Vikan


Vikan - 20.03.1969, Qupperneq 35

Vikan - 20.03.1969, Qupperneq 35
PER SPARIÐ MEÐÁSKRIFT ÞER GETIÐ SPARAÐ FRÁ KR. 7.50 TIL KR. 15.38 MÉÐ ÞVI AÐ GERAST ÁSKRIFANDI AÐ VIKUNNI OG ÞÉR ÞEKKIÐ EFNIÐ: VIKAN£> BLAÐAUKI Karlmenn eru alltaf sjálfum sér líkir... Framhald af bls. 13. hvað í þessa átt einmitt núna. Hún horfði hugsandi upp í loft- ið. — Ég ætlaði nú eiginlega ekki að minnast á þetta við þig fyrr en þú værir orðinn svolítið. hressari, en þar sem við erum farin að tala um þetta, þá býzt ég við að það sé eins gott að segja þér það, og ég vona að þú fáir ekki aðsvif. Við fáum gest í gistingu og fæði. Já eiginlega svona — ja — bókabéus. Ég er í eðli mínu hógvær sál, en hugsunin um það að fá ein- hvern ókunnugan mann vaðandi um í baðherberginu, þegar ég var svona illa haldinn, gerði mig hreinlega máttlausan. — Hver er það? snörlaði ég. — Elliot Jarrod, svaraði hún, — þú veizt, hinn þekkti Elliot Jarrod. — Hversvegna þennan Elliot Jarrod? Kemur hann til með að búa hér? — Vertu nú rólegur, Sy, þú veizt mætavel hver hann er. Hann hefir skrifað margar bæk- ur, og þar á meðal bókina um Tróju. Við höfum haft þrjá fundi í bókafélaginu um hann, og þú ' manst líklega að ég skrifaði grein í blaðið um þessa bók. Jæja, hann ætlar að halda fyrir- lestur hjá okkur á mánudaginn, og stelpunum fannst svo kulda- legt að láta hann gista á kránni, svo við létum sjálfboðaliða gefa sig fram og svo var dregið. Ég vann, sagði hún, sigri hrósandi. — Segðu þetta aftur, — barð- ist þú fyrir því að fá hann í þinn hlut? — Vissulega gerði ég það. Minna Harris vildi endúega fá hann til sín, sagðist hafa heila íbúð til reiðu fyrir hann, og að þjónustufólkið hennar væri svo vel að sér í franskri matargerð, en hún sagðist vita að ég hefði enga hjálp, nema hreingerning- arkonu einu sinni í viku. Mig langaði til að bjóða henni byrg- inn, sagði að maðurinn m:nn hefði svo mikinn áhuga á bók- menntum, og að við hjónin vær- um sérstaklega hrifin af Jarrod. Ég tók fram í fyrir henni. — Þú veizt að mitt eina frístunda- áhugamál er að smíða garðhús- gögn. Og þessutan f:nnst mér hart að ég skuli ekki fá að deyja friðsamlega í skauti fiölskyldu minnar, einn og óáreittur. — Heyrðu mig nú Sy, ég skil ekki hvað hefir hlaupið í þig. Þú sem venjulega ert eins og engill, en bara vegna bess að þú hef:r fengið svolítið nasa- kvef, seturðu allt á annan end- ann. Herra Jarrod kemur ekki fyrr en annað kvöld, og þá verð- urðu orðinn alveg góður. — Ef það er fyrirsjáanlegur VIKAN EB HEIMILISBLAÐ OG í ÞVÍ ERU GREINA R OG EFNI FYRIR ALLA Á HEIMILINU, — UNGA OG GAMLA, SPENNANDI SÖGUR OG FRÁSAGNIR, FRÓÐLEIKUR, FASTIR ÞÆTTIR OiFL., O.FL. Vinsamlegast sendiS mér Vikuna í áskrift r r i i 4 TOLUBLOÐ Kr. 170.00. Hvert bla8 á kr. 42.50. 3 MÁNUÐIR - 13 tölubl. - Kr. 475.00. Hvert blaS á kr. 36.58. 6 MÁNUÐIR - 26 tölubl. - Kr. 900.00. Hvert blað á kr. 34.62. Gjalddagar fyrir 13 tölubl. oq 26 tölubl.: 1.' febrúar — 1. maí — 1. ágúst — 1. nóvember. SkrifiS, HririgiS eða komið. L PÓSTSTÖÐ VIKAN SKIPH0LTI 33 P0STH0LF 533 REYKJAVÍK SlMAR: 36720 - 35320 n i i i j 12. tbi. yiKAN 35

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.