaups síns f
Melbourne. Þegar flugfreyrinn
hrópar: „Allir út!" þreifar Mark
eftir töskunni sinni með nótunum,
sem hann hafði undir sætinu. Hann
kennir ekki hitans, hugsar um það
eitt að nó í töskuna. Hann finnur
hana og treðst af stað með þetta
fyrirferðarmikla koffort. Flugfreyr
kemur aðvífandi og sparkar koffort-
inu úr höndum hans, hrindir hon-
um sjólfum út á vænginn. Hann
reynir að koma fótum fyrir sig, og
það síðasta sem hann heyrir, þegar
hann hólf veltur ofan af vængnum
úr þessu logandi helvfti er skefja-
laus grótur ungrar stúlku.
Frú Melda Wilday berst fram til
að bjarga sér. Hún finnur ekki út-
göngudyrnar fyrir reyk og snýr við,
reynir að troðast móti mannhafinu
inn í vélina aftur. Einhver þrífur í
hana og snarar henni út ó renni-
brautina, til lífsins.
Sprengingarnar fylgja hver ann-
arri eftir eins og f púðurkerlingu, og
enginn veit, hvenær lokasprenging-
in glymur. Frú Joan McClaren kast-
ar tíu ára syni sínum og fjórum
börnum öðrum út úr logunum áður
en hún flýr sjálf. Frú Shirley Coop-
er reynir að komast út með fjögurra
ára son sinn í fanginu. Hún veit,
að enn er átta ára dóttir hennar,
Jacqueline, inni f eldhafinu, og ein-
hvers staðar að maður hennar með
soninn Kevin. í troðningunum
missir hún drenginn. Enginn tekur
eftir honum á gólfinu. Honum er
sparkað til, stigið á hann, og mökk-
urinn er svo þykkur, að hún sér
hann ekki. Hún berst móti þessu
rennsli fólks f örvæntingu, slær um
sig f blindu æði og þreifar um
gólfið þar til hún finnur barnið.
Hún þrffur það upp og snarar af
hendi út f gegnum op á logandi
vélarbúknum. Einhvern veginn berst
hún sjálf út með straumnum til að
frétta, að Jacqueline hafi ekki kom-
izt út.
Og enn er fólk þarna inni. Kona
ein gengur af göflunum. Hún nær
taki efst á rennibrautinni og skelf-
ingin gefur henni aukinn kraft til
að halda sér. Flugfreyja sparkar
æðislega í bakið ó henni. Tveir
karlmenn þrffa sinn í hvorn hand-
legg hennar og fleygja henni nið-
ur. Sekúndu sfðar verður ný spreng-
ing og karlmaður fleygist einhvers
staðar út úr vélinni af loftþrýstingn-
Hvernlg maður skolar kyrrstælt
raffmagn úr þvottlnum sfnum
(og gerir það létt, mjúkt og yndislegt)
Bætið E.-4 út í síðasta skolvatnið.
Látið þvottavélina þvo þvottinn
í 3 mínútur, þá drekkur það í
sig þau endurbyggjandi efni, sem
finnast í E.-4.
(Við smáþvott eigið þér aðeins
að hreyfa létt við þvottinum með
hendinni).
E-4
er hagkvi
Þvotturinn hefur nú verið endur-
byggður. Hver einasti þráður er
þakinn ótrúlega þunnri E.-4
himnu, sem er á þykkt við móle-
kúl. Þegar þvotturinn er þurr,
„ýta“ himnurnar hinum einstöku
þráðum hvorum frá öðrum, svo
þvotturinn verður gljúpur, létt-
ur og svalur, eins og hann væri
nýr. Rafmagnið er horfið úr nyl-
on-þráðunum, vegna þess að þeir
snerta ekki hvern annan vegna
hinnar þunnu E.-4 himnu, Það er
auðvelt að ganga frá strauning-
unni þegar þvotturinn hefur ver-
ið skolaður í E.-4.
imasl
Auk hinnar vinsælu 1/1 líters flösku
fæst E.-4 nú einnig í 2 V2 líters risa-
flösku með handarhaldi. — Þegar þér
kaupið hana,
Frá Dansk Droge Import A/S,
Köbenhavn — Herlev.
Innflytjandi:
íslenzka Verzlunarfélagið hf.,
Laugavegi 23, sími 19943.
24. fbi. VIKAN 41