Vikan


Vikan - 30.01.1969, Page 6

Vikan - 30.01.1969, Page 6
f-------------------->1 stovella 3oppis Uppbvonavélar Zoppas uppþvottavélin getur bæði staSiS frítt á gólfi (hún er á hjólum) eSa verið byggð inn í eldhúsinnréttinguna. Vélin tekur fyrir 6—8 manns meS pottum og getur tekið inn á sig annað hvort heitt eða kalt vatn. Zoppas vélarnar eru ítalskar, framleiddar í samvinnu við banda- rískt heimilisfyrirtæki. Ársábyrgð. — Verð kr. 32.700. — Greiðsluskilmálar. EINAR FARESTVEIT & CO. HF. - AÐALSTRÆTI 18 SÍMI 16995. V_________________________________________________________________________y Gólfdúkur — plast, vinyl og línóleum. Postulíns-veggflísar — stærðir 7V2xl5, 11x11 og 15x15 cm. Amerískar gólfflísar — Good Year, Marbelló og Kentile. Þýzkar gólfflísar — DLW. Hollenzkur Fiesta dúkur — eldhúss- og baðgólfdúkur. Málningarvörur — fró Hörpu hf., Málning hf. og Slippfél. Rvíkur. Teppi — ensk, þýzk, belgísk nylonteppi. Fúgavarnarefni — Sólinum, Pinotex. Silicone — úti — inni. Veggdúkur — Somvyl, frönsk nýjung. Vinyl veggfóður — br. 55 cm. Veggfóður — br. 50 cm. V-_____________________________________________________________________' KOMIÐ í VEG FYRIR SPARNAÐ? Virðulegi Póstur! Tvö bréf hefur þú birt nýverið um tóbaksreyking- ar. Hið fyrra var frá reyk- ingamanni, sem var bál- reiður yfir síðustu hækk- un á tóbaki og taldi, að verið væri að níðast á reykingamönnum. Annar svaraði og taldi fráleitt að verið væri að níðast á „þrælum tóbaksins“ eins og hann komst að orði og sagði, að þeim væri skammar nær að hætta að reykja. Síðan „kreppan“ skall á hafa margir reynt að spara við sig flest það, sem hægt er að vera án með góðu móti. Reykingamenn eru engin undantekning frá því. Ég veit um fjölmarga menn, sem eru hættir að kaupa sígarettur í pökk- um, en vefja þær sér sjálf- ir í staðinn. Á þessu spar- ast talsverður peningur. Til skamms tíma fékkst ágætt tóbak til þess að vefja. Það hét Midland og var hollenzkt. Ég hef reykt þetta tóbak alveg síðan sígaretturnar hækkuðu síðast og hefur líkað það ágætlega. En um daginn, þegar ég ætlaði að kaupa mér nýtt bréf af þessu ágæta tóbaki, þá var það ekki til. Eg spurði, hvort það mund ekki koma bráð- lega, en mér var svarað, að það yrði ekki flutt inn aftur, fyrr en kannski ein- hvern tíma í vor! Neydd- ist ég því til að kaupa mér aðra tegund, Grunó, en það er alveg óreykjandi. Það er ekki verandi í her- bergi, þar sem menn eru að svæla það bannsetta hey. Mér var því nauðug- ur einn kostur að fara aft- ur að kaupa mér sígarettu- pakka á háa verðinu. Mér finnst þetta déskoti hart og ég get ekki að því gert að gruna tóbakseinka- söluna um græsku í þess- um efnum. Til hvers er verið að brýna fyrir mönn- um sparnað, þegar þeim er svo ekki leyft að spara, ef sparnaðurinn bitnar of- urlítið á ríkiskassanum? Virðingarfyllst, Annar reiður To-Baccus. Okkur finnst reiði bréf- ritara réttmæt í fyllsta máta. Gaman væri að fá skýringu á því hjá tóbaks- einkasölunni, hvers vegna þetta ágæta reyktóbak, Midland, er ekki lengur flutt inn, einmitt þegar fólk var byrjað að kaupa það í stórum stíl. SJÓNVARPSSÝKI Kæri Póstur! Þú ert eini vettvangur- inn, þar sem persónuleg vandamál eru leyst fyrir fólk. Þess vegna langar mig til að skrifa þér, að vísu meira í gamni en al- vöru. Og þó! Þannig er mál með vexti, að við hjónin keypt- um okkur sjónvarp fyrir rúmu ári síðan. Eg var mjög lukkuleg yfir tækinu okkar til að byrja með. Við sátum og horfðum á alla dagskrána hvert ein- asta kvöld. En eftir á að gizka þrjá mánuði, var ég búin að fá nög af sjón- varpsglápinu. Síðan hef ég ekki nennt að horfa á nema einstaka þætti, eins og Forsytesöguna og slíkt öndvegisefni. En það er aðra sögu að segja af manninum mín- um. Hann situr enn hvert einasta kvöld við tækið og horfir á hvern einasta þátt. Ef gestir koma í heimsókn, fæst hann ekki til að slökkva á tækinu, þótt ég reyni á fínlegan hátt að fá hann til þess. Hann er hreinlega sjónvarpssjúkur. Við höfum ekkert farið út, síðan sjónvarpið kom. Áð- ur fórum við oft í bíó og leikhús og stundum meira að segja á dansleiki. Hvernig get ég læknað manninn minn af þessum skelfilega sjúkdómi? Sýndu nú snilld þína og gefðu mér gott ráð! Með beztu kveðju og

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.