Vikan


Vikan - 20.03.1969, Síða 24

Vikan - 20.03.1969, Síða 24
— Kreitselmeier, hrópaði hann, —- stanzið eins og skot! Og þessi óvættur svaraði: — Eg get ekki stanzað hér, herra Siebert, þótt ég væri af öllum vilja gerður. Þá lamdi hann í æsingi með hnefunum á bak bílstjórans. — Þér stanzið hér, Kreitselmeier! Nú, til hægri, við gangstéttina! Bíllinn var enn ekki stanzað- ur þegar hann stökk út, hljóp konu nokkra nærri því um koll, þaut áfram. Vegfarendur urðu reiðir, skömmuðust. Þeir vissu ekki, að Júrgen Siebert hafði rétt í þessu séð dauða konu — Janine. Jurgen hljóp til baka, þaut yfir snjóskafl, lá endilangur á ísaðri steinstéttinni. Hann var fljótur á fætur aftur. Það blæddi úr hægri hendi hans. Götuljósin skiptu frá gulu yf- ir á rautt. Bílar þutu áfram. Hann ætlaði þrátt fyrir það yfir götuna, en maður nokkur þreif í handlegg hans og dró hann til baka. — Þér eruð líklega orðinn þreyttur á lífinu, eða hvað? Júrgen svaraði ekki. Hann þrýsti saman vörunum og starði fjandsamlega á umferðina. Þú hefur keypt líkkistu, Júrgen, þú hefur látið jarða konu þína í Heidelkirkjugarðinum, þú hefur komið upp fallegum, hvítum leg- steini með nafni hennar á, en hvernig stendur þá á því, að hún gekk þarna á götunni. — Reyndu nú ekki að telja sjálfum þér trú um neitt, þú sást hana greinilega. Þegar hann komst loksins yf- ir götuna, fannst honum hann hafa blý í skónum. Þrátt fyrir það neyddi hann sjálfan sig til þess að hlaupa, þjóta áfram, til vinstri, til hægri, framhjá stræt- isvagnastöðinni, inn í hliðargötu, aftur til baka, hann horfði van- trúaður á húsdyr, hlið, hann kíkti gegnum búðarglugga og búðardyr. Hún var horfin. Farin eitthvað þangað, sem hann gat ekki fylgt henni eftir. Vofa, draugur. Hann greip um háls sér, eins og hann ætlaði að losa sig við eitthvað, eitthvað óáþreyfanlegt. En það er ekki hægt að losna við drauga, eftir að þeir hafa einu sinni sézt. Myndin, sem augu hans höfðu horft á, lét hann ekki í friði. Hann gat ekki ýtt henni inn í veröld draumanna, 24 VIICAN 12-tbl- hún var eins skýr og hún hefði verið tekin með ljósmyndavél. Hann stóð kyrr, gekk áfram, einhver ýtti við honum, án þess að hann tæki eftir þvi. Myndir komu fram í huga hans, mynd- ir úr fortíðinni. Líf hans með Janine hafði hafizt í Múnchen. Manstu, Júrgen, eftir litlu, fal- legu íbúðinni í Sulzbachergötu, eftir látúnsskiltinu á hurðinni, sæludögunum, eftir fyrsti plötu- spilaranum, sem hún keypti handa þér í afmælisgjöf, eftir kaffihúsinu á horninu, eftir rauðu gluggatjöldunum í svefn- herberginu, eftir bláu dragtinni hennar.... —■ Herra Siebert, röddin reif hann upp úr hugsunum sínum, — ég setti bílinn við bensín- tankinn. En við náum flugvél- inni ekki úr þessu. Júrgen þrýsti tíumarkaseðli í hendi bílstjórans. — Þetta er vegna óttans, herra Kreitsel- meier, sagði hann, — vitið þér, ég sá nokkurn, sem ég hef ekki séð í lengri tíma, þess vegna gat ég ekki beðið þangað til þér funduð bílastæði. — Það skil ég, þrumaði í bíl- stjóranum. — Þér skuluð bara bara aftur í verksmiðjuna, ég tek mér bíl seinna út á flugvöll. — Allt í lagi. Maðurinn hvarf. Júrgen leitaði að símaklefa, skrifaði nokkur nöfn og númer á leynilögregluskrifstofum upp úr símaskránni. Hann náði strax sambandi við fyrsta númerið. Tuttugu mínútum síðar sat hann á skrifstofu leynilögreglu- mannsins Pauls Krasch, kæru- leysislega klæddum manni sem hann gizkaði á að væri í hæsta lagi tuttugu og átta ára. Júrgen tók mynd af Janine upp úr skjalatösku sinni og ýtti henni yfir skrifborðið í átt til lögreglumannsins. — Eg vil finna þessa konu, sagði hann. — Hvar á hún að vera? — f Munehen. Eg sá hana út um bílglugga fyrir tæpri klukku- stund, í Prinzregentengötu, rétt hjá íssölunni. Þegar bílstjóri minn gat loks stöðvað bílinn, þá var hún horfin. - Og hvað heitir hún? Júrgen leit ekki undan augna- ráði mannsins. — Eg veit ekk- ert nafn, herra Karseh, ég veit aðeins, að hún lítur svona út. — Múnchen er að vísu þorp, Paul Karsch brosti, — en hefur þó meir en milljón íbúa. Mynd- in er til allrar hamingju skýr . . . hún er Ijóshærð, ekki satt? — Jú. — Hverju var hún klædd, þegar þér sáuð hana síðast? — Blárri kápu. — Hve gömul? — Tuttugu og sjö. — Getur verið að hún búi á hóteli? — Það er mögulegt, svaraði Júrgen. — Er hún gift eða ekki? Spurningarnar fóru að fara í taugarnar á honum. — Það veit ég ekki heldur. Þér eigið ekki að afla neinna upplýsinga um hana. Þér þurfið ekki að fylgj- ast með henni, þér þurfið ekki að komast að neinu persónulegu í sambandi við hana, ég vil að- eins fá heimilisfang hennar. Eg sé um allt annað sjálfur. — Gott. Aðeins heimilisfang. Og hvar get ég náð sambandi við yður? Júrgen rétti honum nafnspjald sitt. — Annað hvort á skrifstof- unni eða heima. Annars lætur einkaritari minn yður vita. Tveim tímum síðar flaug Júrg- en Siebert til Berlínar. Leyni- lögreglumaðurinn Paul Karsch lét margfalda upplag myndar- innar og hóf leit að hinni óþekktu, ljóshærðu stúlku, með aðstoð manna sinna. Þegar Janine vaknaði úr þriðja dáleiðslusvefni sínum, lá hún kyrr á legubekknum, föl og upp- gefin. í dag var þetta öðru vísi en áður. í dag þurfti hún ekki að spyrja lækninn óttafull: — Hvað gerðist, læknir? f dag vissi hún það. Dr. Sartorius sat á stól fyrir framan hana og horfði rólega á hana. — Þér vitið, hvað þér hafið endurlifað, ekki satt? — Jú, svaraði hún lágt, — brúðkaup mitt. Aðeins líf í klukku heyrðist í herberginu. Annars var allt hljótt. Ekkert hljóð barst að utan. Janine lokaði augunum. And- lit hennar speglaði aftur von, ótta og geðshræringu. Hún tal- aði fremur við sjálfa sig en lækn- inn. — Ég er þá gift. Dr. Sartorius sa'gði: — Við skulum halda okkur að því, sem þér hafið endurlifað I undirmeð- vitundinni. — Það voru helgi- siðir við kirkjulega giftingu. Janine settist upp. — Læknir, sagði hún æst, — þetta má alls ekki vera satt, ég sá altarið mjög greinilega, heyrði orð prestsins, klukknahljóminn, fann tár mín, höndina, sem setti hring á fing- ur mér, en manninn, manninn minn, nei, hann sá ég ekki. Það, var aðeins skuggi, skuggi við hlið mína, trúið mér, ég reyndi eins og ég gat.... — hún lyfti höndum sínum því til sönnunar — en ég gat alls ekki séð hann, ekki andlit hans, ekki einu sinni fötin, sem hann var í. Janine titraði. Andlit hennar var blautt af svita. — Skiljið þér, hvernig mér líð- ur, læknir? Ég er gift, hef geng- ið í hjónaband — og ég veit ekki með hverjum? Skrattinn hlýtur að hafa komið þessu í kring.... Dr. Sartorius tók um hönd hennar. — Undirmeðvitund yð- ar hefur komið þessu til leiðar, Janine, og þessa ráðgátu glími ég oft við hérna. Við vitum hvar í heila yðar gáfur yðar dvelja. Með einni skurðaðgerð getum við gert snilling að fábiána. En hvar hið víðáttumikla Ég hins mannlega líkama er staðsett — um það höfum við enga hug- mynd. Janine þagði. — Dáleiðsla er einskonar árás á þessar stöðvar, hélt læknirinn áfram, — feluleikur, tilraun til þess að ýta horfnum, gleymdum eða gröfnum hlutum aftur út í dagsljósið. — Og ef feluleikurinn mis- tekst? spurði Janine. Dr Sartorius mætti augnaráði hennar. — Gleymið ekki, að við höfum þegar fundið mola úr lífi yðar. I fyrsta tímanum varð Ijóst, að þér genguð í franskan skóla sem barn, þér sunguð franskt Ijóð, svöruðuð á frönsku. Aftur á móti í dag, í kirkjunni, töluð- uð þér þýzku .... — Haldið þér þá, að ég sé frönsk og hafi gifzt Þjóðverja? — Já, ég held það. Þannig hlýtur það að vera. Dr. Sartorius bauð henni síg- arettu. Hún dró nokkra reyki að sér, síðan spurði hún: „í þessu tilfelli hlyti hvarf mitt að vera tilkynnt lögreglunni í Þýzka- landi. Og það ætti að vera létt að fá upplýsingar hjá lögregl- unni. Læknirinn gekk að skrifborði sínu. — Það ómak getið þér spar- að yður, Janine. Ég hef þegar farið til lögreglunnar og beðið um að sjá listann yfir fólk, sem saknað er, þar á meðal er engin kona, sem yðar lýsing gæti átt við. Janine horfði hugsandi niður á fætur sér. — Aðallega kvelur sú spurning mig, hvers vegna eng- inn í öllum heiminum saknar mín. Sjáið þér, læknir, leitað er eftir hverjum hundi, sem hleyp- ur frá húsbónda sínum. — Við skulum treysta því, Janine, að við fáum einnig svar EFTIR JENS BEKKER 6. HLUTI VIÐ hverja snertingu hans

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.