Vikan - 30.01.1969, Page 48
„Ég fór heim og skrifaði
hana,“ sagði pilturinn kjökr-
antli. „Og þeir sögðu að ég
liefði skrifað hana fullur. 1‘eir
voru of heimskir til að trúa
henni. Þetta er stórfengleg-
asta frétt, sem heimurinn hef-
ir heyrt. Vitið þér það?“
„Þú ert ákaflega kurteis,“
sagði Mully.
„Það getur verið að ég sé
fullur eða vitlaus, en ég er
áreiðanléga ekki kurteis,“
sagði ungi maðurinn. „Sjáið
þér nú til, vilduð þér heyra
eina uppástungu. Þetta er
merkasta fyrirbrigði síðustu
fimmtíu alda. Við getum
grætt milljónir á því, ef ég
fengi að ráða.“
„Milljónir?“ spurði Mully
og fór að leggja við hlustirnar.
„Já. Við höldum sýningar
og förum umhverfis jörðina."
„Nei, mig langar ekki að
ferðast kringum jörðina. Ég
er búinn að því,“ stundi Sam.
„Mig langar bara heim til
Yorkshire.“
,.Sam,“ sagði Mully aðvar-
andi,“
„Heyrðu Mully — það er
ég sem flýg og ég ræð, hvað
ég geri.“
„Það var líka svo með
spunasnælduna þína,“ sagði
Mully. Ef þú hefðir fengið að
ráða, þá notuðu Owdicotts-
verksmiðjurnar hana ennþá
án þess að borga eyri fyrir.
H verjum var það að þakka,
að við fengum lögfræðing og
fórum í mál? Var það kannski
ekki mér að þakka? Annars
værir þú bara verkstjóri með
tveggja punda og tíu shillinga
vikukaup. Það er hollast að
láta mig sjá um fjármálin. Eg
og pilturinn þarna munum sjá
um allt.“
Samningur var gerður og
undirritaður. „Nú,“ sagði
ungi maðurinn, „skulum við
leigja Madison Square Gard-
en í New York. Þér þurfið
bara að fljúga einu sinni á
dag. Ég ætla að panta far-
seðil með ftugvél austur á
morgun.“
„Með flugvél,“ sagði
Mully. „Þá væri nóg að panta
tvo farmiða, því að Sam getur
f'logið sjálíur og sparað okk-
ur fargjald.“ En .Jjím vildi
ekki heyra það, og þegar hann
benti á að Sam myndi gegn-
frjósa á leiðinni yfir Kletta-
ljöllin, lét Mully undan og
féllst á að lofa honum að vera
inni í flugvélinni.
JNM ÆSTA dag höfðu þau
A ’ komið sér fyrir í dýru
hóteli í New York. Sam hafði
engan frið íyrir fólki, sem
vildi tala við hann og skoða
hann í krók og kring. Hann
var beðinn að flji\ga. Sam
flaug nokkra hringi í herberg-
inu, en þessir New Yorkbúar
voru fram úr hófi tortrvggnir.
Þeir stóðu uppi á stólum og
þreifuðu eftir vírum; þeir
ransökuðu Sam gaumgæfilega
lil þess að vita, hvort hann
héngi ekki í einhverju. Lækn-
ar bönkuðu á honum brjóstið
og athuguðu blóðþrýstinginn;
sálfræðingar spurði hann,
hvort tonn af fiðri væri létt-
ara en tonn af blýi; hann var
rannsakaður af geðveikra-
lækni og nefnd andartrúar-
manna.
Ljósmyndarar tóku mynd-
ir af Sam standandi og Sam
á flugi, og herbergið varð svo
fullt af reyk að Sam náð'i
varla andanum. Loksins slapp
hann inn í svefnherbergið.
Smávaxinn gamall maður sat
á rúminu.
„Komið þér sælir,“ sagði
öldungurinn kurteislega.
„Mér tókst vel sýningin,“
sagði Sam. „En ég er alveg
uppgefinn.“
„Hún tókst vel,“ sagði
gamli maðurinn. „En þeir
trúa ekki á hana.“
„Trúa ekki?“
„Nei, því er nú verr. Mann-
kynið hefur óbeit á öHu, sem
það fær ekki skilið. Það mun
nota allar aðrar skýringar en
sannleikann — að þér getið
flogið.“
„Ég get flogið,“ sagði Sam.
„Auðvitað getið þér það,“
sagði öldungurinn hæglátlega.
„Þakka þér fyrir,“ sagði
Sam. „ög fáðu þér hérna í
pípu af tóbakinu mínu. Það
er ágætt. Of hvað heitir þú
aftur?“
„Ég er bara nernandi í
Rannsóknarstöðinni,“ sagði
garnli maðurinn og tróð tó-
baki Sams í pípuna sína. „Ég
er að reyna að finna aðferð
til þess að sigrast á andstöðu
líkama og sálar gegn lifnaðar-
háttum, mataræði og hugsun
nútímans. Hann kveikti í píp-
unni og leit á Sam. „Mjg
langar til að spyrja einnar
spurningar.“
„Ég hefi verið spurður svo
margra að það munar ekki um
eina í viðbót.“
„Er mismunandi erfitt að
fljúga?“
„Mér líkar bezt að fljúga
einn, undir berum himni og
að næturlagi. Það er erfiðar,
þegar tolk er viðstatt. Eins
og til dæmis í dag — þá var
það erfitt.“
Gamli maðurinn kinkaði
kolli og saug pípuna. Svo stóð
hann upp og klappaði á herð-
arnar á Sam. „Það hefir verið
sérstaklega ánægjulegt að
tala við yður, herra Small,“
sagði hann. „Ég vildi að ég
gæti verndað yður, en ég get
það ekki. Heimurinn víll alls
ekki trúa. Líffræðingar hafa
sannað meyjarfæðinguna;
efnafræðingar geta breytt
vatni í vín; læknar fá dauða
menn til að rísa upp, vísinda-
menn sanna, að efnið sé ófor-
gengilegt og stærðfræðingar
hafa sýnt fram á að eilífð í
tíma og rúmi sé óumdeilanleg
staðreynd — og þetta gerðist
allt í heimi, sem hættur er að
trúa á meyjarfiteðingu, krafta-
verk og eilíft líf. Því meira
sem við sönnum, því minni
verður trúin. Einföld og bless-
uð trúin er ekki lengur til.
Mennirnir hafa fengið of
margar sannanir og of mikið
af rökum til að trúa hinu ó-
skiljanlega.“
„Þetta er skrítið,“ sagði
Sam. „Það var einmitt ræða
um trúna, sem kom mér til
að fljúga.“
„Auðvitað,“ sagði gamli
maðurinn.
„Mér er sama hverju menn
trúa,“ sagði Sam. „Ég veit að
ég get flogið — er ekki svo?“
„Jú, herra Small. En sjóið
þér ekki að vantrú þerra gæti
.... jæja, ég get ekkert gert.
Þér verðið að halda áfram
einn — en mig langar að gefa
yður eitt ráð. Ef yður finnst
einhverntíma, að það sé sér-
staklega erfitt að fljúga þá
segið bara við sjálfan yður:
„Ég get flogið. Eg get það!
Ég get það! — Og trúið því
ávallt.“
Sam hafði ekki mikinn
tíma til að hugsa um, hvað
öldungurinn hafði sagt, því
að liann hafði ekki stundlegan
frið fyrir læknum, blaða-
mönnum og ljósmyndurum.
Sýningarkvöldið rann upp og
Sam var í búningsherberginu
ásamt Mully. Hún rétti hon-
um útsaumaðan búning.
„Ég saumaði þetta,“ sagði
hún. „Hérna er brezki fáninn
hægra megin á brjóstinu og
bandaríski fáninn vinstra
megin. Gerðu það fyrir mig
að fara í hann.“
„Það veit ekki á gott að
skipta um búning,“ sagði
Sam. En hann fór í búning-
inn, því að hann kenndi í
brjósti um Mully, sem hafði
vakað fram eftir á kvöldin
við að sauma hann. Jim kom
þjótandi inn og dró Sam að
sviðsdyrunum. Sam heyrði,
að verið var að kynna hann í
hátölurunum.
„Þú ert viss um að þú getir
það,“ spurði Jim.“ „Það hefir
aldrei verið liér annar eins
mannfjöldi — og dýrustu sæt-
in á tuttugu dollara. Þér mis-
tekst ekki?“
„Auðvitað ekki,“ sagði Sam
gramur. Svo var honum ýtt
inn á sviðið, og þarna stóð
Sam Small, klæddur ljósrauð-
um búningi, öllum útsaumuð-
um. Hann stóð kyrr svolitla
stund og deplaði augunum í
ljósn. Hann baðaði út hönd-
unum, til þess að hefja sig
upp, og þá, allt í einu, fór
Baann að hugsa um, hvað
■naundi ske, ef hann gæti nú
tékki flogið.
Þarna stóð hann, mitt í
þæ&sum geysistóra sal, skringi-
legur og lítill í ljósrauða bún-
ingnum, með armana útrétta.
Áhorfendurnir, sem skiptu
þúsundum, voru þegar farnir
að hlæja. Hlóturinn glumdi
og bergmálaði um allan sal-
inn. Sam ætlaði að leggja á
flótta, en Jim stóð í dyrun-
um og bandaði við honum í
ákafa.
„í guðs bænum — fljúgðu,"
kallaði Jim.
Sam varð gripinn óum-
ræðilegri skelfingu. Ef til vill
hafði hann dreymt allt sam-
an; ef til vill gat hann alls
ekki flogið. Hann hljóp áfram
með útrétta arma, til þess að
finna til loftsins. Og þetta var
það, sem áhorfendurnir sáu:
skringilegan, lítinn karl, sem
hljóp um eins og kjúklingur
48 VTKAN 5-tbl-