Vikan


Vikan - 30.01.1969, Page 20

Vikan - 30.01.1969, Page 20
■ ■ ■ 20 VIICAN 5'tbl- námuverkamanna ásamt nokkrum jafn- öldrum sínum, sem léku undir. Hljómsveit þessi varð skammlíf, en eigandi einu hljóðfæraverzlunar staðar- ins hafði fengið augastað á Mary og kom því í kring, að hún söng oft á laug- ardagskvöldum hér og þar í þorpinu. IJað var einnig hann, sem kom henni á framfæri við þáttinn Opportunity Knocks í brezka sjónvarpinu. Mary fór til Cardiff til þess að syngja til reynslu fyrir BBC. Ilún ein var valin úr hópi 200 drengja og stúlkna. Þáttur- inn var sýndur í sjónvarpinu 4. maí, daginn eftir afmælisdag Mary, en þá varð hún átján ára. Twiggy hlustaði á þáttinn og sagði Paul McCartney frá hve vel og skemmtilega þessi Mary IIop- kins hefði sungið. Þegar þetta var vildi svo vel til, að Paul var einmitt að leita með logandi ljósi að nýjum stjörnum fýrir Apple Ilecords. „Það gerðist daginn eftir að sjónvarps- þátturinn var sýndur,“ segir Mary. „Eg kom heim frá Cardiff og þar beið mín símskeyti, svohljóðandi: „Hringdu i Pet- er Brown. Apple Hecords.“ Annað stóð ekki í skeytinu og ég varð auðvitað fjarska úndrandi. Daginn eftir hringdi ég og spurði eftir Peter Brown. Þegar ég fékk samband, spurði ég: — Er þetta Peter Brown? Röddin svaraði: — Er þetta Mary Hopkins? Hann sagði ekki liver hann var, en síðar komst ég að raun um, að þetta var enginn annar en Paul McCartney. Hann Jiolir ekki að segja til nafns síns, skiljið Jjér. Hann spurði, hvort ég hefði

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.