Vikan - 30.01.1969, Qupperneq 9
EITURLYFJA-
NEYTENDUR
Kæra Vika:
Ég ætla að biðja þig að
ráða fyrir mig draum, sem
mig dreymdi fyrir stuttu
síðan.
Mér fannst ég vera í
Reykjavík (ég bý í kaup-
túni úti á landi) með syst-
ur minni (sem er 15 ára)
og vinkonu hennar. Við
vorum þrjár á gangi um
borgina. Þá komum við að
húsi nokkru. Það var ljótt
steinhús. Allt í einu varð
ég vör við, að systir min
og vinkona hennar voru
horfnar. Ég hélt, að þær
hefðu farið inn í húsið og
fór þess vegna sjálf inn.
Þegar ég er komin inn
lokast hurðin á eftir mér
og við mér blasir ógeðsleg-
ur gangur. Ég ætlaði að
flýta mér strax út aftur,
en þá kom maður til mín,
heldur skuggalegur ásýnd-
um. Það var auðséð, að
þetta var eiturlyfjaneyt-
andi. Hann segir við mig:
Sá sem er eitt sinn kom-
inn hingað inn, mun aldrei
komast út aftur.
Ég varð hrædd og hljóp
framhjá honum. Þá birtist
mér Japani með alls kon-
ar lýð í kringum sig. Þessi
iýður var allur að reykja
og éta eiturlyf. Margir voru
gulir í framan og óhugn-
anlegir. Ég hleyp áfram í
örvæntingu minni, en í
sama bili kallar svertingi
á eftir mér:
Við skulum drepa þessa.
Skelfingin þyrmir yfir
mig og ég æpi af öllum lífs
og sálar kröftum. Þá kom
til mín maður, sem var
gjörólíkur öllum hinum, og
þykist vera að kyssa mig.
Þegar hinir sáu þetta hættu
þeir við áætlun sína.
Næst fannst mér ég hafa
gengið ganginn í hring og
var aftur komin að dyr-
unum. Þær opnuðust og ég
fór út í fylgd með þessum
manni. Þá sé ég stelpurnar
fyrir utan. Þær ruddust
inn. Ég reyndi að varna
þeim veginn og koma í veg
fyrir með öllum tiltækum
ráðum að þær færu inn, en
allt kom fyrir ekki.
Skömmu seinna sá ég þær
standa fyrir innan. Þær
voru þá báðar orðnar gul-
ar í framan og voru með
eiturlyf. Þær hlógu að mér
og sögðu, að þeim liði ynd-
islega og þær vildu aldrei
koma út aftur.
Að svo búnu settist ég
inn í bíl og sá þá konu út
um afturgluggann, gamla
konu, sem er dálítið ill-
gjörn (Ég þekki hana vel).
Svo vaknaði ég, og ég er
viss um að ég gleymi þess-
um draumi aldrei. Hann
stendur svo í mér.
Deitla.
Að dreyma að maður sé
eiturlyfjaneytandi er fyrir
svikum og prettum. Jafn-
vel veikindum eða öðrum
ófarnaði. Líklega er það
systir þín og vinkona henn-
ar, sem verða fyrir ein-
hverjum óþægindum, því
að þú sleppur úr þessu
skuggalega liúsi naumlega
og við illan leik. Annars er
þessi draumur einna lík-
astur martröð, og þess
vegna ekki ráðlegt að taka
of mikið mark á honum.
Við mundum segja, að
þessi draumur væri fyrir
einhverjum erfiðleikum
systur þinnar, en líklcga
eru þeir ekki stórvægilegir.
KARLMANNS-
GRÁTUR OG
SJÁLFVIRK
ÞVOTTAVÉL
Kæra Vika:
Mig langar til að fá
ráðningu á draumi, er mig
dreymdi fyrir nokkru. Mér
fannst ég vera að rífast við
mann, sem ég er búin að
vera með lengi og það end-
aði með því, að hann fór
að gráta og varð ég hissa
á því. Mér fannst vera
komin þarna tvö börn, sem
ég á og vorum við öll á
náttfötunum eða fáklædd.
Mér fannst okkur líða
mjög vel. (Ég er fráskilin).
Framhald á bls. 50.
BÆTIR ÚR SOLARLEYSí SKAMMDEGISINS.
KAIIPIB OSRAM
VEGNA GÆÐANNA.
—
Þér SDariO með áskrift
IIIKAN
Skipholtl 33 - síml 353SO
L-----------
5. tbi. VIKAN 9