Vikan


Vikan - 30.01.1969, Qupperneq 46

Vikan - 30.01.1969, Qupperneq 46
KVIKMYND IJM EL CORDOBÉS? Einn skæðasti nautabani Spánar nú um stundir, Manuel Benitez, sem gengur undir nafninu E1 Cordobés, er um þess- ar mundir staddur í Bandaríkjunum. Sagt er að ef til vill standi til að gera kvikmynd um líf þessa ólæsa hænsnaþjófs, sem hófst til auðs og l'rægðar með því að pína tóruna úr graðungum af' meiri kúnst en aðrir menn. HINRIK I DWVHER Hinrik prins, maður Margrétar Danaprinsessu, er þegar orðinn höfuðsmaður í danska flughernum. En hann vill líka komast í landherinn og þjónar nú i þeim tilgangi við Prinsens Livregiment í Viborg. Námið ætti honum að sækjast vel, því að ekki var hann með öllu ókunnugur hermennsku fyrir komuna til síns nýja fósturlands. Hann þjónaði sem sé á DÝRLINGIJRINN KVÆNIST Karlmaðurinn á myndinni er sjálfur sjónvarpsdýrlingurinn lloger Moore, og hann var rétt nýverið að ganga í hjónaband með kvenmanninum, sem sést hér jneð honum. Hjónavígsl- an hlýtur þó að hafa verið formleg í þess orðs sterkustu merk- ingu, því að hann er búinn að búa með stúlkunni — Louisa Mattioli heitir hún — í átta ár og eiga þau tvö börn saman. HVERNIG SEFURÐU, MORÐINGJASKEPNA? Aldrei líður svo dagur að einn Frakki eða fleiri panti ekki sím- tal við Heinz Lammerding, vel- efnaðan eiganda byggingafyrir- tækis í Diisseldorf, Vestur- Þýzkalandi. Þeim er forvitni á að vita hvort hann eigi gott með svefn. En Herr Lammerding svarar aldrei símköllum erlend- is frá, og ekki vill hann heldur tala við blaðamenn. í síðari heimsstyrjöldinni var Lammerding þessi hershöfðingi og yfirmaður hins illræmda SS- herfylkis Das Reich. Árið 1951 dæmdi franskur dómstóll hann til dauða, að honum sjálfum fjarverandi. Þá var ekki vitað hvar hann hélt sig og margir töldu hann dauðan. En tveimur árum síðar, þegar tuttugu og einn liðsmanna hans voru fyrir rétti í Bordeaux, skrifaði hann réttinum ótilkvaddur og bar blak af þeim. Síðan hvarf hann aftur. Og nú lifir hann í vellystingum praktuglega í Dússeldorf. Vest- ur-tþýzk lög banna að hann sé framseldur. Hann hlaut dauðadóm fyrir að hafa átt hlut að hengingu hundr- að tuttugu og fjögurra borgara í Trulle í Mið-Frakklandi. Sá glæpur var þó ekki hans stærsti. Tíunda júní 1944 marséruðu her- menn hans inn í þorpið Oradour- sur-Glane. Þeir ráku karlmenn þorpsins saman í hóp og skutu þá niður. Konum og börnum smöluðu þeir inn í kirkju stað- arins, læstu dyrunum og kveiktu svo í byggingunni. Af fjögur hundruð þorpsbúum komust að- eins tveir undan með lífi. Frakkar krefjast þess nú að Lammerding verði annaðhvort framseldur þeim eða honum stefnt fyrir rétt í Þýzkalandi. Gert er ráð fyrir að Bretar styðji þá kröfu. ☆ SKO NORSARANA Frændur vorir Norðmenn kváðu nú vera heimsins mesta íþróttaþjóð, að tiltölu við fólks- fjölda. Á síðastliðnum vetrar- og sumar-ólympíuleikum unnu þeir sextán verðlaunamedalíur, en það gefur eina medalíu á hverja tvö hundruð tuttugu og átta þúsund íbúa. Sumir þakka þetta mikilli mjólkurdrykkju þjóðar- innar, en Norðmenn eru aðrir í röðinni í heiminum hvað mjólk- ursvall snertir, samkvæmt skýrslum frá sambandi mjólkur- framleiðenda í Slésvík-Holt- setalandi. f sömu skýrslu er þess getið að Mongólar séu einnig miklir íþróttamenn, „enda lifa þeir mestmegnis á mjólkurafurð- um.“ Meira að segja brugga Mongólar bjór úr mjólk; heitir' sá drykkur kúmiss og var frægur þegar á dögum Gengis Kans. Ekki er þess getið í téðri skýrslu hver sú eina þjóð sé, sem_ skákar Norðmönnum í mjólkur-' þambi, en ef okhur rámar fétt í aðrar hagskýrslur, eru það eng- ir aðrir en íslendihgar. Ef mjólk- urdrykkja veldur méstú um medalíueign þjóða, gegríir furðu hversu lítils af slíkum varningi við höfum aflað á undangengn- um sumar- og þó einkum vetr- ar-olympíuléikúm. TÍTÓ LOKAR SVARTSÝNISMENN INNI Tító gamli í Júgóslavíu er staðráðinn í að Sovétmenn fái varmari viðtökur éf þéir' ráðast inn í land hans en í Tékkóslóvak- íu á dögunum. Hann hefur til dæmis látið fela vopnabirgðir uppi í fjöllum, til að grípa til ef hefja þyrfti skæruherriað. Tító, serrí sjálfur var ’frémstur allra skæruliðaforingja í síðari heimsstyrjöldinni, tekur líka ómjúkum höndum á hverjum þeim, sem lætur í ljós vonleysi um mögúleika á vörnum.. Tækni- fræðingur nokkur að ríafni Boro Antonic sagði þannig nýlega, að þýðingarlaust væri að reyna að verjast skriðdrekasveitum Rússa. Hann hlaut fyrir bragðið þriggja ára fangelsisdóm. Skrif- stofumaður einn ' sem Idriz Alic heitir, hafði látið hafa eitthvað svipað eftir sér. Hann 'slapp með tvö ár, þar eð fært var fram honum til afsökunar að hann hefði verið fullur, þegar hann lét út úr séð hið for'dæmda svarta- gallsraus. l” ☆ LUNDÚNIR — PARADÍS FÓSTUREYÐINGA Fyrir rúmu misserj síðan voru fóstureyðingar gerðar löglegar í Bretlandi, og nú er Lundúna- borg orðin höfuðstaður álfunnar hvað þessa starfsemi snertir. Talið er að um þrjátíu þúsund fóstureyðingar verði framdar þar fyrsta árið, og eftirspúrnin hraðvex, einnig erlendís frá. Ekki er enskt kvenfólk þó alveg ónægt með þetta. Sjúkrahúsin eru flest ekki undir það búin að taka á móti auknu aðstreymi sjúklinga. Einkasjúkrastofur, sem áður framkvæmdu 'ölöglegar fóstureyðingar, halda nú ’starf- semi sinni áfram löglega — en verðið hefur ekki lgpkkað.-, Það kvað vera frá tuttugu og fimm þúsund krónum upp í þrjátíu og fitnm þúsund, svo að dýrt er spaugið enn. ☆ SÖLUHRUN Á ÓLÉTTÚKJÓLUM Það eru fleiri en páfinn sem eru krítiskir á Pilluná. Nýlega bárust 'þau ógríartíðindi frá frændum vorum Færeyingúm að búið væri við landauðn hjá þeim vegna notkunar á þessum varn- ingi, og samband bandarískra smásala hefur nýléga 'tilkynnt, að salan á óléttukjólum hafi á skömmum tíma hraþáð;■um tuttugu prósent. , Þettpic 'kenna menn. Pijfunni... og. hugsgi ...henni þegjandi þör'firía. ☆ 46 VIKAN 5' tbl'

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.