Vikan


Vikan - 13.02.1969, Side 16

Vikan - 13.02.1969, Side 16
 Pranklln Delano Roosevelt er gott dæmi um þá alþýSlegu, mannúðlegu stjórnm&lamenn, sem mikið er um í vatnsbera- merkinu. V.___________________________ý Ellefta merki dýrahringsins, og það næstsíðasta, er vatnsber- inn. Hann ríkir á öðru tímabili vetrarins, þegar sú árstíð er í hvað mestu veldi. En sáðkornið, sem bíður í jarðveginum undir snjó og krapi, er farið að þrútna og stækka; þar örlar fyrir gró- andi lífi næsta vors. Því er það að meira lífsfjör fylgir þessu merki heldur en steinbukknum fyrirrennara þess. Táknmynd vatnsberans er venjulega heldur spaklegur og göfuglegur maður, sem heldur á einni eða tveimur vatnskrukkum undir höndunum eða á öxlum sér, og er að hella úr þeim. Rétt er að geta þess í þessu sambandi að oft er merkjum dýrahringsins skipt í þrjá flokka: þau „dýrslegu“, sem hafa dýr eins og hrút, naut og ljón að tákni, „hlutleg" merki, það er að segja vogina og „mannleg“ merki. Vatnsberinn er í síðast- nefnda flokknum og mannlegri, ef svo má segja, en nokkurt hinna. Tviburamerkið hefur ávallt á sér mikið æskubragð, fólk í því skynjar umhverfið nánast með augum æskunnar, meymenni aftur á móti eitthvað svipað ungum stúlkum. Vatns- berinn skynjar lífið betur en hin merkin tvö, í breiðari skilningi orðsins, líkt og fullorðin og víð- sýn manneskja. Andlega séð er 16 VIKAN 7 tbl 21. JANUAR - því vatnsberinn djúpur og óræð- ur, og kvað erfitt að kanna lund hans til fulls. Einna þægilegast mundi það vera með saman- burði við dýrahringinn eins og hann leggur sig. Ein af mótsögn- unum í honum, táknrænt séð, er að þrátt fyrir þennan vatnsaust- ur hans er hann loftmerki. Það er eðlilegt þegar haft er í huga að loftið er sú höfuðskepna er tengir allt á jörðu. Þetta eðli loftsins kemur fram í öllum merkjum, sem því eru tengd. Hjá tvíburunum verður þetta heldur lausleg, andleg binding, líkt og hjá skólafélögum, hjá voginni er talað um samteng- ingu hjartnanna og í vatnsber- anum um tengsli og bræðralag í víðtækustu merkingu, samein- ing allra manna. Andfætlingur vatnsberans í dýrahringnum er ljónið. í því merki nær sjálfsvissan hámarki sínu, allt beinist að því að safna sem mestu umhverfis sitt eigið dýrlega ég. í vatnsberanum vík- ur sjálfsvitundin fyrir bræðra- lagskennd og mannúð. Hin dýpri verðmæti persónuleikans leysa hið einstaklingslega af hólmi. Að vera hefur í augum vatns- berans meira gildi en að eiga. Einstaklingurinn á ekki að hrósa sigri, heldur fólk almennt. Mað- urinn skal af fremsta megni losa sig við það frumstæða, líkam- lega, fýsnirnar. í samband við þetta víðfeðmi vatnsberans hefur það verið sett að blóðrás hans og æðakerfi er það, sem honum er viðkvæmast heilbrigðislega 19. FEBRUAR séð, en hjá ljóninu er það aftur á móti hjartað. Tvær stjörnur hafa mest áhrif í vatnsberanum, Satúrn og Úran- us. Lengi vel, meðan mönnum var ekki kunnugt um tilvist síð- astnefndu stjörnunnar, var Sat- úrn talinn aðaldrottnandi mark- isins. Áhrif hans eru þar líka mikil, þó þau komi fram á nokk- uð annan hátt hér en í stein- bukknum. Þegar vatnsberinn tekur við af steinbukknum verða stjórnmál að menningu, skipu- lagning að lífrænum samruna á breiðum grundvelli. Vatnsberinn hefur það frá Satúrn líkt og steinbukkurir.n að vilja helga sig einhverju af alhug, en hann gerir það ekki fyrst og fremst af skyldurækni, heldur hömlu- lausri gleði. Úranus hefur líka mikil áhrif á vatnsberann. Hann er tákn himingeimsins, gagnstæða og um leið í nánum skyldleika við Neptún, tákn sjávardjúpanna; þeir tveir bæta hvor annan upp í mörgum skilningi. Úranus er tákn þess, sem komast vill eins hátt og mögulegt er, hefja sig upp úr hvötum til meðvitaðs persónuleika. Sagt er að vatns- berinn með tilstyrk Úranusar sé það stjörnumerki, er mestu ræð- ur nú í heiminum — á öld flug- véla, gervihnatta, tunglflauga. Að sigra himingeiminn kemur vel heima við smekk vatnsber- ans og Úranusar. Þessi manngerð vill allt finna, allt uppgötva. Hún minnir á lærisvein töframanns- ins, sem ómögulega gat stillt sig í Jules Verne var spámaður tækniundraaldar nútímaíis, þar sem vatnsberinn ríkir öðrum merkjum fremur. v_____________________________y um að brjótast inn í eina her- bergið í híbýlum meistarans, sem honum var bannaður að- gangur að. Hún er byltingasinn- uð. Áhrif annarra himinhnatta í vatnsberanum: Mána-vatnsberar eiga auðugt sálarlíf, en eru jafnframt oft haldnir sálarkvölum. Þeir hneigj- ast að fágun og kurteisi. Merkúr ýtir hér oft undir sömu tilhneigingar og Úranus, eflir framfarasinnaðan og vís- indalegan anda. Venus sýnir hér sína „himn- eskari“ hlið: gefur léttleika sem minnir á engla, hlýju, þokka. Einnig hún eflir hér tilhneig- ingar til að hefja sig upp frá og fjarlægjast það, sem jarðneskt er. Mars örvar í þessu merki at- hafnaviljann en á einnig til að valda vissum vandræðum, svo sem innbyrðis deilum meðal ná- skyldra, borgarastríðum. Þess konar áhrif þóttu koma fram hjá Friðriki mikla Prússakon- ungi. Júpíter gæðir hér stórlyndi, mannúð, mannkærleika og and- lega frjálshyggju. Áhrif Neptúns í merkinu eru heldur neikvæð; hann veikir persónuleikann og reynir að leysa hann upp, og hverskyns rugl og barnaskapur þykir fara vaxandi við návist hans.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.