Vikan


Vikan - 20.03.1969, Blaðsíða 20

Vikan - 20.03.1969, Blaðsíða 20
Þá er komið að síðasta merk- inu í dýrahringnum, en tímabil þess er í Evrópulöndum kallað síðasti hluti vetrarins. Snjórinn þiðnar og jörðin losnar smátt og smátt úr stirðnuðum viðjum vetrarkuldans, sem er ríki Satúrns. Rétt undir yfirborðinu ólgar líf komandi vors, en hef- ur þó ekki ennþá tekið á sig neinskonar form. Þetta merki er yfirleitt tákn- að með tveimur fiskum, og syndir annar áfram en hinn aft- ur á bak, en munnar þeirra oft tengdir saman með þræði. Sem sagt: samræmi og tenging hið innra, andstæður hið ytra. Svo sem fyrr hefur verið lít- illega að vikið í þáttum þessum, þá vilja margir fróðir menn meina að stjörnumerkin skipti sögunni sín á milli í tímabil til að drottna yfir. Venjulega er þá talið að hvert merki ríki í tvö þúsund ár, eða eitthvað nálægt því. Nú er mál margra að tíma- bil vatnsberans, könnuðarins sem engin takmörk viðurkennir, sé að hefjast, tæknibylting nú- tímans sé í samræmi við það. En næsta tvö þúsund ára tíma- bilið á undan, það sem er að líða, var tímabil fiskanna í mann- kynssögunni. Það var einnig tímabil kristninnar. Fiskurinn var tákn hinna fyrstu kristnu, sem stofnuðu kommúnur í Pale- stínu og földu sig í katakomb- um Rómar. Meira að segja var fiskmynd stundum látin tákna Krist sjálfan, og flestir postul- anna eru taldir hafa verið fisk- menni, enda höfðu sumir þeirra fiskveiðar að atvinnu áður en þeir fóru út í guðfræðina. Og ennþá er það til siðs meðal krist- inna manna að hafa fisk til snæðings á föstudögum. Fiskarnir eru eitt vatnsmerkj- fi. 2. - 21.3. /-----------------------------------. Með þessari grein lýkur greinaflokknum um stjörnumerkin. Hún fjallar um fiskamerkið, síðasta merki hringsins, sem jafnframt er að mörgu leyti dularfyllra og erfiðara til skilgreiningar en nokkurt hinna. Það er óútreiknanlegt og duttlungafullt eins og út- hafið, en jafnframt fullt með kærleik, enda nátengt kenningum Krists og postula hans. L___________________________________/ anna þriggja, eins og eðlilegt mái kalla. Það vatn, sem fiskarnir merkja, er að finna í hinum óra- j víðu hafdjúpum, sem öll vötn,. jarðar safnast til, sem eru enda-' lok regns og flóða. Vatni fiska- merkisins má líkja við Synda- flóðið, sem þakti gervallt þurr- lendið; það merkir óútskýranleg- an, takmarkalausan veruleika, sem allt felur í sér, sömuleiðis sameiginlegt vitundarleysi alls sem er. Andstæða fiskanna í dýra- hringnum er jómfrúin, svo sem líklegt má kalla, þar eða hún er þurrlegasta merki hringsins, en fiskamerkið tengt mestri vætu. Sú stjarna er helzt drottnar í fiskunum er Júpíter, en Venus hefur þar einnig mikið að segja. Báðum þessum himintunglum þykir fylgja mikil frjósemi, svo sem trúlegt er. Júpíter leggur víðasthvar gott til mólanna, þar sem hann kemur fram, og svo er einnig hér. Honum fylgja í fiskunum samræmi hugsana og gerða, góðvild, hugsjónahyggja, örlæti og höfðinglegur þanka- gangur, svo og kærleikur til vís- inda og lista. Venus getur komið fram í ýmsum myndum, en í fiskunum sýnir hún fremur sína „himn- esku“ hlið heldur en þá jarð- nesku. Sem kunnugt er úr goða- fræðinni fæddist gyðja sú, er stjarnan er kennd við, úr löðri sjávarins, og bendir það með öðru á tengsli hennar við fiska- merkið. Venus lætur yfirleitt gott af sér leiða í merkinu, fín- leika, hrifningu af dulúð og undr- um, rómantískt hugarfar. Ven- usarfiskar eru mikið gefnir fyrir vináttu og ást og gera lítinn mun á þessu tvennu. Eftir að stjörnuskoðarar höfðu upp á Neptún úti í himinhvolf- inu, hafa menn þótzt taka eftir Ekki vantar andans menn og hugsuði £ fiskamerkið, og er heimspekingurinn Schopcnhau- er gott dæmi um það. Fiskmcnni var og Júrí Gagarin, fyrsti gcimfarinn. Alhcimshyggja fiskamerkisins hcfur óvíða eða hvergi borið glæsilegri ávöxt cn í Albert Einstein. Oútreiknanlegir duttlungar Liz Taylor sverja sig í ætt fisk- anna. J V v. V J 20 VIKAN 12- tbL

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.