Vikan - 10.07.1969, Side 5
Tjabbe prins og ein af fyrri vinkonum hans, sem hann hefur nú gefiff upp á bátinn....
SVÍAPRINS OC SKVÍSURNAR
Verði Svíþjóð ekki gerð lýðveldi þegar
núverandi konungur deyr, eins og sumir
landsmanna vilja, verður næsti konungur
þessa elzta konungsríkis heims Karl Gúst-
af krónprins, sem nú nemur við Upp-
sala-háskóla. Eins og gefur að skilja kemst
þessi aumingja piltur ekki spönn frá rassi
án þess að öll þjóðin frétti af því í blöðun-
um. Sérstaklega eru kvennamál hans fólki
hugstæð, en þau stundar hann af nokkru
kappi að sagt er.
Nýjasta vinkona hans heitir Anne-Marie
Hellquist og varð ungfrú Svíþjóð í fyrra.
Eftir það gerði hún mikla lukku í Banda-
ríkjunum og er nú eftirsótt ljósmynda-
fyrirsæta.
Þau Anne-Marie og krónprinsinn, sem
hlýðir gælunafninu Tjabbe, hittust í fyrsta
sinn í veizlu á höfðingjasetri utan við
Stokkhólm. Anne-Marie var svuntuklædd
í eldhúsinu og bjó til mat. Allt í einu
Anne-Marie Hellquist, ungfrú Svíþjóff
frá í fyrra, er nú mikiff meff prinsinum.
opnuðust dyrnar og inn kom prinsinn.
— Hej, viltu smakka, sagði Anne-Marie
Hellquist.
— Tack, mjög svo gjarna, sagði Tjabbe
krónprins og fékk sér í skeið úr pottinum.
Nokkrum dögum síðar var hringt í
Anne-Marie til nágranna hennar; sjálf var
hún ennþá símalaus. Og auðvitað var það
krónprinsinn.
— Hej það er Tjabbe. Hvernig ertu af
kvefinu, spurði hann. Anne-Marie hafði
sem sé verið með smávegis nefrennsli þeg-
ar þau hittust fyrst.
Til allrar hamingju var Anne-Marie
laus við þá pest, svo að prinsinn sá sér
fært að bjóða henni i mat. Þau snæddu á
listamannaveitingastaðnum Den Gyllene
Freden í Gamla Stan, gamla bænum í
Stokkhólmi. Og síðan þá hefur ekki geng-
ið hnífurinn á milli þeirra, ef marka má
sænskar heimildir. ☆
28. tbi. VIKAN 5