Vikan - 30.01.1969, Síða 7
þökk fyrir framhaldssög-
una um Forsyte-ættina.
Lína.
Bjóddu móður þinni og
öllum Ieiðinlegnm frænk-
um og nágrönnum, sem
ekki hafa sjónvarp, að
koma sem oftast til ykkar
og horfa á dagskrána. Ætli
lionum fari þá ekki að
þykja nóg um þennan ei-
lífa gestagang og ráp kvöld
eftir kvöld? Ef það dugar
ekki skaltu hæla öllum
þeim karlmönnum, sem
birtast á skerminum, ef
þess er nokkur kostur.
Segðu, að þessi eða hinn
sé sjarmerandi og sexý og
þú gætir vel liugsað þér.
. . . Þú skalt „daðra“ við
allar helztu karl-sjón-
varpsstjörnurnar okkar
(auðvitað bara í orði). Ef
honum er ekki alveg sama
um þig, þá ætti þetta ráð
að gagna eitthvað að
minnsta kosti.
KVENNAGULUÐ OG
BYLTINGARFORINGINN
Kæri Póstur!
Beztu þakkir fyrir grein-
ina um Omar Shariff, sem
birtist nýlega í Vikunni.
Ég er einlægur aðdáandi
hans og fer að sjá hverja
einustu mynd sem sýnd er
hér á landi með honum. Ég
sá síðast Zhivago lækni og
fannst Omar alveg dásam-
legur. Nú las ég í Vikunni
hjá ykkur í dag, að hann
væri búinn að leika í nýrri
mynd, sem fjallar um
harmleikinn í Mayerling.
Er það nýjasta myndin
hans, eða hefur hann leik-
ið í einhverri mynd síðan?
Ég vona, að þú birtir
sem oftast fréttir, greinar
og myndir um Omar Shar-
iff.
S.V.G.
Það er nýjast af Omari
Shariff að frétta, að hann
er um þessar mundir að
Ieika í mynd, sem verið er
að taka og íjallar um ævi
byltingarforingjans fræga,
Che Guevara. Auðvitað
leikur Omar sjálfan höfuð-
paurinn, en hvernig
kvennagullinu hæfir hlut-
verkið skal ósagt látið,
l’yrr en myndin kemur.
Kæra Vika!
Ég hef fylgzt með grein-
unum um Marokkó af
miklum áhuga og ánægju,
og nú langar mig að vita,
hvernig auðveldast er að
komast þangað. Þarf uppá-
skrift á vegabréf, og sé
svo, hvert á maður að
snúa sér til að fá hana?
Þarf bólusetningarvottorð?
Með fyrirfram þökk fyrir
svarið.
Magnús S.
Auðveldast er að kom-
ast þangað með því að taka
íslenzka flugvél — við
iórum með þotunni Gull-
faxa — til Kaupmanna-
hafnar eða Lundúna og
þaðan áfram til Casablanca
með SABENA. Hér heima
hefur Flugfélag íslands
með liöndum fyrirgreiðslu
fyrir SABENA. Áritun á
vegabréf þarf ekki, né
heldur bólusetningarvott-
orð. Góða ferð.
BRAÐSNJALLT ARAMOTA-
SKAUP
Kæri Póstur!
Mig langar til að koma á
framfæri ofurlítilli athuga-
semd í sambandi við ára-
mótadagskrá sjónvarpsins,
sem var alveg prýðileg í
alla staði. Bezt var Ára-
mótaskaupið í umsjá Flosa
Ólafssonar og Ólafs Gauks.
Hér var tvímælalaust um
að ræða bezta skopþátt,
sem fram hefur komið hér
á landi í langan tíma. Það
var talsverður broddur í
skaupinu hjá Flosa að
þessu sinni, og ef til vill
gerði það gæfumuninn. En
nú kem ég að aðalefninu:
Verður Áramótaskaupið
ekki endurtekið? Ég veit
um marga, sem misstu af
því — af eðlilegum orsök-
um.
Með þökk fyrir birting-
una.
H. J.
Við erum sammála hréf-
ritara um það, að Ára-
mótaskaupið sé líklega
eitthvert bezta innlenda
skemmtiefni, sem komiö
hefur fram í langan tíma.
Við skulum vona, að það
verði endurtekið sem fyrst.
HAGSÝN
HÚSMÓÐIR
NOTAR
NÚ ER AUÐVELT
AÐ ENDURNÝJA
ELDHÚSIÐ
HINGAD TIL
hafa slíkar endurbætur kostað mikið rask, sem margar hús-
mæður vilja hlífa sér við. Nú er allt breytt. Við tökum gömlu
innréttinguna niður og setjum upp nýja og nýtízkulega, inn-
flutta innréttingu — allt ó tveim dögum. Við breytum ekki
heimilinu í trésmíðaverkstæði á meðan og þér undrizt, hvað
eldhúsið gerbreytirst, hvað íbúðin breytist og hvað störfin
verða ánægjulegri. Allar okkar innréttingar eru úr harðplasti
í miklu litaúrvali og þér getið fengið eldavél, uppþvottavél
og isskáp frá sama framleiðanda. Verðið er mjög hagstætt.
HÚS OG SKIP Ármúli 5 - Símar: 84415-84416
V___________________________________/