Vikan - 13.02.1969, Síða 4
NÚ ER AUÐVELT
AÐ ENDURNÝJA
ELDHÚSIÐ
HINGAÐ TIL
Hafa slíkar endurbætur kostað mikið rask, sem margar hús-
mæður vilja hlífa sér við. Nú er allt breytt. Við tökum gömlu
innréttinguna niður og setjum upp nýja og nýtízkulega, inn-
flutta innréttingu — allt á tveim dögum. Við breytum ekki
heimilinu í trésmíðaverkstæði á meðan og þér undrizt, hvað
eldhúsið gerbreytirst, hvað íbúðin breytist og hvað störfin
verða ánægjulegri. Allar okkar innréttingar eru úr harðplasti
í miklu litaúrvali og þér getið fengið eldavél, uppþvottavél
og ísskáp frá sama framleiðanda. Verðið er mjög hagstætt.
HÚS OG SKIP Ármúli 5 — Símar: 84415—84416
GHENS&SVEQ 2Z-Z4
SS® 30280-32262
Gólfdúkur — plast, vinyl og línóleum.
Postulíns-veggflísar — stærðir 7V2x15, 11x11 og 15x15 cm.
Amerískar gólfflísar — Good Year, Marbelló og Kentile.
Þýzkar gólfflísar — DLW.
Hollenzkur Fiesta dúkur — eldhúss- og baðgólfdúkur.
Málningarvörur — fró Hörpu hf., Málning hf. og Slippfél. Rvíkur.
Teppi — ensk, þýzk, belgísk nylonteppi.
Fúgavarnarefni — Sólinum, Pinotex.
Silicone — úti — inni.
Veggdúkur — Somvyl, frönsk nýjung.
Vinyl veggfóður — br. 55 cm.
Veggfóður — br. 50 cm.
V_______________________________________________________________________/
MIKIÐ SKAL TIL MIKILS
VINNA
Svar til Einnar í vanda:
Okkur þykir leitt, að
ráðið sem við gáfum þér í
vor, skyldi ekki duga.
Strákurinn þinn virðist
vera í meira lagi feiminn
og uppburðarlítiil. En þú
ert þegar búin að hafa
mikið fyrir að geta verið í
návist hans, svo að þú
skalt ekki gefast upp. Þér
er fjarska annt um hann
og ýmislegt bendir til, að
hann sé líka talsvert hrif-
inn af þér, þótt hann þori
ekki að viðurkenna það,
hvorki fyrir sjálfum sér
né þér. Atvikið, sem þú
minntist á og gerði það að
verkum að allt fór út um
þúfur, var anzi klaufalegt.
Eri það var fyrst og fremst
tilviljun og misskilningur
sem olli því, var það ekki?
Mikið skal til mikils vinna,
segir máltækið. Þú skalt
halda ótrauð áfram, þang-
að til þér tekst að krækja
í hann.
PÓLITÍSK BÖRN
Kæri Póstur!
Í5g læt nú loksins verða
af því að skrifa þér, og er
það vegna ritstjórnargrein-
ar, sem ég sá í skólablaði
Gagnfræðaskóla Austur-
bæjar nú fyrir skömmu.
Greinin var svo pólitísk,
að mér blöskraði. Og því
spyr ég. í fyrsta lagi: Er
st j órnmálaf lokkunum
heimilt að stunda svona
áróður í sjálfu málgagni
nemenda? Og í öðru lagi:
Er ekki hægt að kæra rit-
stjóra og ábyrgðarmann
blaðsins fyrir þetta?
Ópólitísk móðir.
P.S. Eg læt greinina fylgja
þessu bréfi mínu, svo að
þú getir séð ósómann með
eigin augum.
Ekki er það skoðun okk-
ar, að hér sé um neinn
ósóma að ræða, sem vert
sé að gera veður út af. —
Skólakrakkar eru ekki
orðnir fullgildir meðlimir
þjóðfélagsins ennþá, og
þess vegna á alls ekki að
taka þá alvarlega. Þeir
eiga að fá að æfa sig og
leika sér eins og þeim sýn-
ist, innan þess ramma, sem
skólinn telur æskilegan.
Við fáum ekki séð, að um-
rædd grein sé voðaleg. Það
er að vísu talað um „hálf-
vita“ og „villimenn", en
annað eins hefur maður
nú séð í pólitískum skrif-
um. Ætli þetta greinar-
korn sé ekki einmitt speg-
ilmynd af stjórnmálaskrif-
um „hinna fullorðnu"?
AÐ LESA ÚR SKRIFT
Hr. Póstur!
Ég ætla að biðja þig að
vera svo góður og elsku-
legur að gera mér greiða,
sem ég veit, að þú þarft
lítið fyrir að hafa.
Hvert er heimilisfang
þeirrar góðu konu, sem
þið áttuð viðtal við hér
um árið, þessarar sem les
úr rithönd, ef óskað er?
Er æskilegt að senda
greiðsluna með, ef óskað
er eftir úrlestri? Hve mik-
il er hún? Ennfremur: á
að skrifa á óstrikaðan
pappír?
Með von um skjóta úr-
lausn.
Rithandarsérfræðingur.
Hún heitir Unnur Þor-
steinsdóttir og býr að
Hofsvallagötu 19 í Reykja-
vík. f viðtalinu sagði með-
al annars: „Fólk þarf helzt
að geta um fæðingardag
og ár og sýnishorn þarf að
vera minnst ein örk skrif-
uð með venjulegum penna
eða sjálfblekungi, en ekki
kúlupenna eða blýanti. —
Hvort pappírinn er strik-
aður eða óstrikaður skipt-
ir ekki máli og heldur
ekki hvað skrifað er. —
Gjaldið fyrir fullan lestur
er 500 krónur. Sumum
finnst þetta há upphæð, en
þeir gera sér ekki grein
fyrir þeirri vinnu, sem á
bak við liggur. — Ef fólk
langar til að láta mig lesa
úr rithönd sinni, þarf að
senda mér sýnishorn og
fyrirframgreiðslu í ábyrgð-
arpósti hingað á Hofsvalla-
götu 19. E’g sendi síðan
svarið til baka í ábyrgð,
vegna þess að enginn óvið-
komandi má hnýsast í það,
4 VIKAN 7 tbl-