Vikan


Vikan - 20.03.1969, Síða 36

Vikan - 20.03.1969, Síða 36
PIRA-SYSTEM HIN FRÁBÆRA N?JA HILLUSAMSTÆÐA ER í SENN HAGKVÆM OG ÓDVR Það er ekki margt, sem liefur lækkað í verði að undanförnu. Það hafa PITIA hillusamstæðurnar gert sökum hagia:ð- ingar og verðlækkunar í innkaupi. Nrfn- ið til hvers þér þurfið hillur og PIRA er svarið. Ódýrustu bókahillur, sem völ er á, hillur og borð í barnaherbergi í vinnuherbergi, í húsbóndaherbergið. Sjáið myndina hér; þar er skipt á milli borðstofu og stofu með PIRA-vegg. liorðstofuskenkurinn sparast. PIRA hillusamstæður geta staðið upp við vegg, eða frístandandi á gólfi. Engar skrúf- ui' eða naglar til að skemma veggina. Notið veggrýmið og aukið notagildi íbúðarinnar. PIRA hillusamstæðurnar eru lausn nútímans. HÚS OG SKIP M. Ármúla 5 — Sími 84415—84416. einhver endi á hörmungum mínum, sagði ég kuldalega, — þá verður það örugglega ekki fyrir annað kvöld. — Jæja, ef þú þarft að liggja í rúminu, þá komum við hing- að upp til þín og röbbum við Þig- Allt í einu sá ég í anda mynd af Ruthie og Jarrod. Ég sá þau saman í bókaherberginu. Allt var hljótt, börnin voru sofnuð og Ruthie var í baklausum kvöldkjól. Þau sátu þétt sam- an og Ruthie hló að einhverjum háleitum brandara; augu Jar- rods voru dökk af ákafa. Ég hnerraði og sagði: — Fjandinn hafi þetta allt, Ruthie, það er skylda þín að standa mér við hlið. -—■ Það er einmitt það sem ég er að segja, elskan. Ef þú treyst- ir þér ekki á fætur, þá kem ég upp með kaffið og svo sit’um við hjá þér allt kvöldið. Hún leit í kringum sig. — Hvað get ég gert fyrir þetta herbergi á tveim dögum? Sjáðu nú allt þetta drasl. — Þetta eru aðeins nokkur tímarit, sagði ég. — Dagblöð, pípur, tímarit og veiðihjól. Heyrðu, hvað ertu að gera með veiðihjól? — Ég var aðeins að skoða það, sagði ég hörkulega. — Einfald- lega að skoða það. — Ég verð að taka hér til eftir hádegisverðinn. Þú verður að fara inn til telpnanna á með- an. — Verða þær þar líka? — Það er ausandi rigning. Ég get ekki sent þær út, þær myndu drukkna. Finnst þér ég geti sagt þeim að fara út? — Þú gætir það, ef þú elsk- aðir mig. — Þetta tekur aðeins smá- stund, ég skal sjá til þess að þær trufli þig ekki. — Hvað fæ ég að borða ann- að en linsoðið egg? — Mjólk og ávaxtasalat. — Ekki súkkulaðibúðing? Þú gefur telpunum ailtaf súkku- laðibúðing, þegar þær fá kvef. Rulhie ýtti hárinu frá enninu og horfði á mig, heldur úfin á svipinn. — Sy, hreingerningar- konan hringdi og sagðist vera kvefuð, svo hún kemur ekki í dag. Það þýðir það að ég verð að hreinsa allt húsið ein, strauja, gefa þér og börnunum að borða, fægja kaffisettið og sparisilfrið fyrir klukkan sex. — Hverskonar ávaxtasalat? spurði ég og setti upp sauðar- svip. — Plómur. — Ég er ekkert fyrir plómur. — Þá geturðu fengið ferskj- ur. — Það er bezt að ég fái hvort- tveggja. — Allt í lagi, ég skal kalla á þig, þegar ég hefi matinn tilbú- inn. — Á ég ekki að fá matinn í rúrnið? — Er það nauðsynlegt? — Auðvitað. Ég er rúmfastur, sérðu það ekki? — Allt í lagi, ég skal senda telpurnar upp með bakka. — Segðu þeim þá að skilja bakkann eftir fyrir utan dyrnar, og láttu þær ekki eiga neitt við það sem á honum er. Þær eru vísar til að setja eitthvað ann- að i staðinn. Það má ekki líta af þessum börnum andartak. Hún yfirgaf herbergið og ég lá einn í þungum þönkum. Þessi Jarrod náungi var örugglega einn af þessum svokölluðu lista- mönnum, með leðurbætur á erm- unum. Án efa var hann frönsku- mælandi og borgaði á veitinga- húsum með ávísun. Hann æki auðvitað einhverri útlendri bíl- tegund og hefði tvær eða þrjár ástmeyjar, og ég hafði engan á- huga á honum og kærði mig ekkert um hann. En ég er hreint r N PREMIER ONSON MILADY ADONIS WINDMASTER SENATOR ADELPHI FORUM Magnús E. Baldvinsson V ekki afbrýðisamur. Þegar ég er heill heilsu er ég alls ekki ó- myndarlegur maður. Ég fer í leikfimi tvisvar í viku og leik stundum handknattleik, og þótt ég sé rennandi blautur er ég ekki nema sex pundum þyngri en ég var á skólaárunum. Og svo er ég yfirleitt alltaf í góðu skapi. Auðvitað hefir þetta kvef komið mér úr jafnvægi, en kvef getur líka verið nokkuð alvar- legt mál. En konur virðast ekki skilja það. Það er einfaldlega þannig að þegar maður er rúm- fastur er það ekkert notalegt að vita einhverjum leðurbíta náunga vera að daðra við eigin- konuna í manns eigin bókaher- bergi. Og hvað var Ruthie að segja, að hún þyrfti að fægja sparisilfrið. Hún notar aldrei þetta „sparisilfur“, nema einhver ósköp standi til. Hún slær ekki ryki í augun á mér, ég þekki þetta silfurstand. Þá á að hafa fataskipti fyrir mat og koníak með kaffinu. Hún ætlast auðvit- að til að ég fari í silkináttföt- in, sem ég nota aðeins á hátíð- um og tyllidögum. Hún gæti jafnvel krafizt þess að ég fari í þetta silkidót, sem hún gaf mér í jólagjöf. Mig langaði svo til að skila því, en ég vildi ekki særa tilfinningar hennar. Þetta er einskonar Sherlock Holmes heimajakki, með bláu silki á jakkalöfunum. Hryllilegt. En það væri svo sem eftir henni að krefjast þess að ég fari í þenn- an grímubúning. — Ég geri það ekki, snörlaði ég upphátt. — Ef hann getur borðað með leðurbætur á oln- bogunum, þá get ég verið í gömlu baðkápunni minni. — Við hvern ertu að tala, pabbi, sagði Patty, yngri dóttir mín, um leið og hún sparkaði upp hurðinni. — Já, tók Ginny systir henn- ar undir. — Hvern ertu að tala við? — Skiptið ykkur ekki af því, sagði ég. — Eruð þið með mat- inn minn? — Já, sagði Patty, — en ég myndi ekki vilja borða þetta. Hún gretti sig. — Eggið er lint. — Þetta er prýðilegt linsoðið egg, sagði ég. — Eg er þakklátur ef þið haldið ykkar e'gin skoð- unum út af fyrir ykkur. — Þetta er hrátt, sagði Ginny, — en mamma segir að þú viljir hafa þetta svona. - Ætlið þið að standa þarna í allan dag, eða á ég að fá mat- inn? Þær liftu bakkanum upp og skelltu honum á hnén á mér. Svo settust þær á rúmstokkinn, svo bakkinn hallaðist eins og sökkvandi skip. — Þú lítur ekkert veikinda- lega út, sagði Ginny. — Nei, sagði Patty. — Þegar pabbi hennar Susie Harris var veikur, þá hafði hann tvær 36 VIKAN 12- tbl-

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.