Vikan


Vikan - 13.02.1969, Qupperneq 14

Vikan - 13.02.1969, Qupperneq 14
SMÁSAGA EILEEN JENSEN lair Hún var sautján ára, - gift og gekk með fyrsta barnið sitt....... en hafði hún ekki glatað miklu af æsku sinni? Á páskadag kom Linda dóttir okkar og AI, maðurinn henn- heim með okkur, til að fá sér snarl, eftir messu. Linda borð- aði lítið, en enginn minntist á það. Faðir hennar horfði á hana, á diskinn hennar, en leit svo undan. Debbie, yngri dóttir okkar, gekk um í draumi vegna dans- leiksins, fyrsta raunverulega dansleiksins (ég gekk ekki að því grut'Iandi að síminn myndi ekki þagna allan daginn), og Jamie, yngsta barnið okkar, vissi ekkert um morgunleiða eða flökurleika ennþá. Hann vissi að systir hans hafði hætt í skóla til þess að giftast Al, og Jamie fannst hún vera mesti asni, að láta sér detta önnur eins vitleysa í hug. AI hafði blessunarlega góða matarlyst, hann borðaði á við tvo, hugsaði ég með mér, þegar ég sá egg, flesk og brauð hverfa ofan í kokið á honum. Hann bar svo af borðinu með mér, og þegar við vorum komin fram í eldhús, datt það upp úr honum að það væri aðallega hann sem hugsaði um matinn. Hann var ósköp þreytulegur þegar hann sagði: — Jafnvel tilhugsun um mat gerir henni flökurt .... Eg klappaði honum á bakið. — Þetta er allt ósköp eðli- legt, Al. Steve hafði komið heim með herbergisfélaga úr heima- vistarskólanum, um páskana, og þeir voru farnir niður í borg- ina til að athuga kanínurnar (ég geri ráð fyrir að þar sé átt við stúlkur). Debbie var límd við símann og Jamie hafði flek- 14 VIKAN 7- tbl að föður sinn í dominotafl inni í vinnuherberginu. A1 (hver annar?) hjálpaði mér að þvo upp. Hann hafði alltaf verið hjálplegur við heimilisstöríin. Það hvarflaði að mér, að ef til vill hefðum við tekið A1 of opnum örmum frá byrjun. Hann var (og er ennþá) hávaxinn, stór- fættur, með feimnislegt bros, einmana drengur, sem við bók- staflega tókum að okkur. Hann bjó til flugdreka handa Jamie, sló grasblettinn fyrir Stephan, stríddi Debbie með freknun- um og ók Lindu í bílræksninu sínu hvert sem hún vildi fara. Okkur varð óþægilega við þegar hann gaf henni litla gull- hjartað og þau fóru að vera reglulega saman. Þau hlógu og skemmtu sér eins og áður, en það voru svo oft ískyggilegar þagnir og augngotur. Við báðum fyrir okkur, en hugguðum okkur með því að við vissum þó hvar við hefðum þau. Linda var ekkert hrifin af skólanum, hún gaf líka ekkert fyrir kirkjubrúðkaup og var ánægð yfir að mega nota skóla- peningana til að kaupa húsgögn í litlu íbúðina. — Ég er hætt í skóla og byrjuð að lifa, gortaði hún og veifaði giftingar- hringnum framan í belckjarsystkini sín, sem glenntu upp augun af undrun. AI var skjálfhentur, þegar hann braut saman diskaþurrk- una. — Heldurðu að ég geti fengið að tala einslega við föður Lindu núna? Hann virtist vera á verði.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.