Vikan


Vikan - 13.02.1969, Blaðsíða 21

Vikan - 13.02.1969, Blaðsíða 21
Indíánar Brasilíu eru fáu góSu vanir af hálfu hvíta mannsins. Að svo miklu leyti sem þeim hefur ekki verið útrýmt, lifa fá- mennir ættbálkar þeirra á strjálingi í óað- gengilegustu hlutum landsins, regnskóga- svæðunum Selvas og Matto Grosso. Fyrir skömmu kom upp sá kvittur að brasilískir embættismenn hefðu drepið fjölda þeirra á eitri. Það er því varla nema von að Indíán- arnir taki ekki með opnum örmum leið- öngrum hvítra manan, sem fara inn í frum- skógana og vilja vingast við þá. Einn slíkur leiðangur varð heldur illa úti á síðastliðnu hausti. Fyrirhugað hefur verið að leggja veg frá borginni Manaus, sem stendur þar sem saman koma fljótin Ama- zonas og Negro í Brasilíu norðanvestanverðri, til staðar er nefndur er St. Helena og er við landamæri þess ríkis og Venesúelu. Til að gera þá leið trygga þótti vissara að hafa vin- áttu Indíánaættbálkana, sem eru á vakki um svæði það, sem vegurinn á að liggja um. í því sambandi voru einkum tiinefndir tveir ættbálkar með nöfnunum Atroai og Vaimiris, ótrútt fólk og illt viðureignar, að sögn brasi- lískra. Leiðangur var nú gerður út inn í frum- skógana að freista þess að mæla ættbálka þessa máli, og var fyrirliði ítalskur prestin- að nafni Giovanni Calleri. Var hann þá þeg- ar margreyndur úr álíka skógarferðum og hafði þótt öðrum slyngari að tjónka við Indíánana. í leiðangrinum voru alls ellefu manns, þar af tvær konur. Allt gekk þokka- lega í fyrstu, eða þangað til leiðangurinn hitti fyrir hóp fólks af ættbálkinum Atroai. Urðu þá öll samskipti komu- og heimamanna Framhald á bls. 50.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.