Vikan - 13.02.1969, Qupperneq 48
HVR FRAMHAIDSMVNOAFLOKKIR
FLÓTTAMADURINN
Nýr bandarískur framhalds-
myndaflokkur, Flóttamaðurinn (The
Fugitive) er líklegur til að öðlast
vinsaeldir í sjónvarpinu, ef dæma
má eftir þeim undirtektum, sem
hann hefur hlotið erlendis.
Myndin fjallar um lækni að nafni
Richard Kimble. Hann er sakaður
um að hafa myrt konu sína og
dæmdur til dauða blásaklaus. Hon-
um tekst að sleppa úr haldi, og
síðan hefst langur og sögulegur
flótti hans undan vörðum laga og
réttar. Hann lendir í ótrúlegustu
raunum og ævintýrum í hverjum
þættinum á fætur öðrum. Hann er
á stöðugum flótta og er hundeltur
af leynilögreglunni, Lt. Philip Ger-
ard, sem hefur fengið það verk-
efni að klófesta hann. Kimble
reynir. af fremsta megni að finna
rétta morðingjann til þess að geta
sannað sakleysi sitt. Honum tekst
það að lokum í tveimur síðustu
þáttum myndaflokksins, en alls eru
þættirnir um þrjú hundruð. Það má
því með sanni segja, að flótti
Kimbles sé langur og strangur og
leitin að rétta morðingjanum tor-
sótt.
Flóttamaðurinn er leikinn af Da-
vid Janssen. Hann hefur orðið gíf-
urlega vinsæll um allan heim fyrir
leik sinn í þessu hlutverki. Nú síð-
ast kusu til dæmis lesendur vestur-
þýzka útvarps- og sjónvarpsblaðs-
ins Hör Zu hann vinsælasta sjón-
varpsleikara ársins 1968. Einnig var
hann kosinn sjónvarpsstjarna ársins
1 967 í Suður-Ameríku, og svo mætti
lengi telja.
Segja má með réttu, að David
Janssen hafi fengizt við leiklist frá
blautu barnsbeini. Hann var ekki
nema eins árs, þegar hann kom
fram á sviði í fyrsta sinn. Móðir
hans hét Berniece Dalton og var
leikkona. Hún söng vögguvísu í
leikriti með David son sinn eins árs
í fanginu! Foreldrar Davids skildu,
þegar hann var kornungur. Síðan
dvaldist hann hjá móður sinni og
48 VIKAN 7-tbl-
í
kynntist leiklistinni hjá henni. Að-
eins átta ára stóð hann frammi fyr-
ir kvikmyndavélum í fyrsta sinn.
Hann lék þá ungan bróður Johnny
Weismuller í myndínni „Swamp
Water".
David er fæddur í þorpinu Na-
ponee í Nebraska, en íbúar þess
eru aðeins 391. Síðar fluttist hann
til Kaliforníu með móður sinni. Strax
að loknu skólanámi hóf hann að
læra leiklist. Ef frá eru skilin tvö
ár, sem hann gegndi herþjónustu,
lék hann síðan um langt skeið
minniháttar hlutverk hjá ýmsum
kvikmyndafélögum. Er hann hafði
þannig stundað leiklisf i mörg ár
með litlum árangri, féklk hann loks
fyrsta tækifærið til að sýna hvað í
honum bjó. Dick Powtíll hafði í
hyggju að breyta vinsælum útvarps-
þáttum sínum, „Richard Diamond",
í sjónvarpsþætti og var é höttunum
eftir leikara í titilhlutverkið. Hann
hafði tekið eftir David í nokkrum
aukahlutverkum og var sannfærður
um, að hann væri einmitt rétti mað-
urinn til að leika Diamond.
Þegar David hafði leikið Dia-
mond í fjögur ár við miklar vín-
sældir (1956—60), hófst frægðarfer-
ill hans. Hann lék hvert aðalhlut-
verkið á fætur öðru í kvikmyndum
og einnig á sviði við góðan orðstír.
David Janssen er kvæntur Ellie
Graham, og búa þau í nýtízkulegu
húsi í Beverly Hills.
Leynilögreglumanninn, Lt. Philip
Gerard, sem alltaf er á hælunum á
Kimble, leikur Barry Morse, en hann
er mjög þekktur leikari. Hann er
fæddur í Lundúnum. Fimmtán ára
gamall sótti hann um inngöngu í
Royal Academy of Dramatic Arts
og var valinn úr hópi 200 umsækj-
enda.
Þegar hann hafði verið tvö ár í
leikskólanum, fékk hann stórt hlut-
verk í leikritinu ,,lf I were a King",
sem sýnt var í Peoples Palace. Hann
fékk hlutverkið eftir að hafa leikið
Henrik IV. í samnefndu leikrití
Shakespeares á skólasýningu. Kon^-