Vikan


Vikan - 13.02.1969, Page 30

Vikan - 13.02.1969, Page 30
<ra» ANDRES INDRIÐASON ÞETTA GERÐIST í BREZKA POP- HEIMINUM 1968 JANÚAR Bítlarnir voru mikið í fréttunum í ársbyrj- un 1968 vegna kvikmyndarinnar Magical Mystery Tour, sem þeir gerðu að öllu leyti sjálfir. Myndin var ætluð til sýningar í sjón- varpi, en þegar hún hafði verið sýnd, urðu viðbrögð almennings á nokkuð annan veg en Bítlarnir höfðu búizt við. Gagnrýnendur töldu myndina nauðaómerkilega og aðdáend- ur urðu fyrir miklum vonbrigðum. Enn var spurt: Eru Bítlarnir búnir að missa vinsældir sínar? Þá kom út platan „Hallo, Goodbye", og hún fór þegar sem leið lá í efsta sæti vin- sældalistans. Á sama tíma var stóra plata Bítlanna, „Sergeant Pepper‘s Lonely Hearts Club Band“ í efsta sæti yfir hæggengar plöt- ur, og fór þá ekki milli mála, að Bítlarnir voru enn númer eitt þrátt fyrir allt. Um sama leyti kom fyrsta platan út hjá hljómplötufyrirtæki Bítlanna, Apple. Þar voru Grapefruit á ferð með lagið „Delilah“, og var þessari hljómsveit spáð vinsældum og frama á árinu 1968, en annað varð raun- ar uppi á teningnum. Hljómsveitin Love Affair vakti á sér at- hygli, þegar lagið „Everlasting Love“ komst í efsta sæti vinsældalistans. í ljós kom, að liðsmenn hljómsveitarinnar höfðu alls ekki komið nálægt plötunni utan söngvarinn, og varð vegna þessa mikið fjaðrafok í brezka pop-heiminum. The Bee Gees fengu gullplötu fyrir það, að milljón eintök höfðu selzt af plötu þeirra, „Massachusetts". Dave Davies í Kinks kom fram sem sóló- söngvari, en vísaði á bug orðrómi um, að upplausn væri í hljómsveit hans. Og svo komst Georgie Fame á blað, þegar hann söng lagið um Bonnie og Clyde. FEBRÚAR Því var spáð, að rokk og ról mundi ná vin- sældum á árinu, og The Move sendu frá sér músik á þeirri línu. Dave Clark komst aftur á blað á vinsældalistanum með laginu „Everybody Knows“ og John Stephen, tízku- kóngur í Carnaby Street, setti á markaðinn hárkollur fyrir unga menn! MARZ Götusöngvarinn Don Partridge söng lag sitt. Rosie á plötu og hlaut skjóta frægð. — Esther og Abi Ofarim komust lika á stjörnu- himininn, þegar lag þeirra „Cinderella Rockefella“ komst í efsta sæti vinsældalist- ans. Bee Gees ferðuðust um Bretland og héldu hljómleika við mjög misjafnar undir- tektir. 30 VIKAN 7- tbl

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.