Vikan - 13.02.1969, Side 10
16. En baróninn gefur engin grið. Hann
snarast á bak uppáhalds rugguhestinum sín-
um og þrumar: — Smiðir þú ekki bílinn,
skaltu engu fyrr týna en lífinu!
17. En á meðan þessu fer fram, koma Potts,
Truly og börnin til borgarinnar og eru tekin
að skoða hana. Chitty Chitty Bang Bang var
töfrabíll, og á honum komu þau.
18. Þau hitta Gullasmiðinn (Benny Hill),
sem segir þeim, að barónessan hati börn og
vilji láta drepa þau öll.
__________:-í .- •
■
20. — Ég veit, að börnin eru hér í felum,
segir Barnaveiðarinn. En hann finnur þau
19. í því kemur Barnaveiðarinn (Robert
Helpman) til verkstæðis Gullasmiðsins, og
Potts og fólk hans felur sig í kjallara verk-
stæðisins.
21. Þá dulbýst hann sem rjómaíssali og lokk-
ar börnin fram úr felustað sínum.
22. Um seinan uppgötva þau Jeremy og Jem-
ima, að þau eru fangar í búri barnaveiðar-
ans, þau, sem bara ætluðu að fá ís fyrir
ekkert....
mmmmmmmmmmmm
23. Þegar Potts, Truly og Gullasmiðurinn
koma aftur ofan í kjallarann, sjá þau sér til
skelfingar, að börnin eru horfin.
24. Og meia að segja Chitty Chitty Bang
Bang hefur verið gripinn. Hann er dreginn
heim að kastalanum og hlekkjaður þar.