Vikan


Vikan - 13.02.1969, Side 32

Vikan - 13.02.1969, Side 32
SUKKULAÐIKOKUR úr ýmsum áttum Súkkulaðitertur og kökur hvers konar eru alltaf vinsælar og hér eru uppskriftir af nokkrum. Sé mælt í bollum er alltaf átt við ameríska mælibolla, þeir fást hér, ýmist sem heill bolli (1 cup) eða könnur (2 cups), einnig sam- hangandi 4 stk. ((4 cup, (4 cup, % cup, 1 cup). * BEGGUKAKA Vj. bolli smjörlíki. 1 bolli sykur. 2 egg. % bolli mjólk. IVi bolli hveiti. 2 tesk. lyftiduft, vel fullar. 2 matsk. kakó. Vu bolli soðnar, saxaðar sveskjur. Vi tesk. negull. V2 tesk. kanill. Smjörlíki og sykur þeytt vel saman. Þá eru eggin þeytt í. — Hveiti, kakó og lyftidufti bætt í smátt og smátt ásamt mjólkinni. Að lokum er sveskjunum og kryddinu jafnað út í. Bakað í einu tertumóti, við meðalhita, kakan klofin í tvo botna, þegar hún er köld og lögð saman með góðri fyllingu. * ÓGLEYMANLEG SÚKKULAÐITERTA Kakóblanda: % bolli sykur, % bolli kakó, 1 egg, % mjólk. Kakó og sykri blandað saman, eggið látið í, þeytt vel. Síðan er mjólkinni hrært í. Þetta er soð- ið í vatnsbaði, á þann hátt að skálin með hrærunni er látin standa í íláti með vatni á elda- vélinni, hrært vel í unz blandan þykknar. Tekið af hitanum og kælt. Næst þarf í kökuna: % bolli smjörlíki (mælt óbrætt). IV4, bolli sykur. 3 egg. 2(4 bolli hveiti. V2 tesk. lyftiduft. % bolli kalt vatn. 1% tesk. sódaduft. (4 bolli volgt vatn. 1 tesk. vanilla. Smjörlíkið hrært með sykrinum í létta froðu, eggin látin í eitt og eitt, þeytt vel á milli. Næst er kælda kakóblandan látin saman við, blandað vel saman. Hveiti og lyftidufti blandað saman og hrært í smám saman með kalda vatninu. Vanillu bætt í. Loks er sódaduftið leyst upp í volga vatninu og hrært fljótt saman við deigið. Látið í þrjú miðlungs stór hringtertumót, eða tvö stór. Bakað í meðalheitum ofni ca. 40 mín. Kælt í mótunum um það bil 5—10 mín., þá eru botnarnir losaðir varlega úr og kældir til fulls. Lögð saman með froðukremi (frosting), sem í hefur verið rif- ið ögn af súkkulaði og nokkrum piparmyntudropum bætt í. Söx- uðum möndlum stráð yfir. * SÚKKULAÐIKAKA MEÐ EINU EGGI 2 matsk. smjörlíki. 1 bolli sykur. 1 tesk. gerduft. 1 tesk. sódaduft. 1 bolli súr mjólk. IV2 bolli hveiti. 1 egg, þeytt. Vs tesk. vanilla. 1 kúffull matsk. kakó. Smjörlíkið og sykur þeytt vel saman, egg og vanilla látin í, hrært vel. — Hveiti, kakó, lyfti- dufti og sóda blandað saman, hrært í deigið ásamt mjólk. — Bakað í tveim til þrem kringl- óttum tertumótum, eftir stærð. Meðalhiti. Bökunartími ca. 30 mín. — Mjólk er gott að sýra með því að láta 1 matsk. af ed- iki eða sítrónusafa í 1 bolla af mjólk og láta standa í hlýju unz þetta er hlaupið. * VERÐLAUNAKAKA 1 bolli smjörlíki. 2 bollar sykur. 5 egg. 4 matsk. kakó. 2 V2 bolli hveiti. 1 tesk. sódaduft. 1 bolli súr mjólk. 2 tesk. vanilla. 1 bolli muldar hnetur. Smjörlíki og sykur þeytt vel. Eggin látin í, eitt og eitt, þeytt vel á milli. Þurrefnum hrært í ásamt mjólk. Að síðustu er hnetukjörnum blandað í. Bakað í fjórum meðalstórum, kringlótt- um tertumótum. Bökunartími ca. 30 mín. við meðalhita. % GAMALDAGS SÚKKULAÐI- KAKA 4 matsk. kakó. 4 matsk. smjörlíki. 2 bollar hveiti. 2 bollar sykur. 1 egg. 1% bolli mjólk. 1 tesk. vanilla. 1 tesk. sódaduft. Smjörlíki brætt og kakó hrært saman við. Hellt í skálina, sem hræra skal í og kælt. Þá er sykri bætt í og hrært vel. Næst er egginu og 1 bolla af mjólk hrært saman við. Hveitinu blandað í, hrært í eina mínútu. Vanillu og V2 bolla af mjólk bætt í, bland- að vel. Sódaduftið leyst upp í (4 bolla af mjólk, hrært fljótt í deigið. Bakað í 2—3 kringlótt- um mótum, eftir stærð. Bökun- artími ca. 40 mín. í meðalheitum ofni. * HRAÐFERDIN Látið í eina skál: IV2 bolli hveiti. 1(4 bolli sykur. (4 bolli mjólk. (4 bolli smjörlíki. 1 tesk. sódaduft. 2 matsk. kakó. Allt hrært vel í tvær mínútur. Hrærið nú saman við % tsk. Iyftiduft. Bætið í: (4 bolla mjólk, 1 tesk. vanillu, 2 eggjum. Hrært að nýju í 2 mín. Tvö tertumót. Bakað við meðalhita ca. 30—40 mín. * ÖMMUKAKA 1 bolli púðursykur. (4 bolli mjólk. 3 matsk. kakó, hitað saman. Kælt. í kökuna þarf líka: (4 bolla smjörlíki. 2 bolla hveiti. (4 bolla mjólk. 1 bolla púðursykur. 1 tesk. sódaduft. 1 tesk. vanilla. Smjörlíki og sykur hrært vel, eggin látin í og þeytt vel. Þurr- efnum bætt í ásamt mjólk og vanillu. Loks er kakóblöndunni hrært saman við, þeytt vel. Bak- að í tveim tertumótum við með- aðhita ca. 30 mín. * l'étt og ljós SÚKKULAÐI- KAKA % bolli smjörlíki. 1(4 bolli sykur. (4 bolli kakó. 1(4 tesk. vanilla. 3 eggjarauður. 3 tesk. lyftiduft. 3 stífþeyttar eggjahvítur. 2(4 bolli hveiti. 1 bolli kalt vatn. Smjörlíkið hrært með kakóinu, sykri bætt í smám saman, allt 32 VIKAN 7' tbl-

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.