Vikan


Vikan - 30.01.1969, Síða 36

Vikan - 30.01.1969, Síða 36
ráð að leita að honum í kola- geymslunni?" Það ætlaði að fara að hlaupa snurða á þráðinn. En svo urðu þeir á eitt sáttir áður en lauk. Ég þykist þess fullviss, að hann hafi drekkt sér. Hvað haldið þér, herra?“ „Ég gizka ekki á neitt.“ „Þér hafið enga ályktun dreg- ið?“ „Ekki nokkra.“ Svo fór ég frá honum. Ég fann, að honum hlaut að hafa sýnzt ekki allt með felldu með mig, að ég skyldi fara svona fljótt, en ég þoldi ekki við lengur, og farþeg- inn minn einn niðri. Líklega þoldi hann ekki verr við en ég. Fjarskalega áttum við önugt báðir. En það þótti mér samt dá- lítill léttir, að mega vera hjá honum. Ekki var nokkur einasta sál á öllu skipinu, sem ég þorði að gera að trúnaðarmanni mín- um. Fyrst að saga hans var kom- in um allt skipið var engin leið að biðja nokkurn mann annan fyrir hann, og miklu meiri hætta á ferðum hér eftir en hingað til, ef upp um okkur kæmist.. . . Brytinn var að leggja á borð- ið, því komið var fast að hádegi, og við máttum ekki tala saman nema með augunum fyrst. Seinna um daginn gerðum við samt tilraunir til að hvíslast á, mjög varlega, það var einmitt bölvað hve hljótt var í skipinu á þessum sunnudegi. Raunar var allt okkur öfugsnúið, og tíminn ekki sízt, því ekki gat þetta gengið til eilífðar. Það dugði ekki einu sinni að treysta for- sjóninni, svo stór var sök manns- ins. Má ég játa það, að hugsun- in um þetta síðasta var mér einna þungbærust af öllu. Og hvað snerti tilviljanir, sem ef til vildi mundu greiða úr fyrir okk- ur, þá fann ég að á það mundi ekki neitt mega treysta, og ég vonaði jafnvel að ekkert óvænt kæmi fyrir, því þá var eins lík- legt, að það snerist okkur til ógæfu. „Heyrðuð þér nokkuð?" spurði ég fyrst af öllu, þegar við byrj- uðum að hvíslast á. Hann hafði heyrt allt, Og því til árétingar sagði hann: „Hann sagði yður, karlinn, að hann hefði varla þorað að fela mér verkið.“ Ég þóttist skilja, að hann ætti við fyrirskipunina um að vinda upp framseglið. „Já, hann hélt, að stormurinn mundi taka það á meðan.“ „Ég get fullvissað yður um, að hann gaf aldrei þessa fyrirskip- un. Það getur verið, að hann haldi að hann hafi gert það, en hann gerði það ekki. Hann stóð þarna hjá mér á skutpallinum, eftir að aðalseglið fór, og var að vola um það, að nú væri öll von úti, gólaði og skældi um þetta og gerði ekki neitt, og myrkrið að detta á! Það var leitt að heyra. Ærður skipstjóri og því- 36 VIKAN 5-tbI' Yeriff örugg — Rautfu Hellesens rafhlöffurnar svíkja ekki Transistor—Rafhlöður Raftækjadcild Hafnarstræti 23 Sími 18395 líkur voði á ferðum! Ég stálsetti mig öldungis, og tók sjálfur frumkvæðið, sneri mér frá hon- um bálreiður, og-------En hvað þýðir að vera að tala um þetta? Þér megið gerst vita! Haldið þér ekki að ég hafi verið orðinn þeim þó nokkuð reiður, fyrst ég kvaddi engan mann til að hjálpa mér? En það var ég nú raunar ekki. Nei, ekki ég. Kannske karl- inum? Það kann að vera. Þetta var ekki neinn venjulegur sjó- gangur, það voru hamfarir! Ég gizka á að heimsendir verði þessu eitthvað líkur, og að hverjum manni mundi þykja nóg um að sjá annað eins vífa að og skella á, en að hafa það dag eft- ir dag, — það get ég vorkennt. Ég held, ég hafi ekki verið miklu betur á mig kominn en hinir. Það sem úrslitum réð var það, að ég var stýrimaður á þessum koladalli, ja, að minnsta kosti.“ „Ég skil þetta allt ósköp vel,“ hvíslaði ég í eyra honum af ein- lægni. Hann var orðinn andstuttur af að hvísla, ég heyrði að hann var dálítið móður. Málið hafði aldr- ei legið Ijósar.a fyrir. Það var sami fílefldi krafturinn, sem hafði gerzt til að bjarga lífi tutt- ugu og fjögurra manna, og tor- tímt hafði einum. En nú gafst ekki tóm til að dæma frekar í málinu í það skipti, —• fótatak í salnum, og barið fast að dyrum. „Nú er að hvessa, það er korninn byr, herra,“ var sagt fyrir ulan dyrn- ar. Þarna gafst mér umhugsun- arefni og viðfangsefni af nýrri tegund, jafnvel líklegt að það tæki til tilfinninga minna einn- ig- „Setjið upp segl,“ kallaði ég gegnum lokaðar dyrnar. ,,Ég kem upp undir eins.“ Nú lá fyrir mér að byrja að kynnast skipi mínu. En áður en ég fór út leit ég til hans og hann leit á móti, við horfðumst í augu þessir tveir menn, jafnóþekktir á skipi þessu. Ég benti á lága stólinn í skotinu, og lagði um leið fingur á varirnar. Hann svaraði með handahreyfingu, dá- lítið ógreinilegri, og fylgdi dauft bros, eins og af iðrun. Það er óviðkomandi þessari sögu að skýra frá því, hvernig þeim manni er innanbrjósts, sem í fyrsta sinn finnur skip skríða undir sér að sjálfs síns boði. Hvað mig snerti var þetta ekki einskær ánægja. Ég var ekki skýlaus yfirráðandi þessa skips, og það olli því, að ég hafði leyndarmál að geyma, sem eng- inn á skipinu mátti komast á snoðir um. Ég var ekki með cin- um huga við skipið mitt, held- ur var hugurinn tvískiptur, og þetta hafði á mig óþægilegí lík- amleg áhrif, eins og það gengi mér í merg og bein. Áður en klukkutími var liðinn frá því að skipið lagði af stað, þurfti ég að biðja fyrsta stýrimann minn (sem stóð rétt við hliðina á mér) að taka á kompásinn afstöðu af musterinu, og vissi þá ekki fyrri til en ég var farinn að hvísla. Ég áttaði mig fljótt, en hann hafði heyrt nóg. Ég get ekki lýst viðbrögðum hans betur en með því að segja að hann hafi fælzt. Eftir það varð á honum sú breyt- ing, að hann varð þurr og fá- máll, eins og hann vildi gefa í skyn, að hann vissi nokkuð, sem bezt væri að tala sem minnst um. Stuttu seinna fór ég frá borð- stokknum t.il þess að líta á kompásinn, og læddist þangað svo undur laumulega, að maður- inn, sem sat við stýrið, rak upp stór augu. Auðvitað var þetta varla umtalsvert, en það hefði getað verið nóg til að gera mig hlægilegan í augum skipsmanna minna, — ef ekki annað verra. Farmanni eru sum orð, sumar bendingar svo tamar, að heita má að þetta komi ósjálfrátt, eins og þegar deplað er auga, þegar eitthvað nálgast, sem auganu stendur hætta af. Fyrirskipanir hans og bendingar eiga að geta komið umhugsunarlaust. En þessi ómeðvitaða látasnilld brást mér nú. Ég varð að taka á öllu, sem ég átti til, svo bundinn sem hugurinn var við klefann minn og þann, sem í honum var, til þess að geta sinnt skyldu- störfum mínum uppi, án þess of mikið bæri á því hvað þau voru mér utangarna. É'g fann, að þeim þótti ég vera furðu óöruggur í stjórninni, þessum mönnum, sem nú höfðu mig undir smásjá, og víst höfðu öðru vanizt. Og fleira var það, sem mér þótti ískyggilegt. Á öðrum degi á sjónum fór ég aftur eftir þil- farinu (ég hafði stráskó á ber- um fótunum) og staðnæmdist við búrdyrnar, (sem stóðu opn- ar) og ávarpaði brytann. Hann var eitthvað að gera og sneri baki við mér. Þegar hann heyrði mig tala hrökk hann ofboðslega við, missti bolla á gólfið og hann brotnaði. „Hver þremillinn gengur að yður?“ spurði ég, svo hissa sem ég varð. Hann varð afar skömmustu- legur. „Fyrirgefið, herra, ég hélt fyrir víst, að þér væruð í klef- anum yðar.“ „Nú sjáið þér að ég er þar ekki.“ „Já, herra. Ég hefði getað svarið að ég heyrði til yðar þar inni rétt áðan. Ég skil þetta ekki . . . afsakið mig, herra.“ Það fór um mig hrollur. Við vorum orðnir svo handgengnir hvor öðrum, hinn leyndi tvífari minn og ég, að ég gat ekki neitt um þetta í þeim óttablöndnu, fáu hvíslingum, sem okkur fóru á milli. Ég gizka á, að hann hafi óvart gert einhvern lítilsháttar hávaða snöggvast. Það hefði

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.