Vikan - 20.06.1968, Qupperneq 47
UR í EINU HÖGGI - SÓLIÐ YKKUR OG GERIÐ HOLL
AR OG FEGRANDI LEIKFIMISÆFINGAR UM LEIÐ
Stinnari brjóst og fallegri líkamsburð ætti
þessi æfing að gefa í aðra hönd. Sitjið á
hælunum og spennið hendmmar með beinum
handleggjum fyrir aftan bak. Lyftið þeim
þannig upp og haldið olnbogunum alltaf bein-
um á meðan. Hafið axlirnar spenntar aftur
og haldið höfðinu hátt. Til þess að þessi æf-
ing beri árangur, verðið þið að æfa hana
oft og reglulega, en gleymið ekki að hvíla
ykkur, þegar þið þreytist.
Útstandandi maga ættuð þið að
geta lagað með því að liggja á bak-
inu og hreyfa fæturna upp og nið-
ur hratt til skiptis, en þeir verða
að vera vel beinir og strekktir. Hand-
leggjum er haldið beint upp, eins
og þið sjáið á myndinni. Einhverj-
ar harðsperrur geta fylgt þessari
æfingu, en það sýnir bara, að hún
er til einhvers gagns.
Hvort sem er hér í Nauthólsvík-
inni, annars staðar úti við sjóinn
hér á landi eða í heitum sandi við
Miðjarðarhafið, getið þið gert
þessar æfingar um leið og þið sól-
ið ykkur. I*ótt það sé krökkt af
fólki umhverfis ykkur, tekur eng-
inn eftir því, þótt þið teygið eitt-
hvað úr ylckur og liðkið, enda eru
allar þessar æfingar svo fallegar,
að það er bara augnavndi að þeim
fyrir þá, sem af einhverri tilviljun
væru að horfa í kringum sig.
Sjálft sundið er einhver bezta
og hollasta æfing fyrir allan Iíkam-
ann, en notið líka tímann á strönd-
inni, það er ekki nema hressing að
því, að skipta svolítið um stelling-
Þessi æfing er til að
fegra lærin. Þá ligg-
ið þið á hnjánum og
lyftið handleggjum
fram í axlarhæð.
Beygið ykkur eins
langt aftur á við og
hægt er, án þess að
snerta hælana. Æf-
ingin er ekki ein-
ungis góð fyrir lær-
in, heldur líka of
mikinn maga.
ar, en flatmaga ekki eins og í dái
móti sólinni.
Eins og áður er sagt, tekur eng-
inn eftir því, þótt þið grafið svo-
lítið í sandinn með tánum, eða
hreyfið höfuðið til og frá, en ef
þið getið ekki hugsað ykkur að
gera þessar æfingar í allra augsýn,
máð með góðu móti æfa þær
heima áður en þið farið á fætur —
enda ekki alveg víst að sól sé upp
á hvern dag!
8Það er fallegt að vera bein í baki án þess að vera
stíf. Teygið ykkur þannig niður að sjónum og „klapp-
ið“ öldutoppunum. Hafið í huga, að æfingin nái til
alls baksins, þannig að þið finnið hvernig vöðvarnir
taka á.
24. tbi. VIICAN 47