Vikan


Vikan - 20.03.1969, Page 40

Vikan - 20.03.1969, Page 40
BOKIN SEM REYNT HAR AB BANNA í BANDARIKJIINIM SKJÖL VALACHI nefnist marzbók Úrvals og er ein af metsölubókunum í Bandaríkjunum um þessar mundir. Hér er um að ræða upp- Ijóstrun á glæpahreyfingu að nafni Cosa Nostra. Þessi hreyfing er vandlega skipulögð og teygir anga sína um öil Bandaríkin. Válachi starfaði í Cosa Nostra um þrjátíu ára skeið, en situr nú í fangelsi. IJann er þaulkunnugur sögu og skipulagningu þessarar óhugnanlegu glæpahreyf- ingar. Þegar fréttist, að Valachi hefði leyst, frá skjóðunni og ætlaði að gefa út bók, var reynt með ýmsum ráðum að hindra útkomu hennar og fá hana bannaða. En það tókst ekki, og nú er hún komin út. Þetta er bók, sem enginn má láta framhjá sér fara. ttrval — Það verður nú ekki af því, tautaði ég. — Hvað ertu að segja? — Ég sagðist vera þyrstur núna. — Allt í lagi. Hún sneri sér við og var á leið út, en leit svo um öxl. — Ég held þú yrðir mikið hressari Sy, ef þú reyndir að sofna um stund, og vera ekki alltaf að tefja mig. — Ertu reið? — Nei, ég er ekki reið. Ég skil þig bara ekki. Fyrir tveim árum fékkstu lungnabólgu, og þá varstu þægur eins og ljúfasta lamb. Og þegar þú fótbrotnaðir varstu hreint göfugmenni. En núna ertu erfiðari en tíu krakk- ar, vegna þess að þú ert með nasakvef og einhvern höfuðverk. — Ég býzt við að Elliot Jar- rod fái aldrei kvef? — Hvað kemur það þessu máli við? — Ekkert, sagði ég, — ég er að hugsa um að blunda svolítið. Og ég kúrði mig niður og breiddi upp yfir höfuð. Elliot Jarrod, ha, ha, hann úðaði auðvitað á sér hálsinn og hrúgaði í sig vítamínum. Hann var líklega sú manntegund, sem gengur í flegn- um pólópeysum, og er aldrei veikur. Ég sá hann fyrir mér með skordýraeitursprautu, sem hann mundaði eins og riffil. Ruthie, í baklausum kjól, horfði á hann með hrifningu, og dætur mínar köstuðu yfir hann sára- bindum, eins og það væru papp- írsræmur. Svo sofnaði ég. — Hættu þessu, sagði ég ergi- legur, þegar ég vaknaði við það, þremxu- stundum síðar, að kon- an mín var að hrista mig. — Sy, vaknaðu! Það hafa skeð þau ósköp. Þegar Ruthie verður æst, þá er hún alveg eins og krakki, gerir úlfalda úr mýflugu. —• Hvað er svona hræðilegt, spurði ég. — Mér er alvara. Ruthie greip um ennið. — Hitinn er farinn, það hefir eitthvað bilað. Svo mikið er víst, húsið er eins og ískista, og ég get ekki fengið nokkurn viðgerðarmann til að koma núna, þeir geta ekki kom- ið fyrr en á morgun. Á morgun, og Elliot Jarrod kemur í kvöld. Það er það versta. Ég fékk skeyti um það að hann hefði breytt ákvörðun. Hann kemur með hálf sjö lestinni, og ég verð að fara á stöðina til að taka á móti honum, og ég er ekki einu sinni búin að þvo á mér hárið. Og þú ættir að sjá eldhúsið, stelpurnar eru búnar að maka út allt gólf- ið í súkkulaði. Sy, þú verður að fara á fætur og gera eitthvað. — Róleg, vina mín, sagði ég og stakk fætinum út undan sænginni, en dró hann að mér aftur. — Það er ískalt, þetta er ekki bjóðandi mönnum eða skepnum. — Það er það sem ég er að reyna að segja þér. Hún horfði á mig með vonleysissvip. — Égí get ekki séð að þú getir eimr sinni rakað þig. I — Ég ekki heldur. Hvað er þetta með kyndinguna? Þú verð- ur bara að segja þessum mikla manni að þú lofir mér að vera hér, vegna þess að þú kennir í brjósti um mig. — Heldurðu að þetta sé eitt- hvað fyndið? sagði hún ásakandi. — Nei, það er ekkert fyndið að fara á fætur, þegar maður er dauðveikur, sagði ég. — Athugaðu miðstöðina fyrst. Hún þagnaði andartak, og það var eins og betri maður hennar fengi yfirhöndina. — Hvernig líður þér? spurði hún. — Ég kvarta ekki. — Ég sé að þér er að batna. Sjáðu nú til. Ég fer niður og gef stelpunum að borða og kem þeim fyrir fyrir framan sjónvarpið. Ég kveikti upp í arninum í. vinnuherberginu, svo það er sæmilega hlýtt þar. Þú lagar miðstöðina og sérð um að hafa einhvern drykk tilbúinn. Ég fer svo á stöðina til að sækja herra Jarrod. — Taktu eftir mér, þegar þú kemur heim, ég skal vera seztur við arininn, með bók um enska ljóðagerð í höndunum. — Það myndi ekki skaða þig, sagði Ruthie, fjarræn á svipinn. — Þú getur ekki fengið allt sem þú óskar, sagði ég. — Ann- aðhvort er ég tryggur eiginmað- ur þinn og fyrirvinna fjölskyld- unnar, eða ég slæpist hér um húsið og les ljóð. — Ég hefi ekki tíma til að þrefa um þetta núna, sagði Rut- hie, — en ég vona að þú ofleik- ir ekki, það er allt og sumt. — Hvað áttu við með því? — Við höfum oft talað um þetta í bókaklúbbnum, sagði Ruth kuldalega. — Hvernig eig- inmenn haga sér, þegar bók- menntafólk er annarsvegar. Það eru aðrar leiðir til að vinna fyr- ir daglegu brauði, en að selja tilbúinn fatnað eða tryggingar. Ég er viss um að Ernest Hem ingway og William Faulkner hafa haft bæði til hnífs og skeið- ar. — Allt í lagi, aUt í lagi, sagði ég, — en það er eitt sem ég vil benda þér á. Þegar ég kem heim með viðskiptavini mína, þá hefi ég aldrei orðið var við að þú þyrftir að fægja sparisilfrið. En ef einhver skriffinnur er á næstu grösum, þá á ég að gera við miðstöð og sjá um drykkjar- föng. — Ef þér finnst það eitthvað skrítið, þá bíddu bara þangað til ég er kominn í nýja kvöld- kjólinn, hann er baklaus, sagði Ruthie, og stillti sig um að brosa. — Já, tautaði ég skuggalega, — ég veit það. , Ég fór í tvær peysur og dreif mig niður í kj allara til að berja í rörin. Venjulega er ég ósköp 40 VIICAN 12- tbl-

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.