Vikan - 20.03.1969, Blaðsíða 6
’glugga
tjalda-
e£ni..
LAUGAVEGI 59 SÍMI 18478
Þér sparifl mefl áskrift
VIKAN
Skiplioltl 33 - sfml 35320
v____________________________________'
DRAUMUR UM
JOHN F. KENNEDY
Kæra Vika!
Mig dreymdi draum, sem
mig langar mjög til að
biðja þig að ráða fyrir mig.
Hann var þannig:
S'g kom inn í eldhús (á
veitingastað, sem ég þekki
vel), dokaði aðeins við í
dyrunum og varð litið til
hægri. Þar upp við vegg
stóð John F. heitinn Kenne-
dy, fyrrverandi forseti
Bandaríkjanna. Ég varð
dálítið undrandi og beygði
í hina áttina. É'g gekk hægt
inneftir gólfinu á móts við
þar sem eldavélin stendur
(en í draumnum var engin
eldavél, né neitt annað í
kringum mig). Ég stanz-
.aði og sneri mér hægt við
og tók þá eftir hvað gólfið
var hvítt og glansandi
hreint. Kennedy sneri
vanganum að mér og var
álútur yfir einhverju. Ég
var ennþá hálf undrandi
yfir því, að hann skyldi
vera þarna. Jafnframt var
ég glöð, en líka hrædd öðr-
um þræði, því að ég gerði
mér vel ljóst, að hann var
dáinn.
Allt í einu leit hann upp
og kom mjög hægt gang-
andi í áttina til mín. Ég
varð glöð yfir, að hann
skyldi koma til mín, en
svo vissi ég skyndilega, að
hann væri að koma og
heilsa mér, en mér fannst
eins og hann mætti alls
ekki taka í höndina á mér.
Kennedy stanzaði hjá
mér og horfði á mig. Ég
gerði mér allt í einu ljóst,
að hann vissi þá stundina
hvað ég hugsaði og tók
þess vegna ekki í höndina
á mér. Hann hélt á pakka
utan af London Docks-
vindlum. f pakkanum voru
tvenns konar töflur. Um
leið og hann tók eina upp
úr pakkanum, sagði hann:
— Þessar töflur hérna
notaði ég alltaf fyrst. Þær
áttu að virka svo fljótt og
vel. Árangurinn af þeim
átti að koma strax í ljós,
en þær urðu mér að falli.
Núna nota ég þessar hér
(hann tók um leið aðra
töflu upp úr pakkanum).
Þær verka svo seint og
hægt, að það sést enginn
árangur af þeim fyrr en
allt í einu, að hann kemur
allur í ljós. Og aðeins
þannig nær maðujr tak-
marki sínu.
Draumurinn varð ekki
lengri.
Með fyrirfram
kærri þökk.
Ein sem dreymir
sjaldan.
Þetta var svo sannarlega
óvenjulegur draumur. Við
mundum áiita að hann
boðaði dreymandanum
mikla upphefð og óvæntan
heiður. En atriðið með
töílurnar í London Docks-
kassanum eigum við erfitt
með að ráða. En við skul-
um vona, að niðurlag
draumsins rætist og hug-
sjónir Kennedys yerði að
veruleika ALLT í EINU og
árangurinn af stefnu hans
komi ALLUB í ljós.
MtHMitiilSfiÍI i
FANNBREIÐA OG
GIMSTEINN
Kæra Vika:
Mig langar að biðja þig
að ráða fyrir mig draum,
sem systur mín dreymdi.
Draumurinn hljóðar svo:
Henni fannst sem við
værum einhvers staðar á
gangi. Komum við þá að
mikilli fannbreiðu. Yfir
henni allri var íshjúpur.
Hún verður hálf hrædd og
segir, að við getum ekki
gengið yfir þetta. En ég
dríf mig út á fönnina og
segi, að þetta sé nú ekki
mikið. Kemur hún þá líka
á eftir mér og ísingin er
eins og hröngl. Við vöðum
í henni upp undir hendur.
Þegar við höfum gengið
nokkra stund, mætum við
afa mínum. (Við erum
hálfsystur og þessi afi
minn, sem henni fannst við
mæta þarna, er dáinn fyr-
ir mörgum árum. Hvorug
okkar sá hann í lifanda lífi.
Framhald á bls. 50.
C VIKAN
12. tbl.