Vikan


Vikan - 30.01.1969, Qupperneq 33

Vikan - 30.01.1969, Qupperneq 33
Leynífarþe tnn ritínn Framhald af bls. 17 þetta tækifæri, og mér kom það vel að geta grannskoðað hvert andlit um leið og þeir fóru fram- hjá mér til að sækja stoðirnar. Við morgunverðarborðið bragð- aði ég ekki á neinu, en var svo kaldur á manninn og drembilát- ur, að stýrimennirnir urðu fegn- ir að standa upp og fara eins fljótt og þeir gátu án þess að gera sér sjálfum skömm til, en ég var varla með sjálfum mér, svo mikið fékk það á mig að þurfa að leika svona tveim skjöldum. Aldrei fór hann mér úr huga, þessi leyndi tvífari minn, hinn huldi helmingur persónu minnar, sem átti allt undir trúnaði mínum, og svaf að baki þessara dyra sem voru andspænis mér, þar sem ég sat við borðið. Þetta hlýtur að hafa verið því líkast sem að vera að verða brjálaður, en miklu verra samt, því mér var það of vel ljóst. Ég ætlaði ekki að geta vakið hann, i mínútu skók ég hann og hristi, en þegar hann loksins opnaði augun, var hann glað- vakandi um leið og mundi allt. Hann leit á mig spyrjandi augna- ráði. „Það hefur ekkert komið fyr- ir ennþá,“ hvíslaði ég. „Nú verð- ið þér að fara inn í baðherberg- ið.“ Hann fór þangað og heyrðist ekki til hans fremur en draugs, en ég hringdi á brytann, mætti hcnum alls óhræddur og bað hann að taka til í einkakáetu minni meðan ég færi í bað, — ,,og vera fljótur að því.“ Ég talaði í þeim tón að það lokaði fyrir allar vífilengjur, og hann sagði: „Já, herra,“ og hljóp af stað að sækja sér áhöldin. En ég fór í bað og var lengi, klæddi mig til hálfs, blístraði þýtt og trallaði, brytanum til hughreyst- ingar og sálubóta, en hinn þátt- ur lífs míns stóð á meðan eins og staur, ógn illa útlítandi í dagsljósinu, og bærði hvorki legg né lið, en plássið var líka í það þrengsta. Hann hleypti í brúnirnar lítið eitt. Þegar ég fór frá honum þarna var brytinn um það leyti að verða búinn með verk sitt, og ég kallaði fyrsta stýrimann fyrir mig og átti við hann stutt sam- tal um einhvern hégóma, en til- gangurinn var sá að sýna hon- um, þessum loðmullulega skegg- júða, inn í hvern krók og kima hjá mér. Eftir það þóttist ég þess umkominn, að loka dyrun- urn og bjóða manni mínum að koma og vera þar inni í klefan- um, sem minnst bæri á, um ann- að var ekki að ræða. Hann varð að sitja á litlum stól, sem hægt var að leggja saman, en yfir honum héngu fötin mín og huldu hann til hálfs. Við heyrðum að brytinn kom inn í baðherbergið utan úr salnum, fyllti þar allar vatnsflöskur, þvoði baðkerið, tók allt til handargagns, þurrkaði af, hvert hljóð heyrðist, strokur, snögg hljóð og skarkali, og áður en varði var hann farinn út aft- ur og inn í salinn, við heyrðum lykli snúið í skránni. Svona fór ég að því að gera tvífara minn ósýnilegan. Ekkert ráð annað hefði dugað betur eins og á stóð. Svo sátum við þarna saman, ég við skrifborðið mitt, tilbúinn að fara að sýsla við einhverjar skriftir af ákafa, hvenær sem til þyrfti að taka, hann að baki mér og sást ekki frá dyrunum. Ekki þorðum við að yrðast á meðan fólk var á fótum, og því síður að ég þyrði að hvísla að sjálfum mér. Við og við varð mér á að skotra til hans augunum, þar sem hann sat eins og beinskor- inn í lágu sæti, fæturnir fast saman, krosslagðar hendur, höf- uðið niðri í bringu, og datt ekki af honum né draup. Hver, sem hefði séð hann, hefði haldið, að hann væri ég. Ég var sjálfur hugfanginn af þessu, og var alltaf að líta við til að sjá hann, og einmitt í því heyrði ég rödd fyrir utan dyrnar segja: „Afsakið, herra.“ „Allt í lagi!“ . . . Ég hafði ekki af honum augun, svo ég sá vel hvernig honum varð við þegar röddin fyrir utan dyrnar mælti þessi orð: „Skip að koma, stef- ir beint á okkur." Hann hrökk við — og var það hin eina hrær- ing hans í marga klukkutíma. En ekki leit hann upp. „Allt í lagi. Setjið stigann út.“ Ég dokaði við. Ætti ég að hvísla einhverju að honum? En hverju? Hann virtist lokaður inni í sjálfan sig, eins og ekkert hefði nokkru sinni fengið á hann. Hvað gat ég sagt við hann. sem hann vissi ekki þá þegar. . . . Að lokum fór ég upp. o—o Skipstjórinn á Sefóru hafði þunnt kjálkaskegg rautt, sem náði frá eyra til eyra, og þann hörundslit sem rauðhærðir hafa oftast, ásamt þeim daufingjalega bláma augnanna, sem þessu fylg- ir. Ekki mátti hann íturvaxinn kallast, hann var svo baraxlaður, tæplega meðalmaður á hæð, og annar fóturinn ögn íbjúgari en hinn. Hann heilsaði með handa- bandi, og leit í kringum sig án þess að festa augu á neinu. Mér sýndist hann mundu vera dauf- gerður seiglingsmaður, og ég tók á móti honum með mestu kurt- eisi, en það sýndist mér hann ekki kunna við. Líklega var hann feiminn. Hann sagði mér nafn sitt (líklega Archbold, en ég man það nú ekki eftir öll þessi ár) og nafnið á skipinu og nokkur atriði önnur tók hann fram, með umli og tafsi, eins og hann skammaðist sín fyrir það sem hann var að segja, eða eins og glæpamaður, sem nauðugur er knúinn til að játa á sig glæp. Hann sagðist hafa fengið vont á sjónum, hræðilega vont, ,,— og konan mín með í ferðinni, ofan á allt annað.“ Við vorum setztir inn í klefa minn og þjónninn kom með flösku og glös á bakka. „Nei, þökk fyrir!“ Aldrei sagðist hann bragða áfengi. En sagðist mundu þiggja glas af vatni. Af því drakk hann svo tvö ölglös full. Þorstlátt, þetta hérna. Síðan eld- snemma hafði hann verið að gera rannsóknir á eyjaklasanum í kring um skipið. „Til hvers þá, að gamni?“ „Nei, síður en svo.“ Hann and- varpaði. „Erfitt skyldustarf.“ Mér gekk illa að greina í hon- um umlið, svo ég sagðist vera ákaflega heyrnarsljór, því mið- ur. „Og það svona ungur maður!“ sagði hann og starði á mig þess- um blámenguðu, ógreindarlegu augum. „Hvað veldur - einhver sjúkdómur?" sagði hann, svo hluttekningarlaust sem mest mátti verða, og eins og honum fyndist mér vera það fjandans mátulegt. „Já, ég varð veikur,“ játaði ég svo hressilega og glaðlega að hann hrökk við. En mér tókst það sem ég ætlaði mér, því nú brýndi hann róminn. Ekki nenni ég að hafa það eftir, sem hann sagði. Það voru meira en tveir mánuðir liðnir síðan atburðirn- ir gerðust, og hann hafði velt því svo lengi fyrir sér, að allt var komið í graut, en ekki fannst honum minna um það fyrir því. „Hvað mynduð þér hafa sagt, ef annað eins hefði komið fyrir á skipinu yðar? Ég hef verið skipstjóri á Sefóru í fimmtán ár. Allir vita, að ég er vanur sjó- mennsku." Hann var svo dauðans hrelld- ur á svipinn, að ég mundi hafa vorkennt honum ef ég hefði gleymt þessum óvænta lags- manni mínum í klefanum, tví- fara mínum, hrakið mynd hans frá hugskotsauga mínu. Þarna sat hann bak við vegginn, í eins til tveggja metra fjarlægð frá okkur, þar sem við sátum í setu- stofunni. Ég leit með kurteisi til Archbolds kapteins (ef hann hét þetta þá), en sá hann samt ekki, heldur hinn, þar sem hann sat í náttfötum á lágum hnalli, með bera fætur fastklemmda saman, krosslagðar hendur, drúpti höfði í bringu og hlustaði á hvert orð sem við sögðum. „Þvílíkt og annað cins, ég hef verið á sjó í þrjátíu og sjö ár, aldrei hefur neitt þessu líkt kom- ið fyrir á nokkru ensku skipi. Og það á mínu skipi. Og konan mín með í ferðinni.“ Ég var úti á þekju. „Haldið þér,“ sagði ég, „hald- ið þér ekki að ósjórinn mikli, sem reið yfir, einmitt þá, muni hafa drepið manninn? Ég hef séð haföldu drepa mann, bein- línis. Hún hálsbraut hann.“ „Guð hjálpi okkur!“ kveinaði hann, og leit á mig þessum grunnfærnislegu augum. „Haf- alda, ekki nema það þó! Aldrei sá ég sjódauðan mann neitt lík- an þessu.“ Hann virtist hneyksl- aður ofan í tær að heyra mig segja þetta. Ég horfði á hann á móti, öldungis grandalaus, en þá kemur hann allt í einu fast að mér og rekur út úr sér tunguna eins langt og hann kom henni, svo ég hrökklaðist ósjálfrátt aft- ur á bak. Eftir að hafa virt rósemi mína á sinn frumlega hátt, kinkaði hann kolli eins og sá sem betur veit. Ef ég hefði séð þessa sjón, fullvissaði hann mig um, mundi ég ekki hafa getað gleymt' því meðan ég lifði. Veðrið var svo vont að ekki hafði verið viðlit 5. tbi. vikan 33

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.