Vikan


Vikan - 20.03.1969, Page 25

Vikan - 20.03.1969, Page 25
við þessari spurningu. Þér mun- ið sjálfar gefa okkur svar við henni. — Það er nú reyndar nærri því fyndið, ekki satt? — Nei, muldraði Janine, — það er í raun og veru ekki vit- undarögn fyndið. Læknirinn hló. Hann hjálpaði henni í kápuna og fylgdi henni til dyra. Þau urðu ásátt um að hafa næsta tíma þann 12. febrúar. Þann 11. febrúar kom Stephan Haller aftur til Munchen. Sólin skein, þegar hann steig út úr lestinni. Hlýr vindur blés og minnti á vorið. Þetta var alveg að hans skapi. Hann keypti stóran rósavönd, veifaði í leigubíl og lét aka sér á hótelið, sem Janine bjó á. Á þeim sjö dögum, sem hann hafði ekki séð hana, var honum orðið margt ljósara. Hann var hættur að blekkja sjálfan sig. Þær tilfinningar, sem hann bar til Janine voru hvorki meðaumkun, vinátta eða neitt þvílíkt. Það var ást. Og hann fann að það var kominn tími til þess að gera henni það Ijóst. Hann hafði sparað saman þús- undir ástaratlota og þúsundir orða fyrir hana eina. Janine, ætlaði hann að segja, hvað kemur fortíð þín okkur við. Við skulum hætta að leita henn- ar. Við elskum hvort annað og það er miklu meira virði en gamlar endurminningar. Það er svo miklu meira. — Fagur dagur í dag, finnst yður ekki? hrópaði bílstjórinn aftur í til hans. — Já. Það má nú segja. Haller hallaði sér aftur á bak. Honum virtust öll andlit, sem hann sá á götunni fyrir utan, vera glaðleg. Janine-Marie Laurent — hann hafði útvegað henni þetta falska nafn. Hann ætlaði að bjóða henni ekta nafn í stað þess. Sitt nafn. Ég veit að við verðum ham- ingjusöm, Janine. Við munum leita okkur að íbúð í Munchen, við munum kaupa okkur hús- gögn saman, mamma mun að lokum eignast hin langþráðu barnabörn, ef til vill stúlku, sem er Ijóshærð eins og þú, fögur eins og þú .... Þegar Stephan Haller steig út úr bílnum í Beethovengötu og borgaði bílstjóranum, hafði hann byggt sér glæsta skýjakljúfa. Og þegar hún stóð svo frammi fyrir honum í anddyrinu, þá hefði hann helzt af öllu viljað taka hana með sér út í snjóinn og skýra henni strax frá öllum tilfinningum sínum og áætlun- um. En það vildi svo til að þau voru orðin fullorðin og urðu að hegða sér samkvæmt því. Halda utan um hana, kyssast lauslega — já, það var ekki hægt að leyfa sér meira í hótelanddyri. — Þú ert ennþá fallegri, sagði hann ljómandi. — Þakka. Hún brosti um leið. Hann tók ekki eftir því, að þetta var óöruggt, óhamingjusamt bros. — Hefurðu saknað mín nokk- uð? spurði hann. — Hræðilega, sagði hún. Hann varð þess ekki var, að Janine hefði breytzt nokkuð, að hún var hljóðari en venjulega, að hún reyndi stundum að forð- ast augnaráð hans, að í raun og veru var hún hrædd. Hjarta hans var einfaldlega of fullt af hamingju, dagurinn of fagur, vonin of mikil. Allan eft- •imiðdaginn lét iiann sig dreyma við hlið hennar. Hann sagði henni frá lífi sínu, eins og hún hefði rétt til þess að vita allt um hann. Þegar þau voru að gefa villi- öndum við Kleinhesselohervatn- ið, var þegar tekið að rökkva. Þau sátu hlið við hlið á stein- handriðinu. Hinum megin við vatnið var kveikt á fyrstu ljós- unum. — Hvers vegna hefurðu aldrei gifzt, Stephan? spurði Janine allt í einu. —■ Veiztu, hann lagði hand- legginn utan um hana og dró hana blíðlega að sér, — ég var alltaf að bíða eftir jarðskjálfta. Andlit þeirra snertust fyrst, síðan varir þeirra. — Janine, ég elska þig, meira en ég get sagt þér. Ég vil eyða allri ævinni með þér, heyrirðu. Hún þagði og hann hélt lágt áfram: — Ég elska þig eins og þú ert. Við giftum okkur, og engin vandamál verða lengur til. Dagurinn í dag hefur þýðingu, einnig morgundagurinn, en gær- dagurinn ekki. Lífið liggur fram undan. Janine. Það er aðeins, — hann hikaði áður en hann lauk við setninguna, — er ég þér einskis virði? — Þú ert mér mikils virði, Stephan, svaraði hún með ó- kunnri röddu. — En lausnin er of einföld, allt of einföld. — Hvers vegna? — Vegna þess að ég er þegar gift. Hann starði furðu lostinn á hana. — Hvernig veiztu það? Hún sagði honum það. Stephan tók fast um axlir hennar. Hann lyfti andliti henn- ar: -r- Janine, það sannar ekki neitt. Slæmur draumur, skugga- mynd, sem enga þýðingu hefur. Hún tók fram í fyrir honum: — Þú veizt, að þetta er ekki þannig. Þú hefur sjálfur sagt mér, að dáleiðsla sé enginn hókus pókus. Þú bentir mér á lækninn, þú vísaðir mér veginn, nú verð ég að ganga hann til enda. — Ef til vill hefur þetta verið brúðkaup allt annarrar, reyndi hann að útskýra, — brúðkaup vinkonu, kunningja.... Janine hristi höfuðið. — Nei, ég kraup á kné, ég sagði já, ég tók við hringnum. Stephan, reyndu að skilja. Hann horfði fram hjá henni. Skuggar þeirra spegluðust í vatnsfletinum. Eins og ástfangið par, hugsaði hann bitur. Aftur á móti var það aðeins missýning, blekking, ekkert annað. Hvern dag gat komið maður, sem átti eldri rétt, kannski eig- inmaðurinn. Eða unnusti. Eða aðeins elskhugi. Hann hélt henni í fangi sér, konunni, sem hann elskaði meir en allt annað, en hver sem er gat tekið hana frá honum. Karlmaðurinn í honum reis öndverður gegn því. Hann dró Janine að sér, kyssti hana öðru vísi en hann hafði nokkurn tíma áður gert, vildi opna stífluna með ákafa sínum, leysa upp hugsanirnar. Tárvott andlit hennar kom honum til þess að ranka við sér. Og flöktandi augu hennar. Og lág, biðjandi rödd hennar: — Step- han, við megum ekki gera þetta, við megum ekki blekkja sjálf okkur. Þannig verðum við aldrei hamingjusöm, þú veizt það, al- veg eins vel og ég! Litla, kjarkmikla brosið, sem hún sendi honum, gerði aðeins örvæntingu hans ennþá meiri. — Komdu, sagði hún með kökk í hálsinum, — við skulum fara. Eitthvert, þangað sem fólk er, þangað, sem við erum ekki ein lengur. Hann hafði óskað sér svo heitt að vera einn með henni. f þess stað ráfuðu þau um eins og villt börn, frá einum skemmtistað til annars, færðu sig fjær hvort öðru og töluðu um hluti, sem þau alls ekki vildu tala um. Þegar þau skildu, var löngu komið fram yfir miðnætti. Step- han sá hana hverfa inn um hótel- dyrnar, lítinn líkama hennar, ljóst glansandi hárið, döpur augu hennar, hreyfingu handar henn- ar, þegar hún veifaði honum enn einu sinni. Nei, hann mundi ekki gefast upp. Hann mundi berjast um hana við hvern þann, sem stíga mundi fram úr fortíðinni. Þegar dyrabjöllunni var loks hringt, leit Jiirgen gegnum gluggann út á götuna. Systir í nunnureglunni stóð við limgirð- inguna, út úr sendiferðabíl stigu fleiri menn. — Hver er þetta? spurði Gaby undrandi. — Frá hjálpræðishernum. Ég hringdi til þeirra og bað þau að sækja dót konu minnar. Kjóla, kápur, undirföt — hvað ætti annars að gera við það? — Hin guðhrædda systir þarf ekki endilega að sjá mig hérna, sagði Gaby dálítið háðs- lega. — Hefurðu nokkuð á móti því, þótt ég láti renna í bað handa mér á meðan? — Auðvitað ekki. Gaby hvarf. Júrgen opnaði úti- dyrnar. Mennirnir báru poka undir handieggnum. Systirin rétti honum hendina. — Hafið þér einhver not fyr- ir þetta? spurði Júrgen. — Ó, iá, svaraði systirin. — Þér skuluð ekki halda það, herra Siebert, að neyðin sé dáin. Ef þér viliið, megið þér koma með mér einhvern daginn, í fjölskyldu- heimsókn. Nei, hann vildi það ekki. Hann vildi aðeins losna við allt, sem minnti á Janine. Hann hefði skammazt sín fyrir að selja allt dótið. Honum fannst bezta leið- in vera að gefa það allt. Hann opnaði stóra klæðaskáp- inn í svefnherberginu. — Skiljið fötin mín eftir, allt annað getið þér tekið. Gaby buslaði í baðkarinu í næsta herbergi. Það heryðist greinilega. I morgun hafði henni allt í e>nu skotið upp í Berlín. — Ég get í mesta lagi verið án þín þrjá daga, hafði hún sagt. Og hið versta var, að honum var al- veg eins farið. Hann var ánægð- ur yfir, að hún var komin. Og auðvitað mundi hún verða yfir nóttina. Til hvers þurfti hann að taka tillits? Janine var dáin. Hræðslan, sem hafði gripið hann í Múnchen hafði horfið með fjarlægðinni og rólegri umhugsun. Annað hvort Framhald á bls. 50. i2. tbi. VIKAN 25 '---------------------------------------------------------------------N Jiirgen tók mynd af Janine upp úr skjalatösku sinni og ýtti henni yfir skrifborSiS í átt til lögreglumannsins. - Ég vil finna þessa konu, sagSi hann. V_____________________________________________________________________J

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.