Vikan


Vikan - 30.01.1969, Blaðsíða 10

Vikan - 30.01.1969, Blaðsíða 10
Blunda nú bændur? Ofurlítiö rabb um sölu- og fræöslumiðstöö danska búnaðarsambandsins í Kaupmannahöfn og skort hérlendis á hliöstæöri starfsemi. Texti: Sigurður Hreiöar Það var nánast tilviljun og ekki mér að þakka, að ég rakst í haust á fyrirtækið Ekkodan- mark í Kaupmannahöfn. Eg hef tvívegis komið til þeirrar borg- ar síðan Ekkodanmark reis og hélt í bæði skiptin til í nándinni, en það var ekki fyrr en innfædd- ur Dani bauð mér þangað til snæðings í þriðju heimsókninni, að ég vissi hvers kyns var. Þegar ljósið reis upp fyrir mér, datt mér þegar í stað í hug Bændahöllin okkar hér í Reykja- vík, sú sem stendur við Haga- torg, og síðan hefur samanburð- tu á Ekkodanmark og Bænda- höllinni verið huga mínum mjög áleitinn. Ekki vegna þess, að í Ekkodanmark sé hótel, amerískt bókasafn eða aðsetur eins helzta flugfélags landsins, eins og í okk- ar Bændahöll, heldur af því að Ekkodanmark er bœndahöll eins og við þurrbýlingarnir helzt hugsum okkur að hún ætti að vera. Þessi Kaupmannahafnarmið- stöð dönsku landbúnaðarsamtak- anna var opnuð árið 1965. Hún liggur mjög vel við miðborg- inni, stendur við Axeltorv og Hammerichsgade beint á móti afgreiðslu SAS, á að gizka fimm mínútna gang eða minna frá Ráðhústorginu. Og það er ekki einasta, að húsakynnin þar séu sérlega viðkunnanleg, heldur er fólkið, sem þarna starfar, vin- gjarnlegt og kumpánlegt án þess að vera uppáþrengjandi. Á litlum seðli, sem ég tók með mér úr þessu húsi, stendur hvers konar starfsemi er rekin á staðn- um. Þar segir: Restaurant Ekko, sæti fyrir 112 gesti, verð eins og í íínustu veit- ingahúsum Kaupmannahafnar. Matarbar FOLDEN með 38 sætum. Hóflegt verð. Glóðarsteíkurverzlun fyrir út- seldan mat, sömuleiðis mat til- búinn til matreiðslu og danskar kökur. E-Delikatessen, matvöruverzl- un með beztu danskar landbún- aðarvörur. Frosið og niðursoðið. Salur til sýnikennslu og kvik- myndasýninga með 64 sætum, til að kenna danska matargerð og veita ráðleggingar. Sýnikennsla fer fram á dönsku og erlendum tungumálum. Upplýsingaskrifstofa og mat- fræðilegt bókasafn með mat- reiðslubókum og uppskriftum á dönsku og öðrum tungumálum. Aðaltilgangur matarmiðstöðv- 10 VIKAN 5 tbl

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.